Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Maddison fagnar öðru marka Brennan Johnson í 3-1 sigri Tottenham Hotspurs á Southampton.
James Maddison fagnar öðru marka Brennan Johnson í 3-1 sigri Tottenham Hotspurs á Southampton. Getty/Sebastian Frej

Southampton féll úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag eftir tap á móti Tottenham á útivelli. Tottenham vann leikinn 3-1.

Eftir sigur Úlfanna í gær varð ljóst að Southampton varð að vinna í dag til að eiga möguleika á því að bjarga sér frá falli.

Það tókst ekki, liðið er lang neðst með tíu stig og 22 stigum frá öruggu sæti þegar aðeins 21 stig er eftir í pottinum.

Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson skoraði tvívegis fyrir Tottenham í fyrri hálfleiknum.

Fyrra markið skoraði hann á 13. mínútu eftir sendingu frá Djed Spence en það síðara á 42. mínútu eftir sendingu frá James Maddison.

Lucas Bergvall skoraði reyndar mark á 33. mínútu en Varsjáin dæmdi mark Svíans af vegna rangstöðu.

Mateus Fernandes minnkaði muninn í 2-1 á 90. mínútu en Southampton tókst ekki að bæta við fleiri mörkum og fall í ensku b-deildina er því staðreynd.

Mathys Tel gerði hlutina enn verri með því að innsigla sigurinn með marki úr vítaspyrnu á sjöttu mínútu í uppbótatíma.

Þetta var mjög langþráður sigur hjá Tottenham sem hafði spilað fjóra deildarleiki í röð án þess að fagna sigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira