Spjald þjálfarans festist við rassinn á Rut og fór með henni inn á völlinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2021 09:30 Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, tekur hér spjaldið af Rut Jónsdóttur sem hafði ekki hugmynd um að það væri þar. S2 Sport Rut Jónsdóttir tók leikhléssspjald þjálfara síns með inn á völlinn í miðjum leik í Olís deildinni í handbolta um helgina án þess að hafa hugmynd um það. Einn maður var fyrstur að átta sig.
Rut og félagar hennar í KA/Þór komust á toppinn í Olís deildinni í handbolta um helgina eftir endurkomusigur á ÍBV fyrir norðan. Rut skoraði fimm mörk í leiknum en KA/Þór tryggði sér 24-23 sigur eftir að hafa unnið síðustu tuttugu mínútur leiksins 11-6. Frekar fyndið atvik kom upp á lokamínútum leiksins þegar KA/Þór stelpur voru að fara í eina mikilvægustu sókn leiksins. Allt í einu óð þjálfari ÍBV, Sigurður Bragason, inn á völlinn og að Rut Jónsdóttur. Sigurður hafði tekið eftir því að leikhlésspjald þjálfara KA-liðsins, var fast við rassinn á Rut. Rut hafði farið af velli og hvílt í vörninni á undan og Andri Snær Stefánsson hafði væntanlega sett spjaldið frá sér á varamannabekkinn. Rut fór síðan inn á völlinn í sóknina en harpixið sá til þess að leikhlésspjaldið var fast við rassinn á henni. Sigurður Bragason sá spjaldið og fór inn á völlinn til að taka það af henni. Hann skilaði því síðan alla leið til þjálfara KA hinum megin á hliðarlínunni. Dómararnir höfðu stöðvað leikinn en Sigurður slapp með refsingu enda hjálpsamur með eindæmum. Það var hlegið að atvikinu en svo haldið áfram. Hér fyrir neðan má sjá atvikið. Klippa: Rut og þjálfaraspjaldið
Olís-deild kvenna KA Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira