

Frjálsíþróttamaðurinn Guðni Valur Guðnason er eini íslenski keppandinn sem á eftir að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó en hann keppir í undankeppni kringlukastsins aðfaranótt föstudags.
Norska kvennalandsliðið í handbolta hélt sigurgöngu sinni áfram á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt og eru þær öruggar í átta liða úrslitin þegar tveir leikir eru eftir.
Luka Doncic og félagar í slóvenska körfuboltalandsliðinu áttu ekki í miklum erfiðleikum með að landa sínum öðrum sigri á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt.
Bandaríski stangarstökkvarinn Sam Kendricks verður ekki með á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir að hann greindist með COVID-19.
Fyrsta heimsmetið í sundkeppninni á Ólympíuleikunum í Tókýó féll í nótt og það voru kínversku stelpurnar sem unnu þar óvænt gullverðlaunin. Kínverska sundkonan Zhang Yufei vann tvö gull í nótt og Bandaríkjamaðurinn Caeleb Dressel vann líka sitt annað gull á leikunum.
Afganska hjólreiðakonan Masomah Ali Zada er á meðal 25 manns sem keppir fyrir lið flóttafólks á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir hana persónulega, heldur einnig fyrir þúsundir kvenna um heim allan sem mega ekki einu sinni ferðast um á reiðhjóli.
Fimleikakonan Oksana Chusovitina er sest í helgan stein eftir nær fjögurra áratuga feril. Chusovitina keppti á sínum áttundu og síðustu Ólympíuleikum, í Tókýó í Japan, en hún hefur keppt á hverjum einustu leikum frá árinu 1992 þegar leikarnir fóru fram í Barcelona.
Sænski kringlukastarinn Daniel Ståhl, sem Vésteinn Hafsteinsson þjálfar, sefur í sérhönnuðu rúmi í Ólympíuþorpinu í Tókýó.
Hollenska hjólreiðakonan Annemiek van Vleuten varð Ólympíumeistari í brautarkeppni hjólreiðanna í Tókýó í nótt. Hún vann þar sín fyrstu gullverðlaun á leikunum en var þó ekki að fagna sigri í fyrsta sinn á þessum Ólympíuleikum.
Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltalandsliðinu urðu að sætta sig við tap fyrir Frakklandi, 30-29, í þriðja leik sínum í A-riðli Ólympíuleikanna í Tókýó.
Sú ákvörðun fimleikastjörnunnar Simone Biles að draga sig úr keppni á Ólympíuleikunum til að huga að andlegri heilsu sinni gæti haft mikil áhrif til frambúðar og skapað aukna umræðu um það umhverfi sem stærstu íþróttastjörnur heims lifa og hrærast í. Þetta segir Haukur Ingi Guðnason, fyrrverandi fótboltamaður sem hefur starfað við og kennt íþróttasálfræði.
Þýska júdókonan Martyna Trajdos var langt frá því að keppa um verðlaun í júdókeppni Ólympíuleikanna í Tókýó en hún var samt á milli tannanna hjá fólki eftir keppnina.
Rússinn Daniil Medvedev er kominn í átta manna úrslit í tenniskeppni Ólympíuleikanna en hann átti í miklum erfiðleikum í hitanum í nótt.
Sigursælasti keppandi í sögu Ólympíuleikanna, Michael Phelps, styður ákvörðun fimleikastjörnunnar Simone Biles um að draga sig úr keppni í úrslitum fjölþrautarinnar á leikunum í Tókýó.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir endaði í 34. sæti í undanrásum í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag.
Það hafa miklu fleiri hrósað fimleikakonunni Simone Biles en hafa gagnrýnt hana eftir óvænta atburði gærdagsins.
Katie Ledecky vann sín fyrstu gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt en þetta hafa þó ekki verið neinir draumaleikar hjá bandarísku sundstjörnunni.
Lærisveinar íslensku þjálfaranna Dags Sigurðssonar og Aron Kristjánssonar hafa enn ekki ná að fagna sigri í handboltakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó.
Bandaríska körfuboltalandsliðið er komið á blað á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir 54 stiga sigur á Íran, 120-66, í öðrum leik sínum á leikunum.
Bandaríska fimleikastjarnan Simone Biles mun ekki keppa í úrslitum fjölþrautarinnar á morgun á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Bretinn Tom Dean hlaut í dag gullverðlaun á Ólympíuleikunum eftir hafa komið fyrstur í bakkann í 200 metra skriðsundi í lauginni í Tókýó. Dean átti erfiða leið á leikana.
Fimleikastjarnan Simone Biles segir andlegt álag hafa valdið því að hún dró sig úr keppni er liðakeppni fór fram á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Bandaríkin hlutu silfur án Biles en Rússland fagnaði sigri.
Stærðfræðingar eru vanir að vinna einir að lausn sinna vandamála og einn af nýjum Ólympíumeisturunum í Tókýó vill enga hjálp frá þjálfurum eða öðrum sérfræðingum þegar hún stundar sína íþrótt. Hún þorir að vera öðruvísi og það skilaði henni sögulegu Ólympíugulli.
Hollenska markamaskínan Vivianne Miedema setti met þegar riðlakeppninni í fótbolta kvenna á Ólympíuleikunum í Tókýó lauk í dag.
Anton Sveinn McKee var vonsvikinn eftir að hann komst ekki áfram í undanúrslit í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Rússar unnu til gullverðlauna í liðakeppni kvenna í fimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag.
Evrópumeistarar Noregs í handbolta kvenna unnu í dag níu marka sigur á Afríkumeisturum Angóla í öðrum leik liðanna á leikunum, 30-21, eftir að hafa verið 15-10 yfir í hálfleik.
Simone Biles hefur lokið í leik í liðakeppni í fimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Íslenski sundmaðurinn Anton Sveinn McKee var nokkuð frá sínu besta tíma í eina sundinu sínu á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Flora Duffy frá Bermúdaeyjum skrifaði nýjan kafla í sögu þjóðar sinnar í nótt þegar hún vann þríþraut kvenna á Ólympíuleikunum i Tókýó.