Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Njarðvík 90-74 | KR í undanúrslit Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. janúar 2016 21:30 Haukur Helgi á ferðinni í kvöld. Vísir/ernir
Íslandsmeistarar KR komust tiltölulega þægilega í undanúrslit Powerade-bikars karla í körfubolta í kvöld þegar þeir lögðu Njarðvík, 90-74, í DHL-höllinni. Njarðvík var yfir eftir fyrsta leikhlutann, 22-19, en KR tók forystuna í öðrum leikhluta og fór langt með að ganga frá leiknum í þeim þriðja sem liðið vann, 20-12. Í öðrum og þriðja leikhluta fór hin firnasterka KR-vörn virkilega í gang og fékk liðið mikið af auðveldum stigum úr hraðaupphlaupum. Hinn 17 ára gamli Þórir Guðmundur Þorbjarnarson kom inn af krafti og skoraði níu stig á fimm mínútum. Sá ungi var alveg óstöðvandi þegar hann kom inn á í fyrri hálfleiknum. Aðalmaður KR, eins og þegar liðið vann Njarðvík síðast, var bandaríski miðherjinn Michael Craion. Kanalausir Njarðvíkingar réðu ekkert við hann undir körfunni og skoraði Craion 26 stig og tók tíu fráköst.KR-Njarðvík 90-74 (19-22, 27-17, 20-12, 24-23)KR: Michael Craion 26/10 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot, Brynjar Þór Björnsson 16/4 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 11, Ægir Þór Steinarsson 9/5 fráköst/8 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 8/5 fráköst, Darri Hilmarsson 8/4 fráköst, Helgi Már Magnússon 5/5 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5, Pavel Ermolinskij 2/6 fráköst.Njarðvík: Haukur Helgi Pálsson 27/15 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 19/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 15, Hjörtur Hrafn Einarsson 10/4 fráköst, Logi Gunnarsson 3 Craion var svo öflugur undir körfu Njarðvíkur að hann tók meira að segja sjö sóknarfráköst og hélt þannig sóknum KR á lífi auk þess sem hann skoraði mikið sjálfur eftir að taka sóknarfráköstin. Njarðvík sárvantar alvöru tank inn í teiginn, en liðið fær ekki Michael Craig eftir að ljóst var að hann er á sakaskrá. Ljónin leita því logandi ljósi að nýjum Bandaríkjamanni. Haukur Helgi Pálsson, sem skoraði 27 stig og tók 15 fráköst í kvöld, hélt Njarðvík á lífi lengi vel auk Odds Rúnars Kristjánssonar sem skoraði 19 stig og hitti úr fimm af níu þriggja stiga skotum sínum. Á endanum skorti Njarðvík meira framlag frá öðrum leikmönnum liðsins, en þar til Logi Gunnarsson skoraði þriggja stiga körfu í rusltíma undir lokin voru aðeins fjórir leikmenn gestanna búnir að skora. KR-bekkurinn skoraði 24 stig á móti 0 hjá Njarðvík, en munar þar mikið um að leikmenn eins og Þórir Guðmundur, Björn Kristjánsson og Pavel Ermolinskij eru að koma inn af bekknum. Breidd KR-liðsins náttúrlega rosaleg eins og allir vita. Njarðvík er ekki komið á þann stað að geta ógnað jafn góðu liði og KR, en með Kana undir körfunni eru þarna góðir skotmenn sem myndu njóta góðs af því.Logi reynir að komast að körfu KR í kvöld.vísir/ernirLogi: Okkur vantar mann inn í teiginn Logi Gunnarsson skoraði aðeins þrjú stig fyrir Njarðvík í kvöld en KR-vörnin hafði góðar gætur á honum. Hann var ágætlega ánægður með spilamennsku Ljónanna þrátt fyrir tapið. "Við spiluðum vel á löngum köflum á móti sterku liði þannig við getum tekið eitthvað jákvætt úr þessu og byggt á því þó við ætluðum hér að vinna," sagði hann við Vísi eftir leik. "Við klárum bensínið í þriðja leikhluta og verðum svolítið þreyttir í smá stund. Þá vantar einn inn í teiginn sem hægt er að henda inn á þegar við erum svona mikið fyrir utan. Við bíðum bara eftir einhverjum sem getur hjálpað okkur í því." "Nú þegar erum við að spila vel án svona manns, en til þess að taka næsta skref er eðlilegt að við fáum einn svoleiðis. Það er nóg eftir að tímabilinu þannig við erum bara rólegir. Við erum bjartsýnir þrátt fyrir tapið í kvöld," sagði Logi. Logi var ekki að skjóta jafn mikið og oft áður, en sem fyrr segir var hann stífdekkaður af heimamönnum. "Ég skaut ekki nema tvisvar sinnum í fyrri hálfleik enda var KR að spila góða vörn. Ég var ekkert að þröngva skotum og lét bara aðra um þetta," sagði Logi. "Ég fann samt að maður verður svolítið þreyttur þegar maður er yfirdekkaður. Þá á maður ekki að vera taka of mikið af erfiðum skotum." Oddur Rúnar Kristjánsson kom frá ÍR um áramótin og hefur tekið við leikstjórandahlutverkinu. Hann er skotglaður mjög og skoraði 19 stig í dag. "Það er gott og mikilvægt að hafa skotmann eins og Odd með sér þegar ég er tekinn úr umferð og yfirdekkaður allan völlinn. Eðlilega með einn útlending hefði þetta ekki verið jafn slæmt þó ég var ekki að skora því maður á ekki bara að skjóta til að skjóta," sagði Logi Gunnarsson.