
Lögreglan

„Við erum bara að segja þeim að vinna vinnuna sína“
Embætti ríkissaksóknara hefur skipað Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að ljúka rannsókn á fjársöfnun Semu Erlu Serdoglu, stofnanda Solaris, og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp, sjálfboðaliða samtakanna.

Valsmenn senda frá sér yfirlýsingu: UEFA lítur málið alvarlegum augum
Valur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óláta áhorfenda á leik karlaliðs félagsins í fótbolta við Vllaznia frá Albaníu í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hegðun stuðningsmanna er fordæmd en öll einbeiting sögð á síðari leiknum eftir viku.

UEFA á viðvörunarstigi, Interpol í málinu og Albaníuferðin í hættu
Hegðun stuðningsmanna og starfsfólks albanska félagsins Vllaznia í kringum leik liðsins við Val að Hlíðarenda í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld gæti dregið dilk á eftir sér. Málið er á borði KSÍ og UEFA auk lögreglunnar og Interpol.

Svikahrappar reyna að gabba lögregluna
Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár.

Áttatíu ára gamall gæsastuldur á Seltjarnarnesi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rifjar upp forvitnilega lögregluskýrslu á Fésbókarsíðu sinni sem var rituð fyrir rúmum 83 árum.

Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna
Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni.

„Hótanir eru að færast nær fjölskyldum og heimilum“
Dæmi eru um að persónuupplýsingar um lögreglumenn séu birtar á netinu í þeim tilgangi að hvetja til eignaspjalla, ögrunar eða ofbeldis gegn lögreglu. Embætti ríkislögreglustjóra merkir aukna neikvæða þróun í þessum efnum en þetta geti grafið undan trausti milli lögreglu og borgara.

Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar
Kynferðisofbeldi á ekkert skylt með kynlífi. Ofbeldið sem er beitt er í formi valdníðslu og djúprar fyrirlitningar. Markmiðið er að hafa vald yfir þér. Ef fólk hefur ekki velt því fyrir sér hver meðaltíminn er sem kynferðisofbeldi stendur yfir að þá eru það um 4,5 klukkustundir. Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar. Það má vera að sumir skilji ekki hvernig karlmaður gæti enst svona lengi en raunin er sú, enn og aftur, að kynferðisofbeldi er ekki kynlíf og á ekkert skylt við kynlíf.

Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur
Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn.

Felldu kjarasamning með miklum meirihluta
Rúmlega tveir af hverjum þremur lögreglumönnum greiddu atkvæði gegn nýlegum kjarasamningi Landsambands lögreglumanna við íslenska ríkið. Þetta kemur fram á heimasíðu sambandsins.

Segja lögreglu hafa gætt stillingar við mótmælin í Skuggasundi
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur engar vísbendingar uppi um mögulega refsiverða eða ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu við mótmælin í Skuggasundi í síðasta mánuði. Lögregla er sögð hafa gætt meðalhófs í aðgerðum sínum.

Faðir handtekinn á nærbuxunum á heimili sonar
Íslenska ríkið þarf að greiða manni 170 þúsund krónur vegna handtöku sérsveitarinnar á honum árið 2022. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Að mati dómsins var handtakan sjálf lögmæt en vegna þess að maðurinn varð fyrir skaða vegna hennar á hann rétt á bótum.

Þinglokasamningar í höfn: Lögreglulögin fljúga í gegn með breyttum örorkulífeyri
Formenn þingflokkanna náðu rétt fyrir miðnætti í gær saman um afgreiðslumála fyrir frestun funda Alþingis. Stefnt er að þingfrestun á morgun. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun Alþingis átti þingfrestun að vera fyrir viku síðan.

Lögreglustjórar og dómarar mótmæla launafrumvarpi Bjarna
Lögreglustjórafélag Íslands og Dómstólasýslan mótmæla harðlega frumvarpi forsætisráðherra um laun æðstu embættismanna landsins og segja ótækt að sömu reglur gildi um lögreglustjóra og dómara og gilda um kjörna fulltrúa.

Ósýnilegi maðurinn á Austurvelli
Á 80 ára lýðveldisafmælinu felldi ég tár innra með mér á Austurvelli. Tilefnið var þó ekki girðingin sem að valdið telur að þurfi að reisa til að verja sig frá okkur. Gjáin er nefnilega víðar sem við þurfum öll að taka þátt í að brúa.

Leggst yfir rannsókn lögreglu á banaslysi
Ríkissaksóknari hefur tekið til skoðunar hvort rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á banaslysi við HS Orku árið 2017 hafi verið ófullnægjandi. Vinnueftirlitið gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á slysstað en þrátt fyrir það var rannsókn lögreglunnar hætt án skýringa og engin ákæra gefin út.

Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli
Þingmaður Pírata gagnrýnir mikinn viðbúnað lögreglu við hátíðarhöld á Austurvelli í gær. Ekki sé góður bragur á að fagna þjóðhátíð með grindverki á milli þjóðarinnar og valdastéttarinnar. Þá fer hann fram á að forseti Alþingis banni lífverði forsætisráðherra á Alþingi.

Umfangsmikil aðgerð Europol: Netþjónar á Íslandi hýstu hryðjuverkaáróður
Ríkislögreglustjóri og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í tveimur umfangsmiklum aðgerðum á vegum Europol í vikunni gegn dreifingu og stýringu hryðjuverka. Teknir voru niður netþjónar í Þýskalandi, Hollandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Spænsk yfirvöld handtóku níu einstaklinga í aðgerðunum.

Hótanir í garð lögreglumanna komnar á borð saksóknara
Lögregla hefur kært tvær hótanir í garð lögreglumanna til héraðssaksóknara. Formaður Landssambands lögreglumanna tengir hótanirnar beint við Palestínumótmæli sem staðið hafa yfir síðustu vikur og mánuði.

Segir reyksprengjum verið kastað og piparúði nauðsynlegur
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögregluna hafa neyðst til að beita piparúða gegn mótmælendum við Alþingishúsið í gær. Reyksprengju og blysum hafi verið kastað í átt að Alþingishúsinu. Þingmaður Pírata telur atburðarásina hafa mátt vera á annan veg.

Um tólf vopnuð útköll lögreglu og sérsveitar í hverri viku
Alls fór lögreglan á Íslandi í 180 útköll á síðasta ári þar sem hún þurfti að vopnast. Flest voru útköllin á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 97. Sérsveitin fór í alls 461 vopnuð útköll á síðasta ári. Samanlagt eru það 558 útköll eða um 12 útköll á viku.

Skemmdarverk unnin á lögreglubílum
Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um skemmdarverk sem hafa verið unnin á lögreglubílum.

Nauðungarstjórnun í nánum samböndum
Nauðungarstjórnun er orð sem líklega fæstir þekkja, né vita hvað merkir. Að vita merkingu þess er hins vegar nauðsynlegt. Það þarf að auka vitund almennings um þetta mjög mikilvæga málefni. Nauðungarstjórnun er þegar einstaklingur, oftast maki eða fyrrverandi maki, tekur sér stjórn á lífi annarrar manneskju, t.d. með því að stýra aðgengi viðkomandi að samskiptum við vini og fjölskyldu, fjármálum, samfélagsmiðlum eða öðru sem eðlilegt er að frjáls manneskja hafi forræði yfir sjálf.

Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu
Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði
Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn.

Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur
Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi.

Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin
Lögreglufulltrúi segir áhyggjuefni að hér á landi séu tvö þúsund skotvopn á skrá sem lögregla veit ekki hvar eru niðurkomin. Um 340 vopn eru skráð stolin hér á landi og óttast lögregla að þau séu í röngum höndum.

Viðreisn býðst til að bjarga lögreglufrumvarpi dómsmálaráðherra
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum miðar meðal annars að því að efla svokallaðar „afbrotavarnir“ eða „forvirkar rannsóknarheimildir“ lögreglu. Það er enn fast í nefnd og óljóst hvort takist að koma málinu í gegn áður en þingi verður slitið.

Lögreglan hafi brugðist rétt við í líkamsárásarmáli
Afbrotafræðingur segir líkamsárásardóm yfir lögreglumanni ólíklegan til að grafa undan trausti til lögreglunnar, þar sem hún tók málið til rannsóknar að eigin frumkvæði og vék viðkomandi lögreglumanni strax frá störfum.

Málið eigi ekki að rýra traust til lögreglu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir 30 daga skilorðsbundinn dóm yfir lögreglumanni vegna líkamsárásar ekki eiga að rýra traust fólks til lögreglu. Málið hafi verið rannsakað að frumkvæði embættisins.