Samgönguslys
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 43 ›
Bíll með kerru upp á vegrið á Kringlumýrarbraut Fólksjeppi með kerru aftan í valt á Kringlumýrarbraut á öðrum tímanum í dag með þeim afleiðingum að jeppinn lenti uppi á vegriði á umferðareyju. Innlent 22.4.2023 13:47
Handtekinn dópaður með barn í bílnum Karlmaður var handtekinn klukkan 14 fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum fíkniefna. Barn var í bílnum og barnaverndanefnd hefur verið gert viðvart um málið. Innlent 20.4.2023 21:02
Ekið á gangandi vegfaranda í Grafarvogi Ekið var á gangandi vegfaranda í á Víkurvegi í Grafarvogi rétt fyrir klukkan eitt í dag. Innlent 20.4.2023 12:59
Bíll valt eftir harkalegan árekstur á Hringbraut Nokkuð harkalegur árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu fyrr í kvöld. Báðir bílar urðu fyrir miklu tjóni en engin alvarleg meiðsl urðu á fólki. Innlent 19.4.2023 23:25
Sex fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á Sex voru fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á við skammt frá Vindheimamelum í Skagafirði um hálf þrjú í dag. Alls voru fimmtán manns í rútunni, þrettán farþegar ásamt bílstjóra og leiðsögumanns. Innlent 19.4.2023 17:24
Níu létust í umferðinni í fyrra og 195 slösuðust alvarlega Níu létust í umferðinni í fyrra í jafnmörgum slysum, þar af átta karlar og ein kona. Fólkið var á aldrinum 19 til 74 ára. Fjórir voru í bifreið, einn á rafhlaupahjóli og fjórir gangandi. Þá létust fimm innan þéttbýlis en fjórir utan þéttbýlis. Innlent 14.4.2023 06:56
Mörg þúsund lítrar málningar láku í Mosfellsbæ Mörg þúsund lítrar af hvítri málningu láku út á þjóðveginn við Varmá í Mosfellsbæ þegar farmur bíls valt um hálf sex leytið í kvöld. Fulltrúar Vegagerðarinnar, Heilbrigðiseftirlitsins og efnaeyðingar Terra eru að vinna að því að hreinsa upp málninguna. Innlent 13.4.2023 21:38
Tærður geymir olli sprengingunni í Álfheimum Þrýstigeymirinn sem sprakk í bíl sem lagt var á þjónuststöð Olís við Álfheima í febrúar síðastliðnum var verulega tærður og orsakaði það skert þrýstingsþol. Ökumaðurinn bílsins kastaðist frá bílnum þegar sprengingin varð við áfyllingu metaneldsneytis, tvö önnur ökutæki skemmdust einnig og tveir hlutu áverka. Innlent 13.4.2023 14:57
Safna fyrir vin sinn sem lenti í hjólaslysi Elís Hugi Dagsson slasaðist illa er hann lenti í hjólaslysi í síðastliðnum ágúst. Félagar hans úr afrekshópi fjallahjóladeildar Brettafélags Hafnarfjarðar hafa tekið sig til og efnt til söfnunar fyrir Elís. Markmiðið er að ná að safna fyrir sérútbúnu fjallahjóli svo Elís geti hjólað með þeim á ný. Innlent 13.4.2023 12:36
Hinn látni karlmaður um áttrætt Maðurinn sem lést eftir að bifreið hans fór í höfnina í Vestmannaeyjum í gærkvöldi var karlmaður um áttrætt. Yfirlögregluþjónn segir Eyjamenn slegna vegna atburðarins. Rannsókn á tildrögum slyssins er hafin. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Innlent 12.4.2023 11:49
Bílslys á Reykjanesbraut Umferðarslys varð á Reykjanesbraut á áttunda tímanum í kvöld. Talið er að ökumaður hafi keyrt út af nálægt Kúagerði. Ekki hafi verið um að ræða árekstur. Innlent 4.4.2023 20:18
Tafir á umferð vegna bílslyss Nokkrar tafir hafa orðið á umferð á Kringlumýrarbraut vegna bílslyss við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar. Innlent 3.4.2023 17:12
Bíll með hestakerru valt nærri Bláfjallaafleggjara Ökumann og hest sakaði lítið þegar bíll með hestakerru í eftirdragi valt á Suðurlandsvegi nærri afleggjaranum að Bláfjöllum í dag. Dælubíll slökkviliðs var sendur á staðinn vegna þess að slysið átti sér stað inni á vatnsverndarsvæði. Innlent 31.3.2023 15:00
Harður árekstur á Fagradal Tveggja bíla árekstur varð í Fagradal á Austurlandi fyrr í kvöld. Tveir voru fluttir á slysadeild. Innlent 28.3.2023 21:41
Þrír fluttir á slysadeild eftir að rúta valt á Öræfum Rúta með tæplega þrjátíu farþegum valt í Öræfasveit í dag. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði og verða þaðan fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Enginn þeirra slösuðu er með lífshættulega áverka. Innlent 28.3.2023 13:50
