Lögreglan í Ósló beitti mótmælendur táragasi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. október 2025 23:53 Lögregla beitti táragasi á mótmælendur en segir engan hafa hlotið líkamlegan skaða af. AP Tuttugu og tveir voru handteknir og táragasi var beitt þegar til átaka kom á mótmælum við Ullevaal-leikvanginn í Ósló. Þar atti norska landsliðið kappi við það ísraelska í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á næsta ári.
Um þúsund manns mótmæltu fyrir þátttöku Ísraela í alþjóðlegum íþróttakeppnum fyrir utan leikvanginn. Viðbúnaður lögreglu vegna mögulegra átaka var umtalsvert. Fjöldi lögreglumanna voru á vettvangi íklæddir óeirðabúningum og með hjálma með andlitshlífum, gasgrímur og kylfur. Til átaka kom þegar mótmælendur reyndu að brjótast í gegnum girðingu.AP Lögregla fylgdi hópi norskra stuðningsmanna sem gengu inn á leikvanginn sveiflandi ísraelskum fánum að innganginum til að koma í veg fyrir samstuð. Þegar leikurinn hófst var enn talsvert af mótmælendum fyrir utan, og sömuleiðis talsvert af lögreglumönnum. Lögreglan hafði komið girðingar til að halda mótmælendum fjarri leikvanginum. Þegar um klukkutími var liðinn af leiknum hafði talsvert fækkað í hópi mótmælenda en enn töldu þeir um tvö hundruð. Það kastaðist í kekki milli mótmælenda og lögreglunnar þegar hinir fyrrnefndu reyndu að brjóta sér leið í gegnum girðingarnar. Lögreglan svaraði með táragasi. Lögregla beitti táragasi á mótmælendur en segir engan hafa hlotið líkamlegan skaða af.AP Gabriel Langfeldt yfirlögregluþjónn og yfirmaður á vettvangi sagðist ekki hafa haft annarra kosta völ. „Við reyndum að gefa fyrirmæli, þeim var ekki fylgt og því var táragasi beitt eftir að þeir rifu niður girðingu,“ sagði hann í samtali við Verdens gang. Lögreglan hóf þá að leiða mótmælendur burt frá leikvangssvæðinu og þá kom aftur til átaka og sautján mótmælendur voru handteknir. Norðmenn sigruðu Ísrael af öryggi og unnu leikinn með fimm mörkum gegn engu.
Noregur Palestína Ísrael Fótbolti HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sjá meira