Verst geymda leyndarmál Íslands að ég væri á leið í Val Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. desember 2020 08:01 Tryggvi Hrafn í leik gegn Val að Hlíðarenda. Næst þegar Tryggvi leikur á Hlíðarenda verður hann í rauðu en ekki gulu. Vísir/Daníel Þór Tryggvi Hrafn Haraldsson sagði það verst geymda leyndarmál Íslands að hann hefði verið á leið í Val eftir tímabilið með ÍA nú í sumar. Þetta kom fram í viðtali Tryggva Hrafns við Fótbolta.net.
Í gær gekk hinn 24 ára gamli Tryggvi Hrafn Haraldsson í raðir Íslandsmeistara Vals frá ÍA. Undir lok tímabils hér heima síðasta sumar fór Tryggvi Hrafn á láni til norska B-deildarfélagsins Lilleström og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni þar í landi. Fyrir það var hann ítrekað orðaður við Val og í dag samdi hann við félagið. Þar mun hann leika ásamt Arnóri Smárasyni, samherja sínum hjá Lilleström, en Arnór samdi við félagið nýverið. „Þeir eru búnir að vera í sambandi við mig síðan í sumar og á meðan ég var úti. Aðdragandinn var þannig séð langur en ákvörðunin var tekin fyrir stuttu. Ég náði samkomulagi við Val í sumar og það var ekkert annað í boði á Íslandi en að fara í Val,“ sagði Tryggvi Hrafn meðal annars í viðtalinu við Fótbolta.net. Skagamaðurinn knái segir einnig að honum hafi litist betur á að koma heim til Íslands og leika með Val heldur en að taka slaginn með Lilleström í Noregi. Hann útilokar þó ekki að spila erlendis þegar fram líða stundir. Hann hefur nú þegar ágætis reynslu af því en hann lék með Halmstad í Svíþjóð frá 2017 til 2018. „Það eru kostir báðum megin, maður þarf að horfa á þetta út frá öllum þáttum. Mér finnst heillandi að fara í lið sem ætla að vera best og ætla að vinna allt,“ sagði sóknarmaðurinn um hvað heillaði mest við Val. „Það vita það allir að Valur stefnir á titla á hverju tímabili og það verður markmiðið áfram. Til að vera samkeppnishæfir þá þarf stóran og góðan hóp. Ég held að ég passi fínt þarna inn í. Ég vil halda boltanum og spila góðan sóknarbolta. Ég er spenntur að byrja þetta,“ sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Valur Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira