Bólusetningar

Fór „eins hátt upp í Pfizer“ og hann gat og lagði inn beiðni
Forstjóri íslenska fyrirtækisins Controlant, sem kemur m.a. að dreifingu á bóluefni Pfizer við kórónuveirunni, kveðst hafa komið hugmyndum um Ísland sem rannsóknarverkefni á framfæri við Pfizer. Hann hafi fengið þau svör að beiðninni yrði komið áleiðis.

Bóluefninu er ekki dælt í æð heldur vöðva
Kári Stefánsson sá sig knúinn til að skamma Björn Inga Hrafnsson fyrir rugl í tengslum við bólusetningar.

Telur ólíklegt að bóluefni AstraZeneca fái leyfi í janúar
Ólíklegt er að Lyfjastofnun Evrópu geti samþykkt markaðsleyfi fyrir bóluefni AstraZeneca gegn Covid í janúar á næsta ári, ef marka má orð aðstoðarframkvæmdastjóra stofnunarinnar.

Fengu óvart fimmfaldan skammt bóluefnis
Fjórir starfsmenn hjúkrunarheimilis í norðurhluta Þýskalands voru fluttir á sjúkrahús eftir að átta starfsmenn fengu fyrir mistök fimmfaldan, ráðlagðan skammt af bóluefni gegn Covid-19. Starfsmennirnir fjórir voru fluttir á sjúkrahús til að gæta allrar varúðar eftir að þeir fóru að finna fyrir flensulíkum einkennum.

Allt bóluefnið fyrir fyrri sprautu forgangshópanna farið frá Distica
Sólarhring eftir komu fyrstu skammtanna af Pfizer-bóluefninu til landsins er búið að senda það til heilbrigðisstofnana um allt land. Þetta kemur fram á heimasíðu Distica sem sér um dreifingu bóluefnisins hér á landi.

„Það fer vonandi að styttast í annan endann á Covid-19“
Útlit er fyrir að þriðja bylgja Covid-19 faraldursins sé í nokkurri lægð að mati Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Hann vonar að upphaf bólusetningar hér á landi marki upphaf endaloka Covid-19.

„Þetta var bara eins og að láta sprauta sig við flensu“
Þorleifur Hauksson, íbúi á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, var í dag fyrsti Íslendingurinn utan heilbrigðisstéttar til þess að fá bóluefni gegn Covid-19.

Fyrstu Íslendingarnir bólusettir: „Þetta var bara ekkert mál“
Það tók ekki nema um þrjátíu sekúndur að bólusetja fyrstu einstaklingana gegn Covid-19 hér á landi, þegar fjórir heilbrigðisstarfsmenn í framlínunni fengu bóluefni Pfizer beint í æð.

Dreifing bóluefnisins hafin á landsbyggðinni
Dreifing bóluefnis Pfizer á landsbyggðina hófst í morgunsárið en fyrsta sendingin fer á 21 stað úti á landi.

Halda skrá yfir þá sem neita að láta bólusetja sig
Heilbrigðisyfirvöld á Spáni munu halda skrá yfir þá einstaklinga sem neita að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Skránni verður deilt með öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Meirihluti fylgjandi því að bólusetning gegn Covid-19 verði skylda
Sex af hverjum tíu sem tóku afstöðu í nýrri könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir Fréttablaðið vilja að bólusetning gegn Covid-19 eigi að vera skylda hér á landi.

Svona er dagskráin á sögulegum bólusetningardegi
Bólusetning með bóluefni Pfizer/BioNTech við kórónuveirunni hefst á morgun, þriðjudaginn 29. desember, klukkan níu. Bólusett verður samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra; fyrst verður framlínustarfsfólk í heilbrigðisþjónustu bólusett og að því búnu íbúar á hjúkrunarheimilum og öldrunarstofnunum.

Sprautan breytir litlu fyrst um sinn á heimili þess fyrsta
Bólusetning 20 heimilismanna á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð fyrir kórónuveirunni á morgun mun breyta litlu fyrir starfið fyrst um sinn, að sögn forstöðumanns. Allir séu þó mjög spenntir fyrir bóluefninu, þar á meðal Þorleifur Hauksson, íbúi Seljahlíðar og sá fyrsti utan heilbrigðisstéttar sem bólusettur verður fyrir veirunni á Íslandi.

Bólusetningar farnar af stað víðs vegar um heim
Bólusetningar við kórónuveirunni eru nú farnar af stað víðs vegar um heiminn. Hjálparsamtök lýsa áhyggjum af skorti á bóluefni í fátækari löndum.

