Innlent

Kæra Ómar til lög­reglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar

Árni Sæberg skrifar
Ómar Valdimarsson, til vinstri, birti persónuupplýsingar umbjóðenda sinna og tölvupóstsamskipti við þau. Einar Hugi Bjarnason, til hægri, hefur tekið að sér hagsmunagæslu fyrir hönd fólksins og segir ætla að kæra Ómar fyrir birtinguna.
Ómar Valdimarsson, til vinstri, birti persónuupplýsingar umbjóðenda sinna og tölvupóstsamskipti við þau. Einar Hugi Bjarnason, til hægri, hefur tekið að sér hagsmunagæslu fyrir hönd fólksins og segir ætla að kæra Ómar fyrir birtinguna. Vísir

Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins.

Vísir fjallaði um dóm sem féll 28. febrúar í máli Hrafntinnu Eirar Hermóðsdóttur og Ágústs Leós Björnssonar gegn flugfélaginu Neos vegna ógreiddra flugbóta en parið var þar dæmt til að greiða 350 þúsund króna málskostnað. 

Í kjölfar umfjöllunar Vísis birti Ómar færslu á Facebooksíðu Flugbóta.is þar sem hann gerði að því skóna að þau Hrafntinna Eir og Ágúst Leó kynnu annað hvort ekki að lesa sér til gagns eða hefðu hreinlega verið að ljúga. Máli sínu til stuðnings birti hann tölvupóstsamskipti sín við umbjóðendur sína opinberlega.

Hafi hótað parinu málsókn

Parið hefur nú leitað til Einars Huga Bjarnasonar lögmanns, sem gætir hagsmuna þess í deilum við Ómar. Í samtali við Vísi á dögunum sagði Einar Hugi að í kjölfar viðtals við parið á Vísi hafi Ómar sett sig í samband við þau með töluvpósti og hótað „þeim málsókn dragi þau ummæli sín ekki til baka og á auk þess í hótunum við móður annars umbjóðanda míns.“

Eftir þau samskipti hafi hann „birt færslu á Facebook þar sem hann rekur málið út frá sínum bæjardyrum, talar niður til fyrrum skjólstæðinga sinna og birtir skrifleg samskipti sín við þau ásamt ljósmynd af vegabréfi annars umbjóðanda míns,“ sagði Einar.

Facebook færslan hafi núna verið lagfærð og ljósmynd af vegabréfi tekin út. Hins vegar standi eftir skrifleg trúnaðarsamskipti parsins við lögmanninn og þau orð sem hann láti falla í þeirra garð.

Láta krók koma á móti bragði

Einar Hugi hefur upplýst Vísi um að umbjóðendur hans hafi tekið ákvörðun um að kvarta yfir vinnubrögðum Ómars til Lögmannafélags Íslands og Persónuverndar. 

Þá hafi þau tekið ákvörðun um að leggja fram kæru til lögreglu vegna birtingar lögmannsins á viðkvæmum persónulegum upplýsingum/gögnum um þau á samfélagsmiðlunum.


Tengdar fréttir

Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals

Par segir Ómar Valdimarsson lögmann hafa hótað þeim málsókn eftir að þau sögðu hann hafa höfðað dómsmál fyrir þeirra hönd án vitneskju þeirra. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebook og sagði þau skorta lesskilning. Parið skoðar hvort tilefni sé til að kæra birtingu Ómars á persónuupplýsingum þeirra og íhuga að kvarta yfir honum til úrskurðarnefndar lögmanna.

Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því

Par sem sótti bætur í gegnum flugbaetur.is vissi hvorki að dómur hefði fallið í málinu né að þeim hefði verið dæmt að greiða málskostnað. Formaður lögmannafélagsins segir að slíkt eigi ekki að geta gerst. Ómar R. Valdimarsson sem rekur Flugbætur segir að skjólstæðingar beri ekki kostnaðinn þegar mál fari á þennan veg.

Kröfðust þegar greiddra bóta og fá feitan reikning

Ungt par sem höfðaði mál til heimtu staðlaðra skaðabóta frá ítölsku flugfélagi situr uppi með 350 þúsund króna málskostnaðarreikning. Flugfélagið hafði þegar greitt parinu bæturnar og gott betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×