Hitaði upp fyrir EM með stórleik: Vildi ná þrennunni en þjálfarinn sagði nei Sædís Rún Heiðarsdóttir mætir væntanlega mjög kát til móts við íslenska kvennalandsliðið í fótbolta í vikunni eftir að hafa átt stórleik í lokaleik Vålerenga fyrir EM-frí. Fótbolti 23.6.2025 06:30
Instagram-drottningin mætir Íslandi á EM Alisha Lehmann, vinsælasta knattspyrnukona heims á samfélagsmiðlum, er í svissneska landsliðshópnum sem mætir Íslandi á EM sem hefst eftir tíu daga. Fótbolti 22.6.2025 16:32
Forsetahjónin fengu EM-treyjur frá stelpunum okkar EM kvenna í fótbolta hefst eftir aðeins tíu daga og nú er búið að tryggja að íslensku forsetahjónin geti klæðst landsliðstreyjum á mótinu. Fótbolti 22.6.2025 10:00
Leikmenn sænska kvennalandsliðsins slógust á æfingu Það gengur stundum ýmislegt á þegar sænska kvennalandsliðið kemur saman og það kemur vel í ljós í heimildaþáttum um leið sænska liðsins á Evrópumótið í Sviss. Fótbolti 17. júní 2025 09:04
María og Haug fá ekki að mæta Íslandi á EM Gemma Grainger virðist hafa komið fáum á óvart með vali sínu á norska landsliðshópnum fyrir EM kvenna í fótbolta sem hefst eftir hálfan mánuð. Hún valdi þó hvorki Maríu Þórisdóttur né Liverpool-stjörnuna Sophie Román Haug. Fótbolti 16. júní 2025 14:16
„Tók nokkur símtöl sem voru hundleiðinleg“ Þorsteinn Halldórsson segir það að sjálfsögðu hafa verið erfitt að þurfa að tilkynna sterkum landsliðskonum að þær væru ekki á leiðinni á EM í fótbolta í Sviss í sumar. Hann er hins vegar afar ánægður með þann 23 manna hóp sem hann hefur nú valið. Fótbolti 13. júní 2025 13:24
Svona kynnti Þorsteinn EM-hópinn sinn Það var stór stund í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði í dag þar sem Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, fór yfir val sitt á þeim leikmönnum sem fara fyrir Íslands hönd á EM í Sviss. Fótbolti 13. júní 2025 12:32
Þessar fara á EM fyrir hönd Íslands: Diljá og Amanda en engin Fanndís Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson hefur nú gefið út hvaða 23 leikmenn verða í EM-hópi Íslands sem brátt hefur keppni á Evrópumótinu í fótbolta í Sviss. Fótbolti 13. júní 2025 12:27
Mótherjar Íslands urðu fyrir áfalli rétt fyrir EM Svissneski reynsluboltinn Ramona Bachmann verður ekki með landsliði sínu á Evrópumótinu í knattspyrnu sem hefst í næsta mánuði. Fótbolti 12. júní 2025 13:01
Íslensku konurnar niður um eitt sæti á FIFA-listanum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í fjórtánda sæti á nýjum heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem var opinberaður í morgun. Fótbolti 12. júní 2025 09:01
Sú markahæsta frá upphafi „með hreina samvisku“ Spænska knattspyrnukonan Jenni Hermoso segir „með hreina samvisku“ eftir að ljóst var að hún mun ekki valin í leikmannahóp Spánar fyrir Evrópumótið sem fram fer Sviss í sumar. Fótbolti 12. júní 2025 07:00
„Óhjákvæmilegt að maður brjóti hjarta einhvers“ Samkvæmt belgískum miðlum kom ekkert sérstaklega á óvart í vali Elísabetar Gunnarsdóttur á EM-hópi Belgíu fyrir mótið sem hefst í Sviss eftir þrjár vikur. Hún segir sjálf óhjákvæmilegt að nú séu einhers staðar brostin hjörtu. Fótbolti 11. júní 2025 12:00
„Reynt að halda væntingum niðri og ég spyr mig af hverju?“ Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og fótboltasérfræðingur gerir þá kröfu að liðið komist upp úr riðli sínum á komandi Evrópumóti. Hún væri til í að hafa séð fastari skorður á liðinu og kallar eftir meiri ákefð frá leikmönnum þess. Fótbolti 5. júní 2025 07:31
Tíu leikir í röð án sigurs: Stelpunum okkar ekki gengið svona illa síðan um aldamótin Ísland tapaði gegn Frakklandi í gær og hefur nú farið tíu leiki í röð án sigurs, sem hefur ekki gerst síðan um aldamótin. Fótbolti 4. júní 2025 13:33
England verður án þriggja Evrópumeistara á EM England er ríkjandi Evrópumeistari kvenna og stefnir á að verja titilinn í Sviss í sumar, en mun gera það án þriggja lykilleikmanna liðsins frá síðasta móti. Miðjumaðurinn Fran Kirby er hætt með landsliðinu og miðvörðurinn Millie Bright hefur dregið sig úr hópnum. Þær tvær tilkynntu ákvörðun sína í dag, nokkrum dögum eftir að markmaðurinn Mary Earps hætti með landsliðinu. Fótbolti 4. júní 2025 12:46
Sér á eftir Earps en vill ekki ræða hvað fór þeirra á milli Sarina Wiegman, þjálfari enska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, sér á eftir markverðinum Mary Earps sem lagði nýverið landsliðshanskana nokkuð óvænt á hilluna. Fótbolti 29. maí 2025 23:02
Missti markmannsstöðuna og hætti með landsliðinu Mary Earps, markvörður PSG sem var áður hjá Manchester United, missti stöðuna sem aðalmarkvörður enska landsliðsins og hefur nú tilkynnt að hún sé hætt landsliðsfótbolta. Hún mun því ekki taka þátt í titilvörn Englands á Evrópumótinu í sumar. Fótbolti 27. maí 2025 17:02
Sara sátt við að hafa kvatt landsliðið: „Hélt allt of mörgum boltum á lofti“ Sara Björk Gunnarsdóttir kveðst aldrei hafa séð eftir þeirri ákvörðun sinni að hætta í íslenska landsliðinu í fótbolta, á þeim tveimur og hálfu ári sem síðan eru liðin. Hún fylgist vel með liðinu en nýtur þess að eiga frí með fjölskyldunni þegar landsleikjahlé eru. Fótbolti 27. maí 2025 09:02
Halla forseti, Sveppi og Gummi Ben í nýju tónlistarmyndbandi fyrir EM Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á lokamóti EM í Sviss í byrjun júlí en íslenska knattspyrnusambandið frumsýndi ekki nýja treyju fyrir mótið heldur einnig tónlistarmyndband sem er tileinkað mótinu. Fótbolti 11. maí 2025 23:30
Setti heimsmet en þarf ekki Sveindís Jane að fá að reyna næst? Írska knattspyrnukonan Megan Campbell hefur fengið heimsmet staðfest hjá Heimsmetabók Guinners. Hún er nú sú kona sem hefur náð að kasta lengst úr innkasti. Fótbolti 9. maí 2025 23:32
Svona er nýja landsliðstreyja stelpnanna fyrir EM í sumar Knattspyrnusamband Íslands kynnti í dag nýja keppnistreyju fyrir íslenska kvennalandsliðið á Evrópumótinu í Sviss í sumar. Fótbolti 9. maí 2025 17:52
Bryndís Arna missir af EM Þjálfari Växjö segir að framherjinn Bryndís Arna Níelsdóttir muni missa af Evrópumótinu í sumar vegna meiðsla. Fótbolti 7. maí 2025 15:12
Glódís skilur áhyggjur Steina: „Verið gríðarlega sárt og erfitt“ Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir, sýnir áhyggjum landsliðsþjálfarans varðandi stöðu hennar vegna meiðsla og mögulegri þátttöku á EM í Sviss skilning. Sjálf hefur hún ekki áhyggjur og er á góðri leið. Fótbolti 1. maí 2025 09:32
ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Svo virðist sem Eni Aluko hafi gert sjálfsmark þegar hún gagnrýndi Ian Wright fyrir að taka of mikið pláss í umfjöllun um kvennafótbolta. Enski boltinn 30. apríl 2025 08:30