Súðavíkurgöng verða í næstu samgönguáætlun Innviðaráðherra segir stefnt að þvi að jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar verði í næstu samgönguáætlun stjórnvalda. Úrbótum í vegakerfinu hafi verið raðað eftir áhættusvæðum og þau svæði væru mörg á Íslandi. Innlent 20. janúar 2022 13:52
Katrín Jakobsdóttir ekki forsætisráðherra Það getur verið flókið að heita Katrín Jakobsdóttir og það þekkir Katrín sjálf best. Innlent 19. janúar 2022 20:04
Sakar ríkisstjórn og lífeyrissjóði um andvaraleysi gagnvart þjóðaröryggi Þingmaður Flokks fólksins gagnrýndi ríkisstjórnina og lífeyrissjóði harðlega á Alþingi í dag fyrir andvaraleysi í tengslum við sölu Símans á Mílu til erlends fjárfestingafyrirtækis sem enginn vissi hverjir ættu. Þeir sem staðið hafi á bakvið söluna væru ekki þekktir fyrir að bera hag almennings fyrir brjósti. Innlent 19. janúar 2022 19:20
Ríkisstjórnin þarf að gefa skýr svör um framtíðarsýn í heimsfaraldri Í viðtali við Fréttablaðið um mitt síðasta sumar talaði Þórdís Kolbrún Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins um stefnumótunarvinnu ríkisstjórnarinnar um stefnu og framtíðarsýn í viðbrögðum við heimsfaraldrinum. Skoðun 19. janúar 2022 18:01
Fjarskiptafrumvarp gæti fælt erlenda fjárfesta Frumvarp sem veitir ráðherra heimild til að binda erlenda fjárfestingu skilyrðum með vísan til þjóðaröryggis gæti fælt fjárfestingu frá landinu. Þetta er mat Samtaka iðnaðarins, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands en auk þess telja fjarskiptafyrirtækin að ákvæði laganna kunni að brjóta gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar. Innherji 19. janúar 2022 12:31
Met slegið í umsögnum um blóðmerafrumvarpið Inga Sæland formaður Flokks fólksins segir Íslendinga ekki vilja sjá slíkt dýraníð og hún telur óhjákvæmilegan fylgikvilla blóðmerahaldi. Umsagnir um frumvarp hennar hrönnuðust upp. Innlent 19. janúar 2022 11:02
Katrín og Sigurður sátt við fjarveru Bjarna Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er væntanlegur heim úr fríi í útlöndum eftir tvo daga. Formenn hinna stjórnarflokkanna telja það ekki koma niður á störfum ríkisstjórnarinnar þótt Bjarni bregði sér af bæ í nokkra daga. Innlent 18. janúar 2022 19:20
Gerir ekki athugasemd við fríið hans Bjarna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og staðgengill Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, gerir engar athugasemdir við að hann hafi verið í fríi í útlöndum síðustu daga. Innlent 18. janúar 2022 11:03
„Hann hefur meiri áhuga á að vera í fríi“ Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar eru afar gagnrýnir á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, sem var staddur erlendis í fríi þegar Alþingi kom saman í dag. Fyrsta mál á dagskrá þingsins á árinu er fumvarp hans til stuðnings fyrirtækjum í veitingarekstri, vegna áframhaldandi óvissu vegna kórónuveirufaraldursins. Þingmennirnir segja að ráðherrann mætti sýna verkefninu meiri áhuga. Innlent 17. janúar 2022 22:01
Þingmanna að tilkynna forföll til skrifstofu Alþingis Nafn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra var ekki á skrá yfir fjarvistir þingmanna þegar Alþingi var sett í dag, og sætti það gagnrýni stjórnarandstöðuþingmanna. Forseti Alþingis segir skýringuna einfalda: Skráin byggi alfarið á tilkynningum hvers og eins þingmanns um fjarvistir sínar. Innlent 17. janúar 2022 18:21
