
Ástin á götunni

Sú markahæsta riftir samningi sínum við Fjölni
Alda Ólafsdóttir var markahæst allra á Íslandi á ný afstaðinni leiktíð ef horft er í meistaraflokks knattspyrnu á Íslandi. Hún hefur nú rift samningi sínum við Fjölni og gæti farið í nýtt lið á næstu dögum.

Stórar hugmyndir – lítil samskipti: „Veldur okkur áhyggjum“
Formaður KSÍ vill sjá nýjan þjóðarvöll rísa við Suðurlandsbraut og mynda þar allsherjar íþróttamiðstöð ásamt nýrri þjóðarhöll. Sá völlur yrði á svæði sem er í eigu Þróttar og formaður félagsins er heldur óspenntari fyrir hugmyndinni. Hann kallar eftir meira samráði sérsambanda ÍSÍ við félögin í Laugardal.

„Því miður fyrir Val þá hringdi Freysi“
Eftir að hafa verið lengi án félags ákvað Gylfi Þór Sigurðsson að semja við danska félagið Lyngby. Vonir stóðu þó til að hann myndi spila í Bestu-deildinni.

Samúel ánægður með ákvörðun bæjarstjórnar
Ísafjarðarbær hefur ákveðið að flýta framkvæmdum á gervigrasvöllum bæjarins vegna sætis Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu sumarið 2024. Samúel Samúelsson, formaður Vestra, er himinlifandi með tíðindin.

Finnarnir farnir frá FH
Eetu Mömmö og Dani Hatakka munu ekki spila með FH í Bestu deild karla í knattspyrnu sumarið 2024. Þeir koma báðir frá Finnlandi.

Þolinmæði UEFA á þrotum og skoðað að leggja gervigras á Laugardalsvöll
KSÍ stefnir á að leggja nýjan grasflöt á Laugardalsvöll í vor vegna aukinna verkefna á vellinum. Til greina kemur að sá flötur verði úr gervigrasi.

Dofri leggur skóna á hilluna
Dofri Snorrason hefur ákveðið að kalla þetta gott og hefur lagt skóna á hilluna eftir þrettán ár í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Hann hóf ferilinn með uppeldisfélaginu KR en hefur einnig spilað fyrir Víking, Selfoss og Fjölni á ferli sínum.

Ekroth í Víkinni til 2026
Oliver Ekroth, miðvörður Íslands- og bikarmeistara Víkings, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2026.

Yfir hálfrar aldar vinna feðganna af Skaganum er komin í loftið
Feðgarnir Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson hafa undanfarna áratugi staðið í ströngu við að safna saman og gera skil merkum heimildum um sögu fótboltans á Akranesi. Útkoman þeirrar vinnu er einkar glæsileg vefsíða, Á sigurslóð, sem nú er komin í loftið.

Leik lokið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Tvö mörk Eggerts tryggðu þriðja sætið
Síðasti leikur Bestu deildar karla árið 2023 fór fram í dag þegar Breiðablik tók á móti Stjörnunni. Fyrir leik var Stjarnan í þriðja sæti deildarinnar með 43 stig á meðan Breiðablik var sæti neðar með 41 stig. Svo fór að lokum að Stjarnan vann 0-2 sigur og tryggði sér í leiðinni þriðja sætið í Bestu deildinni árið 2023.

Þrenna Erlings, tvenna Kjartans Henry, skjöldur á loft og öll hin mörkin
Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær að einum leik undanskildum. Erling Agnarsson skoraði þrennu áður en Víkingar lyftu Íslandsmeistaraskildinum, Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvennu gegn sínum gömlu félögum og ÍBV féll eftir jafntefli í gegn Keflavík.

Umfjöllun: KA - HK 1-0 | Norðanmenn enduðu tímabilið á sigri
KA vann HK í lokaumferð Bestu deildar karla nú í kvöld. Fyrir leikinn var það ljóst að KA myndi hafna í sjöunda sætinu og hreppa Forsetabikarinn á meðan HK átt enn tölfræðilegan möguleika á því að falla þó svo að ansi margt þyrfti að gerast til þess.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Fram 5-1 | Fylkir bjargaði sér frá falli með stórsigri
Fylkir rúllaði yfir Fram og bjargaði sér frá falli. Heimamenn settu tóninn strax í upphafi leiks og skoruðu þrjú. Fylkir bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik og Fylkir og Fram verða í Bestu-deildinni á næsta tímabili.

Leik lokið: FH - KR 3-1 | Kjartan Henry skoraði tvö í kveðjuleik Rúnars hjá KR
FH og KR áttust við í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta í Kaplakrika í dag. FH fór með 3-1 sigur af hólmi í leiknum sem var sá síðasti hjá Rúnari Kristinssyni við stjórnvölinn hjá KR í bili hið minnsta.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - Valur 5-1 | Íslandsmeistararnir enduðu með flugeldasýningu
Íslandsmeistarar Víkings enduðu tímabilið með sannkallaðri veislu í Víkinni í dag en liðið fór létt með Val.

