
Byggingariðnaður

Halda fullum launum í fæðingarorlofi
Verkfræðistofan Mannvit sem starfað hefur frá árinu 1963 heitir COWI frá og með næstu viku. COWI keypti íslensku verkfræðistofuna í fyrra og er nafnabreytingin hluti af sameiningarferli Mannvits við COWI-samstæðuna. Íslensku starfsfólki bjóðast fríðindi á borð við full laun í fæðingarorlofi. COWI sér fyrir sér vöxt og leitar að öflugu starfsfólki.

Bein útsending: Úthlutun úr Aski - mannvirkjarannsóknasjóði
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður styrkir 34 verkefni til nýsköpunar- og mannvirkjarannsókna um alls 101,5 milljón krónur í ár. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra munu afhenda styrkina í dag í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Parísarbyggingar á Íslandi - er það hægt?
Nýlega var sagt frá því í fréttum að hafið væri niðurrif á Íslandsbankahúsinu á Kirkjusandi og skammt er síðan veglegt hús Íslandsbanka við Lækjargötu var rifið. Það var sorglegt að horfa upp á það, en því niðurrifi voru gerð afar góð skil í kvikmyndinni og bókinni Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur, arkitekt.

Að óbreyttu þurfi nýbyggingar ekki að þola jarðskjálfta
Framkvæmdastjóri Staðlaráðs segir mikilvæga þjóðarviðauka við byggingarreglugerð EES ekki enn hafa verið samda vegna skorts á fjárveitingum frá ríkinu. Nýendurskoðaðir evrópskir staðlar, sem þegar eru byrjaðir að taka gildi ytra, taki ekki gildi hérlendis þar sem vantar að aðlaga þá íslenskum aðstæðum.

Skoðunarferð með Sigmundi um nýtt og umdeilt húsnæði þingsins
Smiðja, nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis hefur verið í umræðunni þessa vikuna eftir að þingmenn stigu fram og gagnrýndu aðstöðuna. Við skelltum okkur í túr um húsið í fylgd með miðflokksmanninum Sigmundi Davíð sem er líklega ósáttastur með framkvæmdina.

Verktakar sjá fram á metár í útboðum
Met verður slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár, miðað við þau áform sem kynnt voru á Útboðsþingi í dag. Aðgerðir vegna Grindavíkur gætu þó sett strik í reikninginn en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að frestun stórframkvæmda gæti orðið ein af mótvægisaðgerðunum.

Miklar framkvæmdir boðaðar á árinu
Opinberir verkkaupar boða ríflega tvöföldun í útboðum verklegra framkvæmda. Umfangsmestu útboðin boða Landsvirkjun, Vegagerðin og Nýr Landspítali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greiningu Samtaka iðnaðarins vegna Útboðsþings 2024 sem fram fer í dag.

Góðar útboðsvenjur geta lækkað kostnað
Í þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands er fjárfesting í efnislegum þáttum skipt í þrennt, þ.e. íbúðarhúsnæði, mannvirki atvinnuveganna og opinbera innviði. Sérhæfing fyrirtækja í mannvirkjaiðnaði er skipt upp í samræmi við þessar þrjár meginstoðir.

Tuttugu nýjar íbúðir í byggingu á Laugarvatni
Heimamenn á Laugarvatni vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið því það er svo mikil uppbygging á staðnum og mikið af nýjum húsum í byggingum að sjaldan eða aldrei hefur annað eins sést.

Heilmikið byggt í Borgarnesi
Heilmikil uppbygging á sér nú stað í Borgarnesi enda mikið byggt af nýju húsnæði á staðnum. Borgarbyggð er vaxandi sveitarfélag með sína 4.300 íbúa en íbúafjölgunin hefur verið um sex prósent á ári síðustu árin, sem þykir mjög gott, enda sveitarstjórinn ánægður með stöðu mála.

Verðlaunaðir fyrir umhverfisvænt sementslaust steinlím
Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson hlutu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2023.

Raunverð íbúðaverðs lækkar og kaupkeðjur oftar að rofna
Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um þrjú prósent síðastliðna tólf mánuði. Merki eru um að verulega sé farið að ganga á stofn nýrra íbúða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og þá benda tölur til að kaupkeðjur séu oftar að rofna en einnig fjölgunar íbúða sem teknar eru af sölu án þess að seljast.

Ný sviðsmynd kallar á nýja nálgun í hitun húsa
Við búum hér á landi við þau miklu forréttindi að geta notast við jarðvarma við upphitun húsa. Ákvörðun um að ráðast í þetta mikla verkefni var á sínum tíma aðdáunarverð og gjörbreytti lífsgæðum almennings. Með tímanum höfum við þó orðið góðu vön og þykir stöðugur aðgangur að jarðvarma þar sem hann er til staðar orðinn sjálfsagður.

Íslenskt fyrirtæki á lista Financial Times yfir framúrskarandi fyrirtæki
Íslenska tæknifyrirtækið Treble Technologies, sem sérhæfir sig í hljóðhermun, er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki sem þóttu skara fram úr á árinu.

Staðan á byggingarmarkaði versnar og gjaldþrotum fjölgar mikið
Staða á byggingarmarkaði hefur versnar mikið sem lýsir sér í að minna er flutt inn af byggingarhráefnum, skuldsetning byggingarverktaka hefur aukist og gjaldþrotum í byggingariðnaði hefur fjölgað mikið. Sölutími lítilla íbúða hefur styst samfellt frá í apríl, en merki eru um að jafnvægi sé að nást á fasteignamarkaði.

