Sænsku stelpurnar sluppu með skrekkinn í lokin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Filippa Angeldahl fagnar sigurmarki sínu með Johannu Rytting Kaneryd.
Filippa Angeldahl fagnar sigurmarki sínu með Johannu Rytting Kaneryd. Getty/Giuseppe Velletri

Svíþjóð vann 1-0 sigur á Danmörku í nágrannaslag á Evrópumóti kvenna í fótbolta í Sviss í kvöld en þetta var fyrsti leikur liðanna á mótinu.

Filippa Angeldal skoraði eina mark leiksins á 55. mínútu.

Danska stórstjarnan Pernille Harder var hársbreidd frá því að jafna metin á lokamínútunum þegar hún hátti þrumuskot í slána en þær sænsku sluppu þar með skrekkinn.

Sigurmarkið hjá Angeldal kom eftir frábært þríhyrningaspil við Kosovare Asllani.

Svíþjóð hafði unnið 6-1 stórsigur á Dönum í Þjóðadeildinni fyrr í sumar en dönsku stelpurnar lærðu greinilega á þeim skelli.

Sænska liðið var samt mun betra liðið, meira með boltann og skapaði sér mun betri færi.

Danska liðið sótti í sig veðrið á lokamínútunum og reyndi að fá eitthvað út úr leiknum. Það tókst ekki og Svíarnir eru í fínum málum í riðlinum sem inniheldur einnig Þýskaland og Pólland.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira