Eldgos og jarðhræringar
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 130 ›
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13.6.2024 20:40
Lokað í Bláa lóninu vegna gasmengunar Lokað verður í Bláa lóninu til hádegis í það minnsta í dag vegna slæmra loftgæða. Í nótt var suðaustanátt og gasmengun úr eldgosinu í Sundhnúkagígum blés til norðvesturs yfir Reykjanesbæ og Bláa lónið. Innlent 13.6.2024 08:31
„Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“ Hópur kylfinga var mættur að leika sinn daglega hring á Húsatóftavelli í nágreni Grindavíkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnudaginn síðastliðinn eftir óvissu sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Meðal þeirra var einn af stofnendum Golfklúbbs Grindavíkur sem segir því fylgja þvílík sæla að geta snúið aftur á völlinn. Golf 12.6.2024 10:01
Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga Gasmengun minnkar töluvert í dag og næstu daga með auknum vindi. Gosið mallar áfram og meginstraumur hrauns mjakast til norðurs og norðvesturs. Innlent 12.6.2024 08:28
„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. Golf 12.6.2024 08:00
Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Gosmóða frá eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni í dag. Þorsteinn Jóhannsson, umhverfisfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir vindátt stjórna því hvert gosmóðan fer hverju sinni. Í dag hafi verið hægviðri í fyrsta sinn frá því að gosið hófst og því hafi móðan lagst yfir höfuðborgarsvæðið. Innlent 11.6.2024 21:47
Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi og má því búast við að það gjósi aftur á Reykjanesskaganum. Gosmóða mælist yfir höfuðborginni og víðar á Suðurlandi og Suðvesturlandi og er fólki ráðlagt frá því að hreyfa sig utandyra. Innlent 11.6.2024 13:01
Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. Innlent 11.6.2024 12:06
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. Innlent 11.6.2024 10:41
Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 11.6.2024 07:41
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10.6.2024 23:42
Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Framkvæmdir við Grindavíkurveg hefjast væntanlega í vikunni en til skoðunar er að færa veginn vestar eftir að hraun rann yfir hann um helgina. Vegurinn fór um helgina undir hraun í þriðja sinn síðan eldvirknin hófst við Sundhnúk. Innlent 10.6.2024 21:45
Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni „Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“ Innlent 10.6.2024 09:48
Áætlanir gera ráð fyrir að hraun fari yfir lagnir Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúka er nú í um 700 metra fjarlægð frá lögnum orkuversins HS orku. Framkvæmdastjóri segir að búið sé að gera allt sem hægt er til að tryggja órofna starfsemi orkuverksins og að atburðir gærdagsins hafi ekki haft nein áhrif. Innlent 9.6.2024 12:01
Vonast til að opna Bláa lónið á næstu dögum Bláa lónið verður lokað í dag og á morgun hið minnsta. Að sögn framkvæmdastjóra er vonast til þess að hægt verði að opna aftur í næstu viku. Skilyrði fyrir opnun eru að tvær flóttaleiðir frá staðnum séu færar. Innlent 9.6.2024 10:12
Hrauntungan mallar löturhægt áfram Virki í gígnum sem enn er er virkur í eldgosinu við Sundhnúksgíga er svipuð og undanfarna daga. Hrauntungan sem rann yfir Grindavíkurveg í gærmorgun hreyfist löturhægt eins og er, en viðbragsaðilar eru viðbúnir því að annað áhlaup gæti hafist á ný. Innlent 9.6.2024 07:44
Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga rann með miklum krafti yfir Grindavíkurveg í dag, eftir að hraunflæði jókst skyndilega í nótt. Hraunbreiðan er nú í um áttahundruð metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt áfram. Innlent 8.6.2024 22:53
Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að lokast hafi tímabundið fyrir flæði úr sunnanverðum gígnum á Sundhnúksgígaröðinni í dag, með þeim afleiðingum að hraunrennsli breyttist. Innlent 8.6.2024 20:18
Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell og klukkan hálf ellefu í morgun náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Álykta má að áhlaupinu sé lokið en búast má við að það mjatlist eitthvað áfram. Innlent 8.6.2024 15:54
„Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir atburðarrás morgunsins við Svartsengi hafa verið viðbúna. Helstu vandræðin núna séu gróðureldar sem kviknað hafa út frá hrauninu og slökkviliðið berst við. Hann segir Bláa lónið ekki í hættu. Innlent 8.6.2024 12:29
Hraun runnið að Grindavíkurvegi Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga er komið að Grindavíkurvegi norðan varnargarðanna við Svartsengi. Búið er að loka gati í varnargarðinum auk þess sem búið er að loka Bláa lóninu. Innlent 8.6.2024 09:54
Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Kona á níræðisaldri segir ekki hægt að lýsa atburðunum í Grindavík þann 10. nóvember með orðum. Þrátt fyrir erfiðleika undanfarna mánuði dreymir hana um að komast aftur heim. Innlent 8.6.2024 08:01
Land er hætt að síga í Svartsengi Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig hafi stöðvast í Svartsengi og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé nú sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 7.6.2024 16:45
Hraungígur brast í morgun Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með. Innlent 7.6.2024 10:16
Rafmagn komið á í Grindavík Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en þar varð rafmagnslaust skömmu eftir að gos hófst við Sundhnúkagígaröðina í síðustu viku. Innlent 6.6.2024 00:19
Hraunrennsli frá gígnum virðist vera orðið meinlítið Sú breyting varð í nótt á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur að virknin færðist úr þremur gígum niður í einn. Verulegur kraftur er enn í gosinu. Innlent 4.6.2024 23:04
Einn gígur virkur og kvikusöfnun heldur áfram Nýleg gögn benda til þess að kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi líkt og áður. Gígurinn sem ennþá er virkur er staðsettur rétt við þann gíg sem gaus lengst úr í eldgosinu sem hófst 16. mars og endaði 9. maí. Land heldur áfram að síga ólíkt því sem hefur áður sést í eldgosunum á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 4.6.2024 17:00
Vinna í sex sólarhringa til að koma rafmagni á Allt kapp er nú lagt á að koma rafmagni aftur á í Grindavík en reiknað er með að það verði komið á síðar í vikunni. HS Veitur hóf í gærkvöldi að setja upp varatengingu til bæjarins eftir að skemmdir urðu á loftlínu við Grindavík í síðustu viku þegar að hraunflæði frá áttunda gosinu á svæðinu kveikti í loftlínu við bæinn. Unnið verður á vöktum næstu sex sólarhringa til að ljúka verkinu. Innlent 4.6.2024 15:37
150 skjálftar mælst norðaustan við Öskju 150 jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Öskju síðustu tvo sólarhringa en þeir eru allir undir þrír að stærð. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist 2,9 að stærð í nótt. Innlent 4.6.2024 13:10
Virðist hafa dregið verulega úr krafti gossins Verulega virðist hafa dregið úr krafti eldgossins við Sundhnúk um klukkan tvö í nótt, að mati Eldfjalla og náttúruvárhóps Suðurlands. Innlent 4.6.2024 09:57