Fleiri hús byggð í nýja miðbænum á Selfossi
Framkvæmdir við annan áfanga nýja miðbæjarins á Selfossi eru að fara af stað eftir að byggingafulltrúi Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti byggingaráform Sigtún Þróunarfélags á lóðinni við Eyraveg 3-5 við hlið Mjólkurbúsins.

Norvik eignast 95 prósent í nítján milljarða króna félagi
Mikill meirihluta hluthafa í Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði, hefur samþykkt yfirtökutilboð íslenska félagsins Norvik. Norvik á eftir yfirtökuna ríflega 95 prósent hlutafjár í Bergs en átti fyrir um 59 prósent hlut.

Ósáttur við skráningu Byko eftir greiðslu með reiðufé
Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að byggingarvörufyrirtækinu Byko hafi verið heimilt að krefja viðskiptavin sinn um kennitölu og framvísun persónuskilríkja þegar hann ætlaði að greiða fyrir vörur með reiðufé.

Alvöru verkfæri á frábærum tilboðum í svartri viku Verkfærasölunnar
Kolsvört vika er hafin í Verkfærasölunni. Hægt er að gera frábær kaup en 25% afsláttur er af öllum Ryobi verkfærum og 15 til 25% af öðrum vörumerkjum. Kaupauki fylgir kaupum á verkfærum frá Milwaukee og þá eru jóladagatölin frábær glaðningur á aðventunni.

Uppbygging um alla borg
Þessa stundina eru 2853 íbúðir í byggingu í Reykjavík. Uppbyggingin á sér stað um alla borg en stærstu stöku reitirnir eru Heklureitur, Orkureitur og Grensásvegur 1. Þá er byrjað að byggja í Ártúnshöfða, í hverfi þar sem nokkur þúsund íbúðir mun rísa á næstu árum, og nýframkvæmdir eru enn í fullum gangi í Vogabyggð og í Úlfarsárdal.

Bein útsending: Kynningarfundur um uppbyggingu íbúða í Reykjavík
Árviss kynningarfundur borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík fer fram í Sjálfstæðissalnum á Hótel Parliament.

Norvik gerir yfirtökutilboð í nítján milljarða króna félag
Norvik hefur sent tilkynningu til sænsku Kauphallarinnar um að lagt verði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði. Tilboðið hljóðar upp á gengið 44,50 sænskar krónur fyrir hvern hlut í Bergs í reiðufé. Heildarverðmæti hlutafjár Bergs er því áætlað 1,54 milljarðar sænskra króna, sem samsvarar um 19,3 milljörðum íslenskra króna.

70 prósenta samdráttur í nýbyggingum milli ára
Verulegur samdráttur hefur orðið í nýbyggingum milli ára og þá hefur einnig dregið verulega úr sölu nýrra íbúða. Kaupsamningum fjölgar hins vegar almennt milli mánaða.

Seðlabankinn beri skýra ábyrgð á grafalvarlegri stöðu á húsnæðismarkaði
Gríðarlegur samdráttur er í framboði á nýju húsnæði hér á landi. Formaður borgarráðs segir ekki hægt að kenna lóðaskorti í Reykjavík um en hvetur önnur sveitarfélög til að auka lóðaframboð. Formaður fasteignasala bætist í hóp þeirra sem telur Seðlabankann halda fasteignamarkaðnum niðri.

Segir Seðlabankann halda húsnæðismarkaðnum niðri
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er ómyrkur í máli hvað varðar uppbyggingu húsnæðis sem hann segir alltof alltof litla.

Skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar
Nýjar tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýna að framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.683 íbúðum. Mikill samdráttur er þó í fjölda nýrra framkvæmda og nemur hann um 68 prósent á milli ára. Skýr merki eru um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar.

Byggingarfulltrúinn og skjólveggurinn
Oft snúa sér til Húseigendafélagsins eigendur fasteigna sem kvarta sáran yfir hegðun, háttsemi og ósóma nágranna sinna. Eru slík þrætuefni af ólíkum meiði, en algengt er að þau varði frágang á mörkum lóða. Því miður vill það stundum verða að menn telji sér heimilt að ákveða hvernig slíkum frágangi skuli háttað, og ganga til þess verks án samskipta við nágranna aðliggjandi lóðar.

„Algjör kúvending“ bara á þessu ári
Byggja þarf allt að fimm þúsund íbúðir árlega næstu árin á sama tíma og uppbygging hefur dregist verulega saman. Fjöldi nýrra, fullbúinna íbúða sem standa auðar hefur sexfaldast milli ára. Verktaki segir algjöra kúvendingu hafa orðið í bransanum á árinu.

„Rauð ljós“ á íbúðamarkaði og þörf á 5.000 nýjum íbúðum árlega
Byggja þarf 5.000 íbúðir árlega á næstu árum miðað við íbúafjölgun á landinu, sem má meðal annars rekja til aukins aðflutnings erlends vinnuafls. Þá fækkar íbúum í hverri íbúð samfara öldrun þjóðarinnar.

Gert að greiða húsfélagi í Kópavogi 36 milljónir eftir ákvörðun Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Byggingarfélags Gylfa og Gunnars um að taka mál þeirra gegn húsfélaginu Lundi 2 til 6 í Kópavogi. Málið varðar galla þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum.