Innlent

Nemendur segja sig úr áföngum til að draga úr álagi í faraldrinum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Menntamálaráðherra segir vitað að nemendur séu að segja sig úr áföngum til að draga úr álagi í fjarkennslu.
Menntamálaráðherra segir vitað að nemendur séu að segja sig úr áföngum til að draga úr álagi í fjarkennslu. vísir/Vilhelm

Menntamálaráðherra segir allt kapp lagt á að koma framhaldsskólanemum aftur í staðnám. Dæmi séu um að ungmenni segi sig úr áföngum til að draga úr álagi. Unnið sé að því að auka rafræna sálfræðiþjónustu fyrir nemendur í faraldrinum.

Sérstök umræðu um stöðu skólamála í kórónuveirufaraldrinum hefur farið fram á Alþingi í morgun. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir tölur ekki benda til þess að brotthvarf sé að aukast.

„En við vitum það hins vegar að það sem nemendur hafa verið að gera, er að segja sig jafnvel úr einum og einum áfanga til að minnka álagið,“ sagði Lilja og bætti við að aðalatriðið væri að halda fólki í skóla, þrátt fyrir að það hægi mögulega á námsframvindu.

„Við setjum allan metnað í það að setja framhaldsskólanema, um leið og aðstæður leyfa, í eins mikið staðnám og við mögulega getum.“

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, vísaði í félagslega einangrun ungmenna og spurði hvort stjórnvöld muni bæta sérstaklega við sálrænan stuðning fyrir námsmenn til að koma þeim í gegnum erfiðan tíma.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.vísir/VIlhelm

„Þjóðhagslegur kostnaður við brottfall eins framhaldsskólanema er um 18 milljónir króna. Sé brottfallið hefðbundið er heildarkostnaðurinn við alla sem flosna upp úr námi um 23 milljarðar króna. En í dag getum við væntanlega áætlað að brottfallið verði talsvert meira en í hefðbundnu ári.“

Hann spurði jafnframt hvort kennarar ættu von á sérstakri álagsgreiðslu vegna faraldursins. Lilja svaraði því ekki beinlínis en sagði að stjórnvöld hafi aukið fjármagn til framhaldsskóla þannig að skólarnir eigi að hafa burði til að koma til móts við álag starfsfólks.

Lilja segir áhersla lagða á að auka sálfræðiþjónustu.

„Við höfum verið að gera samninga við fyrirtæki sem eru að bjóða upp á þjónustu á netinu og við erum að stuðla enn frekar að því að nemendur geti leitað til námsráðgjafa, til sálfræðinga og annarra sem geta stutt við bakið á þeim á þessum tímum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×