Tækni
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 84 ›
Metvika á Vísi - Fjölsóttasti vefur landsins Visir.is mælist enn fjölsóttasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Tæplega 172 þúsund notendur sóttu vefinn í síðustu viku [171.992] og lásu rúmlega níu milljón síður. Heimsóknir á Vísi hafa áður mælst fleiri en met var sett hvað varðar síðuflettingar og innlit. Innlent 13.10.2005 19:42
Margfalda burðargetu GSM Og Vodafone ætlar að efla GSM fjarskiptakerfi sitt enn frekar á þessu ári með því að taka í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem getur margfaldað flutningsgetu í farsímum viðskiptavina fyrirtækisins. Prófanir á tækninni eru hafnar og er áætlað að hún verði tekin í notkun á síðasta fjórðungi þessa árs. Innlent 13.10.2005 19:40
Sky lokar á íslenska áskrifendur Sky hefur ákveðið að loka fyrir íslenska áskrifendur. Ástæðan er að íslensk fyrirtæki auglýsa áskrift að stöðinni en fyrir því hafa þau ekki leyfi. Innlent 13.10.2005 19:40
Í tilraunaflug hjá ESA Ágúst Örn Einarsson, nýútskrifaður vélaverkfræðingur í Danmörku, er fyrsti Íslendingurinn sem hefur farið í tilraunaflug hjá evrópsku geimferðastofnuninni. Tilgangur ferðarinnar var að prófa frumgerð af gervihnetti í þyngdarleysi. Innlent 13.10.2005 19:38
Öryggismyndavél með símkorti Hafin er sala á nýrri eftirlitsmyndavél frá Nokia sem sögð er geta hentað fyrir heimili og eins til að hafa auga með sumarbústöðum. Innlent 13.10.2005 19:30
PFS vill skýringar á viðgerðartöf Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan. Innlent 13.10.2005 19:30
Kvaðir lagðar á símafyrirtæki Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt. Innlent 13.10.2005 19:30
Öll heimili tengd árið 2011 Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um að ljósleiðaravæðingu allra heimila borgarinnar ljúki árið 2011. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir við Akraneskaupstað og Seltjarnarnes. Innlent 13.10.2005 19:28
Aukningin hjá Cantat-3 ekki FARICE Rannsókna- og háskólanet Íslands tengist ekki um FARICE sæstrenginn nýja og varð því ekki fyrir truflunum þegar samband rofnaði nýverið við Skotland. Verð gagnaflutninga um FARICE strenginn, sem stjórnvöld standa að, sætir gagnrýni. Innlent 13.10.2005 19:28
Þrefaldur munur á boði og áætlun Orkuveita Reykjavíkur hefur hafnað öllum tilboðum í lagningu ljósleiðara á Akranesi og Seltjarnarnesi þar sem þau voru langt yfir kostnaðaráætlunum fyrirtækisins. Stjórnarmaður í Orkuveitunni gagnrýnir fyrirtækið fyrir ranga áætlanagerð. Innlent 13.10.2005 19:26
Útgáfufyrirtæki geta lögsótt Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að útgáfufyrirtæki geti höfðað mál gegn þeim fyrirtækjum sem hvetja viðskiptavini til að stela lögum og kvikmyndum af netinu. Erlent 13.10.2005 19:25
Allt falt á Netinu Álfelgur undir bílinn, keramik-brennsluofn og iguana-eðla er meðal þess sem hægt er að kaupa í gegnum Netið þessa dagana. Margir af þessum auglýsingavefjum eru til þess gerðir að koma saman kaupendum og seljendum og því er lítið um að skattur eða önnur gjöld séu greidd af sölulaunum. Innlent 13.10.2005 19:26
100 ár frá því að fyrsta loftskeytið barst hingað til lands Eitt hundrað ár eru liðin í dag frá því að fyrsta loftskeytið barst til Íslands. Þennan dag komst landið í daglegt fréttasamband við útlönd. Slík skeytasending markaði jafnframt mikil þáttaskil því þá urðu frjáls fjarskipti að veruleika hér á landi. Loftskeytið barst frá Poldhu í Cornwall á Englandi til loftskeytastöðvar Marconi's Wireless Telegraph Company á Rauðará í Reykjavík (nú Höfði). Innlent 13.10.2005 19:25
Netnotkun óvíða meiri Rúm 80 prósent allra íslenskra heimila eru tengd internetinu og er það hlutfall það hæsta í gervallri Evrópu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Hagstofa Íslands hefur gert. Innlent 13.10.2005 19:25
86% Íslendinga nota Netið daglega Hlutfall heimila með nettengingu er hvergi hærra í Evrópu en á Íslandi. 88 prósent Íslendinga nota tölvu og 86 prósent nota Netið nær daglega. Innlent 13.10.2005 19:25
GPRS-þjónusta hjá Og Vodafone Og Vodafone hefur gert samning við Landssíma Íslands um GPRS-reikiþjónustu. GPRS er gagnflutningsþjónusta fyrir farsíma og gerir notendum kleift að miðla myndum, hreyfimyndum og gögnum. Einnig er hægt að vafra um á Netinu og sýsla með tölvupóst. Innlent 17.10.2005 23:41
SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun. Innlent 13.10.2005 19:23
Ísland dýrast í öllum flokkum Íslenskir neytendur greiddu hæsta verð í Evrópu fyrir ADSL tengingar sínar á síðasta ári samkvæmt úttekt dönsku Tækni og fjarskiptastofnunarinnar. Greiddu Íslendingar rúmar sex þúsund krónur fyrir 512 kb/s áskrift á mánuði meðan Hollendingar, þar sem verðið var ódýrast, greiddu aðeins tæpar tvö þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:22
Barnakláms leitað hjá Íslendingi Tölvubúnaður, disklingar og myndbönd eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík vegna gruns um að þar sé að finna barnaklám. Eigandinn, 32 ára karlmaður, var handtekinn í gær og yfirheyrður. Europol stýrði aðgerðum gegn barnaklámhring í 13 löndum. Innlent 13.10.2005 19:22
Síminn hættur sekúndumælingum Póst- og fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á breytingum sem Síminn hefur gert á tímamælingu símtala. Annan júní hætti fyrirtækið að innheimta gjöld samkvæmt sekúndumælingu í einstaklingsáskriftum farsíma. Innlent 13.10.2005 19:22
Lýðræði og frelsi bannorð í Kína Kínverskir bloggarar fá skammir frá ritskoðurum ef þeir skrifa inn orð eins og „lýðræði“, „frelsi“ eða „mannréttindi“. Þeim er sagt að slíkt orðbragð sé bannað. Erlent 13.10.2005 19:22
Tölvuþrjótur laus gegn tryggingu Gary McKinnon, 39 ára gamall Breti sem sakaður er um að hafa brotist inn í 53 tölvur Bandaríkjahers, varnarmálaráðuneytis og Varnarmálaskrifstofu Bandaríkjanna (Pentagon), auk Bandarísku geimrannsóknastofnunarinnar (NASA) á árunum 2001 og 2002, var í gær látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa verið dreginn fyrir dómara. Erlent 13.10.2005 19:20
Varað við símasölu netfyrirtækis Tölvu- og netþjónustan Snerpa varar fólk við símasölu frá erlendu netfyrirtæki. Í tilkynningu frá Snerpu segir að fyrirtækið hafi síðustu daga fengið ábendingar um símasöluherferð netfyrirtækisins þar sem hringjandinn segist vera að aðstoða við skráningu á nafni viðkomandi í lénaskrá. Innlent 13.10.2005 19:19
Kínverjar ritskoða bloggsíður Stjórnvöld í Kína hyggjast taka upp sérstakt eftirlit með bloggsíðum og umræðuvefjum. Opinberrar skráningar vefsíðna hefur lengi verið krafist í Kína. Breska ríkisútvarpið greindi frá því í gær að yfirvöld hefðu nú ákveðið að bloggsíður skyldu einnig lúta ríkisvaldi. Erlent 13.10.2005 19:19
PC World verðlaunar Opera vafrann Greint var frá því í gær að Opera netvafrinn hafi unnið til sérstakra verðlauna tölvutímaritsins PC World, annað árið í röð. Blaðið hampar þar nýjustu útgáfu vafrans, sem kallast Opera 8 og segir hann bæði aðlaðandi og haganlega sniðinn þar sem notagildi fengi að njóta sín. Innlent 13.10.2005 19:18
Klámnetsíður endi á Nú hillir undir að þeir sem halda úti erótískum síðum eða klámsíðum á netinu skái heimasvæði sín undir endingunni ".xxx". Erlent 13.10.2005 19:18
365 og RÚV buðu í UHF-rásir Tvö fyrirtæki, 365 ljósvakamiðlar og Ríkisútvarpið, sendu Póst- og fjarskiptastofnun tilboð í UHF-rásir fyrir dreifingu á stafrænu sjónvarpi út um allt land. Í útboði voru gerðar þær kröfur að dreifinet bjóðenda næðu að lágmarki til 40 sveitarfélaga innan árs frá úthlutun réttinda og til 98 prósenta heimila í landinu innan tveggja ára. Innlent 13.10.2005 19:17
Æ fleiri heitir reitir hjá OgVodafone Sífellt fleiri fyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum upp á Heita reiti (Hot Spot), þráðlausa háhraða nettengingu, frá Og Vodafone. Um 50 veitinga- og kaffihús og ýmiss konar þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri hafa nú þegar tekið þjónustuna í notkun. Innlent 13.10.2005 19:16
Viðgerð á ljósleiðara lokið um miðnætti Gert er ráð fyrir að búið verði að tryggja net og símasamband viðskiptavina Og Vodafone í Mosfellsbæ upp úr miðnætti. Um svipað leyti verður búið að koma á DSL sambandi að nýju á Akranesi. Ljósleiðari var grafinn í sundur við tengivirki nærri Iðntæknistofnun um klukkan 20 sem hafði áhrif á net- og símasamband í Mosfellsbæ og DSL samband á Akranesi. Viðgerð hefur staðið yfir í kvöld og miðar vel áfram. Innlent 13.10.2005 19:14
Takmörk hjá Símanum og Vodafone Auglýsingar Og Vodafone og Símans um ótakmarkað niðurhal á internetinu með sérstökum áskriftarleiðum eru orðin tóm og bæði fyrirtæki setja takmörk á það gagnamagn sem hægt er að fá með þeim hætti í mánuði hverjum. Innlent 13.10.2005 19:11