Leita að ökumanni sem ók á ungan strák á hlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík síðastliðinn föstudagsmorgun. Innlent 27.3.2023 15:43
Kallar eftir varkárni ökumanna eftir að hafa orðið fyrir bíl Ekið var á arkitektinn Hildi Gunnlaugsdóttur er hún hjólaði á gangstétt upp Njálsgötu í gær. Hún slapp vel með skrekkinn en biður ökumenn um að gæta sín betur þegar gangstéttir eru þveraðar. Hver viti nema kona með barnavagn eða barn á hjóli sé sá sem er á leið á gangstéttinni. Innlent 24.3.2023 13:56
Staðfest að brakið og líkamsleifarnar séu úr banaslysinu Flugvélabrak og líkamsleifar sem festust í veiðarfæri skipsins Hrafns Sveinbjarnarsonar GK-255 þann 8. mars síðastliðinn eru úr banaslysi sem varð á svæðinu fyrir fimmtán árum síðan. Rannsóknarnefnd samgönguslysa komst að þessari niðurstöðu í dag. Innlent 22.3.2023 14:23
Staddur í hvíldarrými og ekki í belti þegar banaslysið átti sér stað Karlmaður sem lést er vörubifreið valt á hliðina á Suðurlandsvegi í fyrra var staddur í hvíldarrými bifreiðarinnar og var ekki í öryggisbelti þegar slysið átti sér stað. Að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa þarf Ríkisútvarpið að yfirfara verklag sitt við gerð veðurkorta eftir slysið. Innlent 22.3.2023 13:04
Lokuðu Reykjanesbraut í báðar áttir eftir umferðaróhapp Hluta Reykjanesbrautar var lokað klukkan 18:11 í dag vegna umferðaróhapps. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar átti umferðaróhappið sér stað í nágrenni við álverið í Straumsvík. Búið er að opna veginn aftur eftir stutta lokun. Innlent 18.3.2023 18:42
Fiskur þakti Suðurlandsveg Farmur sem innihélt fisk féll af vörubíl á Suðurlandsvegi við Svínahraun á fimmta tímanum í dag. Lögregla segir að hreinsun hafi gengið vel á vettvangi. Innlent 16.3.2023 17:45
„Við erum ennþá í áfalli eftir þetta“ „Við héldum að þetta væri eitthvað hryðjuverkadæmi. Það var ekki eins og þetta væri einhver lítil Súkka að bakka óvarlega út úr stæði,“ segir kærasta konunnar sem slasaðist í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, ók á sjö bíla og hafnaði að endingu á rúðu á hárgreiðslustofu í Álfheimum í Reykjavík. Innlent 15.3.2023 19:30
„Það rigndi yfir okkur glerbrotum“ Mildi þykir að ekki fór verr þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum, keyrði á sjö bíla og hafnaði að endingu á rúðu á hárgreiðslustofu í Álfheimum í Reykjavík í dag. Glerbrotum rigndi yfir starfsfólk og viðskiptavini stofunnar sem var verulega brugðið. Innlent 14.3.2023 19:14
Missti stjórn á bílnum og ók á rúðu í Álfheimum Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, ók á bíla og að lokum á rúðu í Álfheimakjarnanum í Reykjavík í dag. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að betur hafi farið en á horfðist. Kona slasaðist í óhappinu og var flutt á sjúkrahús, að sögn sjónarvotta sem fréttastofa ræddi við á vettvangi. Innlent 14.3.2023 13:44
Atvinnubílstjóri keyrði framan á bíl á Borgarfjarðarbrú Bíll ökukennara er illa farinn eftir að annar bílstjóri keyrði á miklum hraða framan á bílinn á öfugum vegarhelmingi á Borgarfjarðarbrú. Sá er leiðsögumaður og ásamt honum voru tveir erlendir ferðamenn í bílnum. Fréttir 11.3.2023 23:22
Kviknaði í 21 bíl eftir árekstur í Ungverjalandi Að minnsta kosti 36 slösuðust eftir árekstur á hraðbraut í Ungverjalandi þar sem kviknaði í 21 bíl. Erlent 11.3.2023 19:31
Fólksbíll og flutningabíll í árekstri við Hólmsá Bílslys varð á brúnni yfir Hólmsá í Reykjavík í kvöld. Fólksbíll og flutningabíll sem var að koma úr gagnstæðri átt skullu þá saman. Innlent 10.3.2023 22:44
Einn á sjúkrahús eftir árekstur rútu og mjólkurbíls Bílstjóri rútunnar sem lenti aftan á mjólkurbíl á Þjóðvegi 1 við Þverá í Öxnadal fyrr í dag var fluttur á sjúkrahús. Meiðsli hans eru þó ekki talin alvarleg. Þrjátíu manna hópur ungmenna var um borð í rútunni. Innlent 10.3.2023 15:26
Rúta og flutningabíll rákust saman Þjóðvegur 1 um Öxnadal í Hörgársveit er lokaður eftir árekstur rútu og flutningabíls. Innlent 10.3.2023 13:34
Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur. Innlent 10.3.2023 12:54