Vinskapur nafnanna settur til hliðar í dag: „Ábyggilega furðulegt fyrir hann“
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, segir þægilegt fyrir sitt lið að vita að það hafi örlögin í sínum höndum fyrir mikilvægan leik gegn Fram í einum af fallbaráttuslag dagsins í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta. Ragnar Sigurðsson, þjálfari Fram, er uppalinn Fylkismaður og vinur Ragnars Braga sem telur furðulega stöðu blasa við vini sínum.

Hætta á að heimaleikir vetrarins verði erlendis: „Ótrúlega leiðinlegt“
KSÍ vill síður bera kostnað af því að halda Laugardalsvelli við vegna Evrópuverkefna íslenskra félagsliða í vetur. Vel má vera að færa þurfi landsleiki í febrúar og mars út fyrir landsteinana.

„Það er ekkert nægilega gott nema sigur“
Matthías Vilhjálmsson er sigurvegari sem þrífst best í umhverfi þar sem sigur er skylda frekar en forréttindi. Matthías er fjölhæfur leikmaður sem líður þó best sem fremsta manni. Flottustu mörk hans á ferlinum eiga nærri öll rætur sínar að rekja á sparkvöll á Ísafirði.

Pedersen framlengir samning sinn við Val
Knattspyrnufélagið Valur og danski sóknarmaðurinn Patrick Pedersen hafa framlengt samninginn sín á milli um tvö ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild Vals.

Kjóstu leikmann mánaðarins í Bestu deild karla
Tveir leikmenn frá Val, einn úr KR, einn úr KA og einn úr Stjörnunni eru tilnefndir í kjörinu á besta leikmanni ágústmánaðar í Bestu deild karla í fótbolta. Tilkynnt var um tilnefningarnar í Stúkunni á Stöð 2 Sport á dögunum.

Viktor Bjarki yfirgefur KR og ráðinn yfirþjálfari hjá Víkingum
Viktor Bjarki Arnarsson hefur verið ráðinn í starf yfirþjálfara yngri flokka hjá knattspyrnudeild Víkings Reykjavíkur og kemur hann til félagsins frá KR þar sem að hann gegndi sömu stöðu.

Vilhjálmur bað HK-inga afsökunar: „Gefur okkur bara svo rosalega lítið“
Fótboltadómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson bað HK-inga afsökunar á ákvörðun sem hann tók í leik liðsins gegn Fram í Bestu deildinni á dögunun. Afsökunarbeiðnin kom skömmu fyrir leik HK í gær sem Vilhjálmur dæmdi. Þjálfari HK telur hann hafa gert önnur afdrifarík mistök í þeim leik.

Samúel klökkur eftir afrek Vestra: „Þetta er bara geggjað fólk“
Samúel Samúelsson, prímusmótorinn á bak við knattspyrnudeild Vestra, var hrærður í viðtali eftir að Vestri hafði tryggt sér sæti í efstu deild í fótbolta í fyrsta skipti í sögunni með 1-0 sigri á Aftureldingu í úrslitaleik í umspili Lengjudeildarinnar. Hann þakkar öllu því fólki sem stendur að baki liðinu fyrir sitt framlag.

Mörkin úr Bestu: Valsmenn útkljáðu Evrópubaráttuna | Eyjamenn eygja von
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, átján mörk voru skoruð og tóku línur að skýrast fyrir lokaumferð deildarinnar sem fer fram eftir tæpa viku. Evrópubaráttan er ráðin en enn er óvíst hvaða lið fellur með Keflavík.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - FH 4-1 | Valur rúllaði yfir FH
Valur vann sannfærandi 4-1 sigur gegn FH. Staðan var jöfn í hálfleik en heimamenn sýndu klærnar í síðari hálfleik og rúlluðu yfir Hafnfirðinga. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Ómar Ingi: Erum að keppa við eitthvað miklu meira heldur en andstæðingar okkar
HK tapaði í kvöld 0-1 fyrir ÍBV í Kórnum í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Bæði lið eru harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni en leikurinn réðist á umdeildri vítaspyrnu sem dæmd var á 30. mínútu leiksins.

Umfjöllun og viðtöl: HK - ÍBV 0-1 | Sigur heldur vonum Eyjamanna á lífi
Í dag hófst næstsíðasta umferð Bestu deildarinnar. Í Kórnum fékk HK ÍBV í heimsókn í leik sem Eyjamenn unnu 0-1. Úrslit leiksins réðust úr umdeildri vítaspyrnu sem dæmd var á 30. mínútu leiksins.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 1-0 | Fram fór langleiðina með að bjarga sér frá falli
Fram steig afar stórt skref í átt að því að tryggja sér veru í efstu deild í fótbolta karla með dýrmætum 1-0 sigri þegar liðið fékk KA í heimsókn í 26. og næststíðustu umferð deildarinnar á Framvöllinn í Úlfarsárdal í kvöld. Það var Þengill Orrason sem skoraði sigurmark Frammara í leiknum.

„Alltaf verið draumur minn að stýra KR“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var afar svekktur eftir tap gegn KR 4-3. Óskar fór einnig yfir það hvort hann væri að taka við Haugesund.

„Þeir sem að stjórna sjá fótbolta öðruvísi en þjálfararnir“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ánægður með 4-3 sigur gegn Blikum. Rúnar fór yfir árangurinn hjá liðinu og talaði um ákvörðun félagsins að hafa hann ekki áfram sem þjálfara liðsins.