Brjáluð vegna skíðaferðar Bjarna Benediktssonar Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega fjarveru Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra við upphaf Alþingis í dag. Þing kom saman í dag í fyrsta sinn á árinu og var Bjarni hvergi sjáanlegur. Kröfðust þingmenn svara við því hvort Bjarni væri í fríi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Bjarni fjarverandi vegna skíðaferðar. Innlent 17. janúar 2022 16:25
Ráðherrar skýri nýjar sóttvarnaraðgerðir samdægurs Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að ráðherrar gefi Alþingi skýrslu, samdægurs, eða eins fljótt og auðið er, eftir að sóttvarnaraðgerðir eru kynntar eða framlengdar af hálfu stjórnvalda. Innlent 17. janúar 2022 10:43
Bera meðvirkni fjölmiðla nú saman við meðvirkni þeirra fyrir bankahrun Það er töluverður skortur á því að fjölmiðlar spyrji gagnrýnna spurninga þegar kemur að sóttvarnaraðgerðum stjórnvalda, ákvörðunum um það hvaða takmarkanir eru settar á, hvenær og hvernig og hvaða árangri þeim er ætlað að bera. Innherji 15. janúar 2022 12:01
Unnur Brá og Steinar Ingi til Guðlaugs Þórs Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, og Steinar Ingi Kolbeins varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna eru sögð munu aðstoða Guðlaug Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra á kjörtímabilinu. Klinkið 13. janúar 2022 13:37
Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur enn ekki tekist að standa vörð um hagsmuni kjósenda í Suðvesturkjördæmi. Skoðun 13. janúar 2022 07:00
Veitingamenn látnir sitja á hakanum: „Tíminn vinnur ekki með þessum fyrirtækjum“ Þingmaður Viðreisnar segir að veitingageirinn hafi verið skilinn eftir þegar hertar sóttvarnaaðgerðir voru kynntar fyrir jól. Óvissan sé líklega erfiðasti þátturinn enda séu sóttvarnaaðgerðir kynntar með skömmum fyrirvara og þá stuttur tími til að bregðast við. Innlent 12. janúar 2022 22:26
Verbúðin Ísland Verbúðin á RÚV er eitt allra besta sjónvarpsþáttaefni síðari ára. Hún er hressileg upprifjun á umhverfi, tísku og tíðaranda ákveðins umbreytingartíma á íslensku samfélagi. Þótt Verbúðin sé ekki heimildarmynd þá er engu að síður eins og við hendumst aftur í tíma og rúmi. Skoðun 12. janúar 2022 11:30
Bindur vonir við að hjarðónæmi náist á næstu vikum eða mánuðum Sóttvarnalæknir segir Íslendinga nú standa á krossgötum með tilliti til faraldursins. Efla þurfi afkastagetu spítalans og ef það tekst ekki þarf að grípa til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hann bindur vonir við að með bólusetningum og útbreiddum sýkingum verði hægt að ná hjarðónæmi á næstunni. Yfirlæknir á Landspítala segir fyrir öllu að ná fjölda smitaðra niður til að Landspítali ráði við álagið. Innlent 11. janúar 2022 13:30
Már og Þórólfur ræddu sóttvarnaaðgerðir fyrir velferðarnefnd Már Kristjánsson, yfirlæknir Covid-göngudeildar á Landspítalanum, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verða gestir á opnum fjarfundi velferðarnefndar klukkan 10 í dag. Efni fundarins er framkvæmd sóttvarnaaðgerða. Innlent 11. janúar 2022 09:16
Tryggvi Másson verður framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokkins Tryggvi Másson verður nýr framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna, samkvæmt heimildum Innherja. Hann tekur við starfinu af Sigurbirni Ingimundarsyni. Klinkið 9. janúar 2022 12:22