Ísland fær 80 þúsund viðbótarskammta frá Pfizer
Ísland fær 80 þúsund viðbótarskammta af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer í gegnum viðbótarsamning Evrópusambandsins um kaup á 100 milljónum skammta af efninu. Samningur Íslands um kaupin verður undirritaður á morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Ætla að sprauta fimmtíu manns á korteri
Ragnheiður Helga Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir ekkert stress fyrir bólusetningunni á morgun. Aðeins tilhlökkun. Tíu til tólf þúsund skammtar komu til landsins í dag, í duftformi, sem verður blandað í fyrramálið á Suðurlandsbraut.

Klár í sprautuna: „Það sögðu allir nei, nema ég“
Þorleifur Hauksson verður fyrsti íbúi á hjúkrunarheimili til þess að fá bólusetningu við Covid-19 hér á landi. Eins og fram hefur komið eru framlínustarfsmenn og íbúar á hjúkrunarheimilum í forgangi.

Útlit fyrir að sex skammtar leynist í hverju glasi
Útlit er fyrir að hægt verði að ná sex skömmtum í stað fimm úr hverju glasi af bóluefninu frá Pfizer og BioNTech sem barst hingað til lands í morgun. Einfaldur útreikningur leiðir í ljós að skammtarnir telja þá tólf þúsund í stað tíu þúsund.

„Þigg bólusetningu þegar kemur að mér“
Starfsmönnum bráðamóttöku Landspítalans eru farin að berast boð í bólusetningu. Þetta staðfestir Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir göngudeildar Covid-19. Sjálfur hefur hann ekki fengið boð en segist afar rólegur; mikilvægast sé að bólusetja aldraða og þá sem eru í nánum samskiptum við sjúklinga.

Þjóðin bregst við komu bóluefnisins
Íslensk heilbrigðisyfirvöld tóku á móti fyrstu skömmtunum af bóluefni Pfizer og BioNTech á ellefta tímanum í morgun við hátíðlega athöfn þar sem þakkarræður voru fluttar og blómvendir afhentir.

Telur að samstarf við Pfizer geti svarað mikilvægum spurningum fyrir heimsbyggðina
Þórólfur Guðnason telur að mögulegt rannsóknarsamstarf við bandaríska lyfjaframleiðandann Pfizer um að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar sem fyrst, geti svarað mikilvægum spurningum um bóluefnið fyrir heimsbyggðina alla.

Nákvæmlega tíu mánuðir frá því að SARS-CoV-2 greindist fyrst hér á landi
Í dag eru nákvæmlega tíu mánuðir frá því að veiran kom til landsins, sagði Alma D. Möller landlæknir við athöfnina þegar bóluefnið frá Pfizer og BioNTech kom í hús hjá Distica í morgun.

Ekki stórir kassar en sögulegir, segir heilbrigðisráðherra
„Þetta er stór dagur hjá okkur öllum,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, þegar 10 þúsund skammtar af bólefni Pfizer og BioNTech komu í hús hjá Distica rétt í þessu.

Bóluefnið afhent
Íslensk heilbrigðisyfirvöld taka á móti fyrsti skömmtunum af bóluefni Pfizer og BioNTech með formlegum hætti klukkan 10.30.

„Þetta er langþráður dagur“
„Þetta er langþráður dagur. Að geta tekið á móti fyrstu sendingu af bóluefni. Það er bara alveg frábært.“ Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um daginn í dag en von er á fyrstu sendingu af bóluefni Pfizer til landsins í dag.

Fullkomin óreiða
Við þingmenn Miðflokksins fórum fram á að Alþingi væri kallað saman milli jóla- og nýárs til þess að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú blasir við vegna bólusetningar gegn Covid 19.

Bóluefnið kemur með flugi í fyrramálið
Það hefur vart farið fram hjá neinum að von er á fyrstu skömmtunum af bóluefni gegn covid-19 til landsins í fyrramálið. Bólusetning hófst víðast hvar í aðildarríkjum Evrópusambandsins í dag en von er á tíu þúsund skömmtum af bóluefni Pfizer-BioNTech með fyrstu sendingunni sem væntanleg er með flugi til Íslands í fyrramálið.

Misskilningur að óttast um þjóðina vegna Pfizer-rannsóknar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það algjöran misskilning að óttast það að íslenska þjóðin verði notuð undir lokarannsókn á bóluefni bandaríska lyfjaframleiðandans Pfizer.

Stefna að því að bólusetja milljónir Breta í janúar
Útlit er fyrir að bóluefni AstraZeneca og Oxford fari í dreifingu í Bretlandi þann 4. janúar næstkomandi. Bóluefnið hefur enn ekki verið samþykkt af yfirvöldum þar í landi en búist er við því heilbrigðisyfirvöld gefi grænt ljós á allra næstu dögum.

Vísindamenn kalla eftir útgöngubanni á landsvísu vegna afbrigðisins
Breskir vísindamenn innan SAGE-hópsins, hóps vísindamanna sem veita stjórnvöldum ráðgefandi álit, hafa biðlað til stjórnvalda þar í landi að herða aðgerðir til muna og setja á útgöngubann á landsvísu.