
KA

Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu
Bikarmeistararnir unnu 1-3 sigur gegn Fylki sem situr í neðsta sæti deildarinnar. Staðan var jöfn í hálfleik en KA gerði tvö mörk í seinni hálfleik og gestirnir fögnuðu sigri. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“
KA vann 1-3 sigur gegn Fylki á Würth-vellinum. Viðar Örn Kjartansson, leikmaður KA, var á skotskónum en fagnaði ekki markinu þar sem hann spilaði með Fylki árið 2013.

„Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“
Þrátt fyrir þokkalega opinn síðari hálfleik skildu Þróttur og Þór/KA jöfn í markalausum leik. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, er sæll með að halda hreinu á útivelli og tekur marga jákvæða punkta með sér norður.

Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum
Þróttur og Þór/KA skildu jöfn þegar liðin áttust við á Avis-vellinum í dag. Hvorugt lið náði að skora þrátt fyrir álitleg færi í leiknum. Bæði lið sigla lygnan sjó í efri hluta Bestu deildar kvenna en Þór/KA situr í þriðja sæti á meðan Þróttur situr í því fimmta þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu.

Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn
Helgi Guðjónsson skoraði tvö góð mörk fyrir Víkinga í gær þegar liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn FH, í Bestu deildinni í fótbolta. Gullfalleg mörk úr smiðju táninga vöktu athygli í 3-3 jafntefli KA og HK. Öll mörkin má sjá á Vísi.

Loks vann Valur leik
Það tók Val fjórar umferðir að vinna leik í Olís-deild karla í handbolta. Eftir þrjár umferðir án sigurs mættu KA-menn á Hlíðarenda og sáu aldrei til sólar, lokatölur 38-27.

„Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“
KA og HK gerðu 3-3 jafntefli á Greifavellinum í dag í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. KA menn voru enn í sigurvímu eftir bikarmeistaratitilinn sem vannst á dögunum og spilaði liðið ekki sinn besta leik.

Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum
Nýkrýndir bikarmeistarar KA máttu sætta sig við 3-3 jafntefli gegn HK í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla. KA var langt frá sínu besta í dag og ekki laust við að einhver bikarþynnka hafi verið til staðar en KA lék manni fleiri allan síðari hálfleik.

Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“
Nýkrýndir bikarmeistarar KA mæta svo til pressulausir til leiks í Bestu deildina í dag. Á heimavelli gegn HK-liði sem berst fyrir lífi sínu í deildinni. Með ekkert sérstakt til að keppa að í deildinni óttast Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA-manna, ekki bikarþynnku eftir fagnaðarlæti síðustu daga í kjölfar sigursins sögulega. Fögnuð þar sem leikmenn fengu fullt leyfi frá þjálfaranum til að sleppa af sér beislinu.

Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum
Breiðablik var í miklum ham gegn Þór/KA í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í dag. Blikar unnu 6-1 sigur en öll mörk þeirra komu í fyrri hálfleik.

„Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“
„Þetta er geggjuð tilfinning, að skrifa söguna fyrir KA. Maður hefur unnið bikar áður en þetta er svolítið sætara,“ sagði mögulegi markaskorarinn en staðfesti bikarmeistarinn Viðar Örn Kjartansson eftir úrslitaleikinn sem vannst 2-0 gegn Víkingi.

Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn
KA er bikarmeistari karla í knattspyrnu árið 2024 eftir 2-0 sigur á Víkingum sem höfðu einokað bikarinn undanfarin ár.

„Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“
Annað árið í röð er KA komið í bikarúrslit karla í fótbolta og reynir að fella bikarmeistara Víkings. Þjálfari KA-manna segir menn ekki endilega í hefndarhug, en njóti góðs af reynslu síðasta árs og ákveðnir í að vinna loks bikarinn.

„Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“
Víkingar geta orðið bikarmeistarar fimmta sinn í röð þegar þeir mæta KA í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í dag. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, segir mikilvægt að njóta dagsins og láta stressið ekki buga sig.

Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar
Afturelding vann yfirburðarsigur gegn KA í þriðju umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í Mosfellsbæ urðu 33-22, ellefu marka sigur Aftureldingar.

„Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“
KA reynir annað árið í röð að fella bikarveldi Víkings á Laugardalsvelli. Félögin mætast í bikarúrslitum karla í fótbolta á morgun.

„Held að þetta verði mjög erfiður leikur“
„Allir í liðinu eru mjög spenntir fyrir leiknum og vilja halda áfram góðri leiktíð,“ segir Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings, um bikarúrslitaleik morgundagsins í fótbolta þar sem Víkingur mætir KA.

Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær
Sextán mörk voru skoruð í leikjunum fjórum í Bestu deild karla í gær. Þau má öll sjá í fréttinni.

„Gaman að geta hjálpað liðinu loksins“
Rúnar Már gerði sigurmark ÍA í 1-0 heimasigri liðsins gegn KA í dag. Leikurinn í dag var fyrsti leikur Rúnars í mjög langan tíma sem hann spilar frá byrjun til enda og markið hans fyrsta fyrir ÍA.

Uppgjörið: ÍA - KA 1-0 | Fyrsta mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigur
Rúnar Már Sigurjónsson opnaði markareikning sinn hjá ÍA og markið færði liðinu 1-0 sigur á KA í Bestu deild karla í fótbolta. Rúnar skoraði með skalla eftir hornspyrnu og þessi sigur skilar Skagaliðnu upp í fjórða sæti.

Sjáðu stórglæsilegt sigurmark á gamla heimavellinum
Önnur umferð úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar kvenna í fótbolta er að baki og nú má finna mörkin úr öllum þremur leikjunum hér inn á Vísi.

Ákvað að hlusta ekki á slúðursögur sem höfðu þó áhrif
Viðar Örn Kjartansson lætur sögusagnir um sig ekkert á sig fá og hefur lagt hart að sér að koma sér í gott leikform. Hann ætlar sér að verða bikarmeistari með KA.

„Þór/KA-Víkingur verður stærsti leikur landsins í öllum deildum”
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, fór fögrum orðum um leikmenn sína og frammistöðu liðsins eftir 1-0 tap gegn Val í annarri umferð efri hluta Bestu deildar kvenna.

Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1 | Nauðsynlegur sigur í toppbaráttunni
Valur vann sterkan 1-0 útsigur á Þór/KA á Greifavellinum á Akureyri í dag í annarri umferð efri hluta Bestu deildar kvenna. Anna Rakel Pétursdóttir skoraði eina mark leiksins á níundu mínútu með frábæru skoti.

Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri
Haukar unnu öruggan átta marka sigur á KA norðan heiða í kvöld í annarri umferð Olís deildar karla í handbolta. Lokatölur 26-34 og sigurinn í raun aldrei í hættu.

Frá Akureyri í Meistaradeild Asíu
Lidja Kulis og Lara Ivanusa hafa yfirgefið Þór/KA og samið við Abu Dhabi Country Club sem spilar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Liðið mun spila í riðlakeppni Meistaradeildar Asíu á komandi leiktíð.

Sjóðheitur í Bestu deildinni í dag en kom heim í kulnun
Viðar Örn Kjartansson byrjaði sumarið ekki vel með KA í Bestu deildinni í fótbolta en hefur raðað inn mörkum í síðustu leikjum á sama tíma og KA-liðið hefur þotið upp töfluna og komist í bikarúrslitaleikinn.

Grótta stakk KA af í fyrsta leik
Grótta vann góðan 29-25 sigur gegn KA í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag, á Seltjarnarnesi.

„Þá er ekki slæmt að vera með eitt stykki Viðar Örn“
Viðar Örn Kjartansson hefur verið að gera góða hluti með KA undanfarið og skorað fimm mörk í Bestu deildinni í fótbolta á rétt rúmum mánuði. Hann var til umræðu í Stúkunni á Stöð 2 Sport í vikunni.

Draumurinn um efri hlutann úti
Framarar og KA-menn þurfa að sætta sig við að keppa í neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta þetta sumarið. Það var ljóst eftir töp liðanna tveggja í gærkvöld.