Elsta uppboðshús í heimi framlengir margra milljarða króna samstarf við Gangverk Gangverk og Sotheby’s hafa undirritað endurnýjaðan samning sín á milli um að Gangverk haldi áfram að hanna og þróa stafrænar lausnir fyrirtækisins. Um er að ræða samstarf upp á milljarða íslenskra króna. Innherji 8. janúar 2022 13:02
Jöfn tækifæri til velsældar og þroska Eftir stutt en snarpt desemberþing liggja nú fyrir helstu áherslur fyrir árið 2022. Það er mér sérstakt ánægjuefni að samþykktur hefur verið áframhaldandi íþrótta- og tómstundastyrkur barna á tekjulágum heimilum. Skoðun 6. janúar 2022 11:30
Leigubílsstjórar telja Sigurð Inga hafa gengið á bak orða sinna Afar þungt hljóð er í leigubílsstjórum vegna frumvarps Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra samgangna sem gengur í grófum dráttum út á að gefa starfsemi leigubílaaksturs frjálsa. Innlent 6. janúar 2022 11:00
Verulegur hluti sjálfstæðismanna efast um réttmæti aðgerða Sjaldan ef nokkurn tíma hefur ríkt eins mikil óeining á þingi um réttmæti harðra samkomutakmarkana. Flestir þingmenn sem eru á móti þeim tilheyra flokki Sjálfstæðismanna og Viðreisnarmenn hallast í sömu átt. Innlent 3. janúar 2022 21:01
Fyrrum liðsmenn Samtaka iðnaðarins á þingi tókust á Áhugavert var að sjá í atkvæðagreiðslu á Alþingi milli jóla og nýárs að fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson varaþingmaður Viðreisnar kaus gegn áframhaldi á Allir vinna, eins stærsta hagsmunamáls iðnaðarins þessi dægrin. Klinkið 3. janúar 2022 20:02
Gott samfélag þarf góðar almannatryggingar Almannatryggingakerfið okkar stenst ekki þær kröfur sem við hljótum að gera í velferðarþjóðfélagi á 21. öld. Það heldur tekjulægsta fólkinu í fátækt frekar en að verja afkomuöryggi og mannlega reisn okkar allra. Við verðum að breyta því. Skoðun 3. janúar 2022 13:30
Dagur í lífi Hönnu Katrínar: Fær mikla orku út úr því að umgangast vinina Hanna Katrín Friðriksson er þingflokksformaður Viðreisnar. Hún er oftast síðust fjölskyldumeðlima út úr húsinu á morgnana. Hún er dugleg að stunda íþróttir þó hún segi nú orðið fari meira fyrir áhorfi en beinni þátttöku. Frítíminn 2. janúar 2022 17:00
Alþingi veitir engum ríkisborgararétt vegna tafa Útlendingastofnunar Alþingi hyggst ekki veita neinum umsækjanda ríkisborgararétt fyrir áramót en 178 umsóknir hafa borist löggjafanum. Ástæðan er sú að Útlendingastofnun hefur ekki afhent forunnin gögn sem eiga að berast nefnd sem ber ábyrgð á ferlinu með umsóknunum. Samkvæmt venju eru umsóknir afgreiddar fyrir áramót ár hvert en í þetta skipti verður það líklega ekki fyrr en í febrúar á nýju ári. Innlent 29. desember 2021 23:20
Fyrirgefið orðbragðið, „andskotans“ hræsni sem þetta er! Eins og allir vita liggur verkalýðshreyfingin oft undir mikilli gagnrýni frá stjórnvöldum og Seðlabankanum um að hreyfingin sé óábyrg og sé ítrekað að ógna hinum margumtalaða stöðugleika með óraunhæfum kjarasamningum. Skoðun 29. desember 2021 15:31
Vilhjálmur með Covid-19 Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og starfandi þingflokksformaður, er kominn með Covid-19. RÚV greindi fyrst frá. Þingmaðurinn greindist í gær og segir heilsuna mjög góða. Innlent 29. desember 2021 11:53