

Fjórir einstaklingar sem hafa kært framkvæmd Alþingiskosninganna segja mikla og ónauðsynlega leynd hvíla yfir fundum undirbúningskjörbréfanefndar. Nefndin hafi haldið að minnsta kosti 22 fundi en aðeins tveir af þeim verið opnir.
Draga má í efa að öll atkvæði hafi verið talin í endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi samkvæmt rakningu undirbúningskjörbréfanefndar á málsatvikum. Yfirkjörstjórn hafði talið atkvæði nokkurra listabókstafa áður en talningarfólk mætti til endurtalningar.
Í næstu viku gæti dregið til tíðinda í stjórnarmyndunarviðræðum og líklegt er talið að Alþingi komi saman. Vinna undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa er nú á lokametrunum og greinargerð ætti að liggja fyrir á næstu dögum. Næsta vika gæti því orðið tíðindamikil á sviði stjórnmálanna.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og fulltrúi í undirbúningskjörbréfanefnd, segir að það ætti að skýrast öðru hvoru megin við helgina hvenær nefndin gæti farið að ljúka störfum en þetta kom fram í máli hennar í Reykjavík Síðdegis í dag.
Formaður undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa segir að nefndin hafi kannað í hvaða kjördæmum utankjörfundaratkvæði hafi ekki verið innsigluð. Hvert utankjörfundaratkvæði sé í umslagi og því skipti öllu að umbúnaðurinn sé góður. Ótímabært sé að segja til um hvenær nefndin lýkur störfum.
Dósent í stjórnsýslurétti segir að það verði að vera ljóst að ágalli á meðferð kjörgagna hafi raunverulega haft áhrif á niðurstöðu kosninganna, ef hrófla eigi við niðurstöðunni.
Formaður kjörbréfanefndar segir það hafa komið sér á óvart þegar atkvæði merkt Framsóknarflokknum fannst í bunka auðra atkvæða í vettvangsferð í Borgarnesi á miðvikudag. Atkvæðið skipti þó ekki sköpum. Umboðsmaður Pírata telur það eina í stöðunni að láta fyrri talningu gilda.
Gilt atkvæði fannst í bunka sem var merktur auðum atkvæðum í vettvangsferð sem hluti undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa fór í Borgarnes á miðvikudag.
Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna eru farnir að leggja drög að stjórnarsáttmála samkvæmt heimildum fréttastofu. Niðurstöðu gæti verið að vænta í næstu eða þarnæstu viku.
Undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið við að ræða við þá sem kærðu framkvæmd nýliðinna Alþingiskosningar til þingsins. Næstu dagar fara í frekari upplýsingaöflun og í framhaldinu verður ráðist í að skoða þá þætti sem eru matskenndir.
Viðræður formanna stjórnarflokkanna um nýjan stórnarsáttmála ganga vel að þeirra sögn og flest bendir til að þeir muni ná saman um nýja stjórn. Forsætisráðherra segir Alþingi ekki koma saman fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hafi lokið störfum.
Prófessor segir að óreiða í kringum endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi geti rýrt traust kjósenda á stjórnmálum. Aldrei muni nást algjör sátt um niðurstöðuna.
Oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi sem kærði framkvæmd Alþingiskosninganna er viss um að uppkosning fari fram í kjördæminu, sérstaklega í ljósi þeirra gagna sem komu fram í málinu í gær. Það sé eini möguleikinn í stöðunni.
Fyrrverandi Alþingismaður segir ekkert annað í stöðunni eftir fregnir dagsins en að blása til nýrra þingkosninga. Lögreglan á Vesturlandi gaf út í dag sektir á meðlimi yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi en ekki er hægt að fullyrði hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi.
Ekkert bendir til að átt hafi verið við kjörgögn úr Norðvesturkjördæmi sem skilin voru eftir óinnsigluð á talningarsalnum á Hótel Borgarnesi sunnudaginn 26. september. Starfsfólk hótelsins gekk hins vegar um salinn, sem gögnin voru geymd í, án þess að nokkur úr kjörstjórn væri viðstaddur.
Lögreglan á Vesturlandi getur ekki fullyrt út frá upptökum úr öryggismyndavélum hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi. Á upptökum sést fólk ganga inn og út úr salnum eftir að fyrri talningu lauk. Þetta kemur fram í lögregluskýrslu sem fréttastofa hefur undir höndum.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar.
Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar framkvæmd atkvæðatalningar í kjördæminu með sekt.
Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis segir nefndina enn vera að afla gagna og reiknar með að hún fundi stíft þessa vikuna.
Það er álit dómsmálaráðuneytisins að í uppkosningum sé einungis endurtekin atkvæðagreiðsla í því kjördæmi þar sem álitamál eru uppi. Þá séu sömu framboð í kjöri og notast skuli við sömu kjörskrá og í fyrri atkvæðagreiðslu.
Magnús Davíð Norðdahl, lögfræðingur og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum, er hættur að hugsa um kosningamálið í bili og farinn að snúa sér aftur að lögfræðistörfum. Þar á meðal máli sem kom nýlega inn á borð lögfræðistofu hans, um refinn Gústa Jr. sem Vísir hefur fjallað um.
Karl Gauti Hjaltason titlar sig vafaþingmann eftir alþingiskosningarnar í haust. Hann fór yfir framkvæmd kosninganna á Sprengisandi í morgun.
Flestir telja að seinni talning atkvæða í Norðvesturkjördæmi eigi að gilda í nýafstöðnum Alþingiskosningum, eða nær 37%. Á meðan telja um 28% að fyrri talning atkvæða ætti að gilda og tæplega 24% að kjósa ætti aftur í Norðvesturkjördæmi.
Öll yfirkjörstjórnin í Norðvesturkjördæmi er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á kæru Karls Gauta Hjaltasonar vegna endurtalningarinnar.
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa kemur saman á opnum fundi á skrifstofu Alþingis í dag. Fundinum er streymt beint á vef Alþingis og má sjá að neðan.
Alls hafa ellefu manns kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Sex frambjóðendur og fimm almennir borgarar. Fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd segir að óskað verði eftir gögnum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag.
Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á kæru Karls Gauta Hjaltasonar á niðurstöðu kosninganna er lokið og málið nú komið til ákærusviðs.
Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni.
Fyrsti opni fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa verður haldinn í dag og hefst hann klukkan 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og verður gestur fundarins Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.