Íslenski boltinn

Leikur FH og Þórs færður vegna frosts

Andri Broddason skrifar
Þór getur með sigri haldið áfram í Bestu deild karla á næsta ári.
Þór getur með sigri haldið áfram í Bestu deild karla á næsta ári. Hulda/Vísir

FH og Þór mætast í gríðarlega mikilvægum leik í dag en í morgun var ákveðið að færa leikinn. Hann átti upprunalega að fara fram í Kaplakrika en mun nú fara fram á Pepsi-vellinum í Laugardal.

Mikið frost var í nótt og hefur grasið í Kaplakrika ekki náð að jafna sig eftir kuldann og er því völlurinn óleikfær. Pepsi-völlurinn var varavöllur og mun leikurinn vera spilaður þar á gervigrasi.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Þór þar sem liðið getur með sigri bjargað sér frá falli og tryggt sér áframhaldandi sæti í Bestu deild karla á næsta ári. Nágrannar Þórs í KA eru í fallsæti en eru aðeins einu stigi frá Þór.

KA þyrfti helst að vinna sinn leik gegn ÍBV og vonast til þess að Þór geri annaðhvort jafntefli eða tapi. Ef KA gerir jafntefli og Þór tapar þá er KA með betri markatölu og mun þannig ná að bjarga sér frá falli. Það er því ljóst að annar helmingur Akureyrar verður ósáttur eftir leiki dagsins.

Leikur FH gegn Þór og KA gegn ÍBV eru báðir í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar og hefjast leikirnir klukkan 14.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×