Jólakveðja Matvælaráðherra Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar 6. desember 2022 14:00 Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra ritaði grein í síðasta Bændablað undir fyrirsögninni „Bjartsýni í sauðfjárrækt“. Greinin skildi eftir fleiri spurningar en hún svaraði hjá undirrituðum og fleirum sbr. nýlega skoðanagrein Þuríðar Lillý Sigurðardóttur (Vonbrigði fyrir starfstétt sauðfjárbænda). Undanfarnar vikur hefur hópur einstaklinga og hagsmunasamtaka reynt að vekja athygli á breytingu sem tekur gildi í upphafi næsta árs varðandi niðurtröppun greiðslumarks í sauðfjárrækt. Fundir sauðfjárbænda undanfarin ár hafa ályktað í þá veru og samþykkt ályktanir í þá veru án mótatkvæða. Nú ber hins vegar svo við að ráðherra málaflokksins hlustar ekki og heldur finnast mér það kaldar kveðjur í upphafi aðventu. Aðstoðarmaður ráðherrans, Kári Gautason og varaþingmaður Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi gæti kynnt sér málið betur og skoðað áhrifin af þessari breytingu á sitt kjördæmi. Breytingin mun hafa hvað mest áhrif á hans kjördæmi ásamt því að koma illa við yngri bændur sem hafa verið að reyna fjárfesta í greininni undanfarin ár. Í skýrslunni „Rekstur sauðfjárbúa 2018-2020“ kemur fram að breytileiki í afkomu sauðfjárbúa byggi að nokkru leiti á greiðslumarkseign búanna. Þetta þýðir að fleiri sauðfjárbú mun glíma við meiri ófyrirsjáaleika í rekstarumhverfi sínu á komandi ári og kemur til með að veikja hryggjarstykkið í sauðfjárframleiðslunni sem eru stærri sauðfjárbúin þar sem yngra fólkið býr. Við síðustu endurskoðun búvörusamninga var komið á fót markaði með greiðslumark þar sem mun meiri eftirspurn er en framboð af greiðslumarki. Ætli matvælaráðherra hafi lesið samantekt Byggðastofnunnar um stöðu sauðfjárræktarinnar sem kom út í maí sl. Þar segir: „Miðað við ofangreindar forsendur og uppreikning á helstu kostnaðarliðum, að teknu tilliti til rekstrartaps undanfarinna ára, er ljóst að forsendur sauðfjárbúskapar að óbreyttum afurðatekjum og opinberum greiðslur eru brostnar. Líklegt er að rekstrarniðurstaða meðalsauðfjárbúsins sem hlutfall af tekjum verði neikvæð um allt að 50% næstu tvö árin a.m.k. og að rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir verði neikvæð um í kringum 25%.“ Líklega hefur Svandís ekki lesið þetta þegar hún talar um „bjartsýni í sauðfjárrækt“ nema það sé ákveðin tegund af kaldhæðni hjá ráðherra. Það væri klókt af Svandís að fresta umræddri aðgerð til 1. janúar 2024 til að endurskoðun sú sem fram á að fara á árinu 2023 verði unnin á grundvelli fagmennsku og nýjustu gagna um stöðu búgreinarinnar. Matvælaráðherra hefur hins vegar valið að gera ekki neitt og láta samstöðu bænda í léttu rúmi liggja sem er vonandi ekki fyrirboði þeirra vinnubragða sem hún og hennar ráðuneyti ætlar að ástunda í endurskoðun komandi árs með því að henda fram innihaldslausum fyrirsögnum. Gagnlegt væri að ráðherra gæfi kost á beinu samtali um málefnið, t.a.m. þegar fyrirhuguð heimsókn hennar í Dalabyggð verður að veruleika. Höfundur er sauðfjárbóndi og sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dalabyggð Landbúnaður Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Orkunýlendan Ísland? Bjarni Jónsson Skoðun Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Fjárfesting í háskólum Magnús Karl Magnússon Skoðun Þar sem náttúran tapar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Gætum við verið betri hvert við annað? Jakob Frímann Magnússon Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun Skortur á serótónín Gunnar Dan Wiium Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa Skoðun Ég vil ekki þennan veruleika Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gætum við verið betri hvert við annað? Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þar sem náttúran tapar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í háskólum Magnús Karl Magnússon skrifar Skoðun Orkunýlendan Ísland? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ekki þennan veruleika Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Grímulaus grænþvottur Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Skortur á serótónín Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Þegar sorgin bankar upp á Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Alzheimer - mennska og mildi Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsa bætt um 64 milljarða Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þetta er ekki allt að koma með fjárlagafrumvarpinu Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Sjá meira
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun
Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason skrifar
Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun