Fótbolti

Sjáðu Andra Lucas skora og Wales svara með þremur mörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen skorar hér markið sitt í kvöld og kemur Íslandi í 1-0.
Andri Lucas Guðjohnsen skorar hér markið sitt í kvöld og kemur Íslandi í 1-0. Getty/Michael Steele

Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir en Wales svaraði með þremur mörkum í leiknum mikilvæga í Cardiff í Þjóðadeildinni í kvöld.

Andri Lucas skoraði fyrsta markið í leiknum strax á áttundu mínútu eftir að íslenska liðið hafði pressað Walesverja framarlega í upphafi leiks.

Orri Steinn Óskarsson átti þá skalla sem var varin en Andri Lucas var réttur maður á réttum stað og skilaði frákastinu í markið. Hans áttunda mark fyrir íslenska landsliðið.

Wales jafnaði metin á 32. mínútu þegar Liam Cullen skallaði inn frábæra fyrirgjöf Brennan Johnson.

Cullen skoraði síðan sitt annað mark og kom Wales yfir í 2-1 í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Íslenska liðið tapaði boltanum illa á miðjunni og fékk á sig skyndisókn. Hákon varði fyrst vel en Cullen náði að fylgja á eftir.

Wales bætti síðan við þriðja marki sínu á 65. mínútu þegar Brennan Johnson slapp í gegn eftir sendingu frá umræddum Liam Cullen.

Það má sjá mörkin úr leiknum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×