Man City með þrettán stiga forskot þökk sé De Bruyne Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. janúar 2022 14:25 Kevin De Bruyne fagnar sigurmarki sínu með Bernardo Silva. Matt McNulty/Getty Images Mikil spenna var fyrir leik dagsins á Etihad-vellinum í Manchester þar sem tvö efstu lið Englands mættust. Heimamenn voru mun betri í upphafi leiks en þeim tókst ekki að komast í gegnum þétta vörn gestanna. Fór það svo að staðan var enn markalaus í hálfleik og það var helst að frétta að Marcos Alonso hafi haldið út eftir að fá gult spjald strax á sjöundu mínútu. Síðari hálfleikur var nokkuð svipaður þeim fyrri. Heimamenn sóttu og sóttu en Chelsea beið í skotgröfunum. Þegar 20 mínútur lifðu leiks braust stíflan. Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, hreinsaði þá upp völlinn er Phil Foden pressaði hann stíft. Aymeric Laporte vann boltann í loftinu og kom honum á João Cancelo sem fann De Bruyne. Það var langt á milli lína hjá Chelsea svo De Bruyne ákvað að vaða að marki. Hann komst alla leið upp að D-boga vítateigs gestanna áður en þeir settu pressu á miðjumanninn öfluga. Í þann mund lét hann vaða á markið og söng boltinn í netinu. Frábært hlaup, gott skot en boltinn var langt frá því út við stöng og spurning hvort Kepa hefði átt að gera betur. Staðan orðin 1-0 og reyndust það lokatölur. Heimamenn voru töluvert nær að bæta við marki heldur en gestirnir að jafna. Var þetta 12. sigur Manchester City í röð í ensku úrvalsdeildinni. A classy Kevin De Bruyne finish makes it 12 #PL wins in a row for Man City#MCICHE pic.twitter.com/Nu4U52Maoy— Premier League (@premierleague) January 15, 2022 Sigurinn þýðir að Manchester City er með 56 stig á toppi deildarinnar á meðan Chelsea er í 2. sæti með 43 stig. Liverpool er svo með 42 stig í 3. sæti en á tvo leiki til góða. Enski boltinn Fótbolti