Úr leiknum í kvöld.vísir/ernirBrynjar Þór: Tapið svíður enn þá "Mér fannst við alltaf vera með undirtökin í leiknum en Oddur og Haukur spiluðu frábærlega og héldu Njarðvík á lífi," sagði Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, við Vísi eftir leikinn. Brynjar skoraði 16 stig fyrir KR í kvöld og kom virkilega sterkur inn í fjórða leikhluta þar sem þriggja stiga körfur hans fóru langt með að ganga frá leiknum. "Þeir hittu stórum skotum allan leikinn og svöruðu öllu sem við gerðum á meðan við hittum aldrei stóru skotunum sem gátu komið okkur fyrr í þægilega forystu," sagði Brynjar Þór, sem vonast til að KR-liðið fari að detta almennilega í gírinn. "Við erum ekki enn búnir að hitta á leik þar sem allt liðið er að hitta og allir eru á róli. Ég hlakka mikið til þess að það gerist." "Við erum að spila flotta vörn og yfirleitt voru þetta Oddur eða Haukur sem skoruðu flottar körfur. Hjörtur og Ólafur voru reyndar flottir líka. En við sjálfir eigum helling inni, sérstaklega í sókninni." KR-liðið er í toppbaráttu Dominos-deildarinnar eins og búist var við en er búið að tapa þremur leikjum sem kemur mörgum á óvart. Liðið hefur verið án lykilmann stóran hluta tímabilsins. "Þetta er búið að vera erfiður vetur, alveg sá erfiðasti undanfarin þrjú ár. Við erum að glíma við mikil meiðsli og aldrei náð að stilla upp okkar sterkasta liði. Það er kominn tími á að allir verði heilir því þá erum við svakalega sterkir," sagði Brynjar Þór. Brynjar Þór segist hafa gaman að bikarnum og langar fátt meira en að komast aftur í Höllina og svara fyrir tapið gegn Stjörnunni í fyrra. "Tapið í fyrra svíður enn þá. Það er ekki hægt að segja neitt annað. Maður fær tár í augun við að hugsa um þann leik. Það var hræðilegt. Við viljum komast aftur í Höllina og svara fyrir þetta," sagði Brynjar Þór. "Þegar maður er búinn að spila tíu ár í deildinni eru þetta leikirnir sem standa upp úr. Maður hlakkar kannski ekki beint til einhverja leikja í nóvember en fyrir svona leiki fær maður fiðring," sagði Brynjar Þór Björnsson.Tweets by @Visirkarfa1
Körfubolti Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Fleiri fréttir „Hef meiri áhyggjur af þessu með Kára“ Kallaði Giannis barn eftir að hann neitaði að taka í höndina á honum Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Fullkominn og frábær leikur Tryggvi dugði ekki Teitur og Sævar fóru fögrum orðum um Kane í Körfuboltakvöldi Martin með tvöfalda tvennu í sigri á toppliðinu „Þegar svona gír er á okkur þá erum við fjandi góðir“ Uppgjörið: Grindavík - Þór Þ. 99-70 | Grindvíkingar svöruðu kallinu Grindavík fær 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi Kane Sendu Bronny James niður í G-deild og allir miðarnir seldust upp Fyrstir í NBA í níu ár til að vinna tíu fyrstu leiki sína Jónína með þrennu og Ármannsstelpur ósigraðar á toppnum Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Álftanes sá til þess að Haukar eru enn án sigurs Uppgjörið: KR - Njarðvík 86-80 | Fyrsti sigur KR-inga á heimavelli Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum Leik lokið: Höttur - Valur 83-70 | Heimamenn á beinu brautina Gaz-leikur Pavels: „Þurfa ekki ótrúlegir hlutir að gerast“ Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Davíð Tómas dæmir landsleik í Helsinki í dag Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“ „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Sjá meira
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“
Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum