Vandræði Chelsea halda áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 28. desember 2020 19:22 Oliver Giroud skoraði mark Chelsea í kvöld en hann er nú kominn með 89 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Catherine Ivill/Getty Images) Vandræði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni halda áfram en liðið hefur einungis einn af síðustu fimm leikjum liðsins í deildinni. Í dag gerði liðið 1-1 jafntefli við Aston Villa. Frank Lampard, stjóri Chelsea, gerði sex breytingar á liðinu sem steinlá 3-1 fyrir Arsenal á útivelli fyrir leikinn gegn spútnikliði Villa í dag. Það skilaði sér því einn þeirra sem kom inn í liðið skoraði fyrsta markið á 34. mínútu. Það gerði Oliver Giroud með skalla og þannig stóðu leikar í hálfleik. Most Premier League goals scored by French players: Thierry Henry (175) Nicolas Anelka (125) Olivier Giroud (89)All of them played for Arsenal, two of them for Chelsea. (@eToro) pic.twitter.com/KFjsaKnTQG— Squawka Football (@Squawka) December 28, 2020 Síðari hálfleikur var fimm mínútna gamall er Anwar El Ghazi jafnaði metin og John McGinn skaut meðal annars boltanum í slá áður en yfir lauk. Lokatölur þó, 1-1. Chelsea er í sjötta sæti deildarinnar með 26 stig en Villa er sæti ofar með jafn mörg stig en á þó tvo leiki til góða á Chelsea. A point apiece after a lively encounter at Stamford Bridge#CHEAVL pic.twitter.com/j9avydfjGF— Premier League (@premierleague) December 28, 2020 Fótbolti Enski boltinn