Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kristján Már Unnarsson skrifar 16. apríl 2026 22:20 Tómas Ingason er framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Fyrir aftan hann er ein af þremur Dash 8 Q200-vélum félagsins. Sigurjón Ólason Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá farþega að ganga um borð í Q200-vél Icelandair á leið til Ísafjarðar síðdegis. Þetta er styttri Dash 8-tegundin sem félagið nýtir innanlands. Lengri Q400 vélarnar taka 76 farþega en þessar minni 37 farþega. Þegar Icelandair tilkynnti í fyrra að flugi til Ísafjarðar yrði hætt var sú ástæða gefin upp að lengri flugbrautir á Grænlandi gerðu notkun þeirra þangað óþarfar. Ekki væru fjárhagslegar forsendur til þess að reka þær eingöngu í Ísafjarðarflugi. En er staðan núna breytt? Tvær af Dash 8 Q200-vélum Icelandair á Reykjavíkurflugvelli í dag.Sigurjón Ólason „Já, með þeim samningum sem við erum búin að ná við Vegagerðina núna er myndaður rekstrargrundvöllur fyrir þessar Q200-vélar okkar til næstu fjögurra ára,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. „Og það er bara gríðarlegt ánægjuefni fyrir okkur og vonandi Ísafjarðarbúa líka að reksturinn á þessum vélum sé tryggður.“ -Þannig að þær verða áfram í flotanum? „Þær verða áfram í flotanum. Og þetta eru bara þær vélar sem að henta best í flug til Ísafjarðar, í krefjandi veður og stuttar flugbrautir. Þessar vélar hafa staðið sig gríðarlega vel og munu gera það áfram,“ segir Tómas hér í sjónvarpsfréttinni: Samningurinn felur í sér ríflega helmingslækkun frá því verði sem Icelandair bauð upphaflega, sem var 3,5 milljarðar króna. Samið var um 1,7 milljarða króna meðgjöf ríkisins næstu fjögur ár. En hvers vegna gat Icelandair lækkað sig um 52 prósent? „Það gerist að stærstum hluta í gegnum það að við erum að tala um minni áætlun heldur en var í upphaflegu útboðsgögnunum, um 28 prósent ef ég man rétt. En síðan er það bara þannig að við settumst niður með Vegagerðinni og skoðuðum þessi mál ítarlega og fundum leiðir til þess að mætast á miðri leið,“ svarar Tómas. Ísafjarðarvélin í flugtaksbruni á Reykjavíkurflugvelli síðdegis.Sigurjón Ólason Q200 vélarnar eru jafnframt aðalvélarnar í Hornafjarðarflugi sem Icelandair hreppti í fyrra eftir útboð. „Sem gengur virkilega vel. Og við höfum heyrt mjög miklar ánægjuraddir frá bæjarbúum og þeim sem nýta flugið. Sjáum líka notkun hjá ferðamönnum á þessu flugi til Hafnar. Nýtingin hefur verið heldur meiri heldur en við gerðum ráð fyrir í upphafi, þannig að það er mjög ánægjulegt. Að sama skapi er mikilvægt fyrir okkur að halda þessum flota áfram í innanlandsfluginu. Hann er náttúrulega orðinn mjög lítill ef við værum ekki með þessar vélar í rekstri. Þannig að þetta eykur á rekstraröryggi og styrkir innanlandsflugið í heild sinni að ná þessum samningum í dag,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair.
Fréttir af flugi Icelandair Ísafjarðarbær Bolungarvík Súðavíkurhreppur Sveitarfélagið Hornafjörður Reykjavíkurflugvöllur Byggðamál Samgöngur Tengdar fréttir Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur. 16. apríl 2026 12:24 Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56 Hreyflaskipti á flugvél dýrari en einbýlishús „Það er allt dýrt í flugi. Það er bara svoleiðis,“ svarar Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, þegar spurt er hversvegna fargjöldin séu svona dýr. Hann nefnir sem dæmi hreyflaskipti á Dash 8-vélunum. 27. febrúar 2026 08:28 Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13 Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. 25. febrúar 2026 14:15 Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Sjá meira
Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur. 16. apríl 2026 12:24
Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56
Hreyflaskipti á flugvél dýrari en einbýlishús „Það er allt dýrt í flugi. Það er bara svoleiðis,“ svarar Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, þegar spurt er hversvegna fargjöldin séu svona dýr. Hann nefnir sem dæmi hreyflaskipti á Dash 8-vélunum. 27. febrúar 2026 08:28
Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13
Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. 25. febrúar 2026 14:15