Upp­gjörið: Aftur­elding - Valur 0-2 | Engin vand­ræði á Val í Mos­fells­bæ

Hinrik Wöhler skrifar
Valur varð fyrsta liðið til að sigra Aftureldingu á heimavelli á tímabilinu.
Valur varð fyrsta liðið til að sigra Aftureldingu á heimavelli á tímabilinu. Vísir/Guðmundur

Valur vann 2–0 sigur á Aftureldingu í Bestu deild karla í dag og varð þar með fyrsta liðið til að sigra Mosfellinga á þeirra heimavelli á tímabilinu.

Mosfellingar byrjuðu leikinn betur og áttu nokkur ágætis tækifæri á fyrstu mínútum leiksins. Þeir náðu þó ekki að ógna marki Valsmanna almennilega.

Sævar Atli Hugason átti fínt skot á 27. mínútu við vítaveig Vals en Frederik Schram var vel staðsettur og sló boltann frá.

Valsmenn áttu fá færi framan af leik og áttu erfitt með að opna vörn Aftureldingar.

Á 33. mínútu fiskaði Lúkas Logi Heimisson vítaspyrnu fyrir Val en hann féll við í teignum eftir baráttu við Georg Bjarnason. Patrick Pedersen fór á vítapunktinn og skoraði af öryggi, setti boltann ofarlega á mitt markið og kom Valsmönnum yfir.

Í kjölfarið kom fínn kafli hjá gestunum og bættu þeir við marki skömmu síðar. Aftur var það Lúkas Logi Heimisson með boltann vinstra megin í vítateignum og gaf lága sendingu fyrir. Þar var Aron Jóhannsson mættur og skaut að marki Mosfellinga.

Skotið var ekki fast en boltinn fór í leikmann Aftureldingar, Bjart Bjarma Barkarson, og þaðan í netið. Jökull Andrésson náði ekki að bregðast við í marki Mosfellinga og Valsmenn komnir tveimur mörkum yfir.

Frederik Schram, markvörður Vals, hefur haldið hreinu í tveimur leikjum í röð.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Staðan var 2-0 í hálfleik og ljóst var að leikmenn Aftureldingar þurftu að sína sínar bestu hliðar í seinni hálfleik til að eygja von á jafntefli eða sigri.

Seinni hálfleikur var rólegur framan af og einkenndist af talsverðu miðjumoði. Mosfellingar reyndu að ýta liðinu ofar upp völlinn en náðu ekki að finna glufur á þéttri vörn Valsmanna.

Seinni hálfleikur var ekki mikið fyrir augað og ljóst var að Valsmenn voru sáttir við fenginn hlut. Gestirnir leyfðu Mosfellingum að halda í boltann en gáfu fá færi á sér.

Mosfellingar vildu fá vítaspyrnu á lokamínútum leiksins þegar boltinn virtist fara í hönd Jakobs Franz Pálssonar inn í vítateig Vals en fengu ekkert fyrir sinn snúð.

Eftir fremur rólegan seinni hálfleik flautaði Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, til leiksloka og stóðu Valsmenn uppi sem sigurvegarar í Mosfellsbæ í dag.

Atvik leiksins

Mosfellingar voru með ágætis tök á leiknum fram að fyrsta marki Valsmanna og það benti ekki margt til þess að Valur væri að fara skora framan af. 

Mark Patrick Pedersen úr vítaspyrnu á 34. mínútu virtist slá heimamenn út af laginu. Danska markahróknum brást ekki bogalistin og kom Valsmönnum á bragðið.

Stjörnur og skúrkar

Lúkas Logi Heimisson átti þátt í báðum mörkum Vals í dag en hann fiskaði vítaspyrnuna og síðan lagði hann boltann fyrir á Aron Jóhannsson í seinna markinu. Aron var sömuleiðis sprækur á miðjunni og átti einn af sínum bestu leikjum í Valstreyjunni í sumar.

Lúkas Logi Heimisson fiskaði vítaspyrnu og gaf stoðsendingu.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Georg Bjarnason varð á í messunni þegar hann braut á Lúkasi Loga á 33. mínútu. Hann var vissulega óheppinn þar sem hann var að hreinsa frá en rak fótinn í Lúkas sem féll við í kjölfarið.

Dómarar

Helgi Mikael Jónasson dæmdi leikinn í Mosfellsbæ en heimamenn reyndu að malda í móinn þegar þeir fengu dæmda á sig vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik. Georg Bjarnason, varnarmaður Aftureldingar, stjakaði við Lúkasi Loga sem féll við í teignum en Helgi Mikael var í góðri stöðu til að meta brotið og benti á punktinn.

Mosfellingar gerðu tilkall til þess að fá vítaspyrnu í leiknum, bæði í fyrri og seinni hálfleik, en urðu ekki að ósk sinni. Magnús Már Einarsson, þjálfari Mosfellinga, krækti sér í gult spjald fyrir mótmæli. Það má líklega færa rök fyrir því að heimamenn áttu skilið eina uppsafnaða vítaspyrnu, ef svo má að orði komast.

Stemning og umgjörð

Mosfellingum tekst ávallt vel til að skapa góða umgjörð kringum heimaleikina. Það var blásið til fjölskylduhátíðar á Hlégarði fyrir leik þar sem hið kynngimagnaða lukkudýr Mosfellinga, Ísfuglinn, hélt uppi fjörinu.

Það var rjómablíða í Mosfellsbænum og rúmlega 700 áhorfendur mættu á Malbikstöðina að Varmá í dag.

Viðtöl

Magnús Már: „Fullt af atvikum í hinum vítateignum“

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, beið ósigur á heimavelli í dag.

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, þurfti að sætta sig við fyrsta tapið á heimavelli í sumar. Hann var ánægður með kraftmikla byrjun hjá sínum mönnum og sér fleiri ljósa punkta eftir leikinn í dag samanborið við tapið á móti KA í síðustu umferð.

„Þeir skoruðu tvö og við skoruðum ekki, það fór með þetta. Við sköpuðum okkar færi og góðar stöður, sérstaklega fyrsta hálftímann. Það var frábær kafli hjá okkur og sáttur með frammistöðuna, miklu betri en í síðasta leik. Þeir nýttu sínar sóknir betur og þar lá þetta í dag,“ sagði Magnús eftir leik.

Magnús Már gat ekki mótmælt vítaspyrnunni sem Mosfellingar fengu á sig í fyrri hálfleik en telur þó að lærisveinar hans hefðu átt að fá eitthvað fyrir sinn snúð í leiknum.

„Já, það var vítaspyrna en það er fullt af atvikum í hinum vítateignum sem sérfræðingarnir í Stúkunni hljóta að skoða. Ég treysti mér ekki í það, þar sem ég er allt of litaður til að taka ákvörðun þar. Ég vildi allavega fá eina vítaspyrnu í þessum leik, það er bara eins og það er,“ sagði Magnús Már.

„Það er hægt að skoða hvað við getum gert betur. Við eigum að skora í þessum leik án þess að fáum vítaspyrnu og verja markið okkar betur,“ bætti þjálfarinn við.

Mosfellingar náðu ekki að skapa sér hættuleg færi í seinni hálfleik og segir Magnús að það sé erfitt að komast í gegnum sterka og reynslumikla vörn Valsmanna.

„Mér finnst við vera að reyna en þeir eru komnir fyrir aftan boltann og verja fenginn hlut, sem maður skilur. Þeir drepa tempóið í leiknum og gera það vel. Þeir eru með gríðarlega reynslu og geta tekið tempóið vel úr leiknum. Þetta var mikið stopp í seinni hálfleik og við náðum ekki alveg takti. Það er bara vel gert hjá þeim, þeir vörðust vel. Öflugt lið, mjög vel mannað lið og erfitt að brjóta þá á bak aftur.“

Magnús var þó sáttur við að leikmenn hans sýndu baráttu til enda og reyndu að koma boltanum í netið fram á síðustu augnablik leiksins.

„Ég er ánægður með trúna hjá strákunum og við vorum að reyna allan tímann. Fram á síðustu sekúndu vorum við að reyna og banka en það er bara erfitt á móti öflugu varnarmúr Valsmanna,“ sagði Magnús Már endingu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira