
Sjáðu öll mörkin úr 12. umferðinni | Dramatískt jöfnunarmark í Garðabæ, mikilvægur botnsigur og fimm mörk Valsara
Tólfta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í gærkvöld. Þar urðu óvænt úrslit sem voru mikilvæg bæði á toppi og botni.
Tólfta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í gærkvöld. Þar urðu óvænt úrslit sem voru mikilvæg bæði á toppi og botni.
Þróttur vann 3-0 sigur á Selfossi í skrítnum leik á Avis vellinum í Laugardal. Strax á 4.mínútu leiksins skoraði Danielle Julia Marcano og bætti við öðru á 38.mínútu. Það var svo Álfhildur Rósa Kjartansdóttir sem rak smiðshöggið á 80.mínútu fyrir Þróttara og þar við sat.
Sif Atladóttir var að vonum svekkt eftir 3-0 tap á móti Þrótti. Hún telur að í fyrstu tveimur mörkum leiksins hafi gripið um sig einbeitingaleysi.
Valur vann 0-5 stórsigur á Keflavík í vægast sagt krefjandi aðstæðum suður með sjó. Leikurinn var einstefna að marki Keflavíkur frá upphafi til enda.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Gyða Kristín Stjörnunni yfir. Gestirnir frá Kópavogi svöruðu með tveimur mörkum og benti allt til þess að Breiðablik myndi vinna leikinn þar til Aníta Ýr Þorvaldsdóttir jafnaði leikinn á 89. mínútu.
Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen minnti heldur betur á sig þegar hún skoraði þriðja mark Vals í 0-5 sigri í Keflavík. Markið skoraði Elin eftir að hafa verið inn á leikvellinum í rétt rúma mínútu.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með frammistöðuna hjá sínum konum og var því súr með að hafa aðeins fengið eitt stig gegn Breiðabliki í fjögurra marka jafntefli.
Afturelding vann gríðarlega mikilvægan 0-1 útisigur er liðið heimsótti Þór/KA í fallbaráttuslag í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Ísafold Þórhallsdóttir skoraði eina mark leiksins strax á fyrstu mínútu.
„Ég er hrikalega stoltur af liðinu, það er ekki létt að koma til Akureyrar en þetta fór vel í dag,“ sagði Alexander Aron Davorsson þjálfari Aftureldingar eftir gríðarlega mikilvægan sigur, 0-1 á móti Þór/KA.
ÍBV sigraði KR í kvöld 3-1, í frábærum endurkomuleik þar sem að þær fyrrnefndu skoruðu 3 mörk á 15 mínútum. Varamenn ÍBV reyndust afar mikilvægar en þær Þórhildur Ólafsdóttir og Hanna Kallmaier sem að komu báðar inn á í seinni hálfleik gerðu sitt hvort markið.
Fylkir og FH skildu jöfn, 1-1, þegar liðin áttust við í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Würth-vellinum í Árbænum í kvöld.
Agla María Albertsdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir verða í sviðsljósinu á morgun í stórleik 12. umferðar Bestu deildarinnar í fótbolta. Helena Ólafsdóttir fékk þær til að hita upp fyrir leiki umferðarinnar.
Breiðablik vann sinn sjötta sigur í röð í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld er Keflavík var í heimsókn í Kópavogi.
„Ég er mjög ánægður. Við vorum betra liðið í leiknum. Við gerðum réttu hlutina, héldum boltanum á hreyfingu, fundum góðar lausnir og náðum loksins að brjóta þær niður,“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar R., eftir 2-0 sigur á Aftureldingu í kvöld.
Stjarnan vann í kvöld 1-2 sigur á KR með flautumarki á Meistaravöllum í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Bæði mörk Stjörnunnar skoraði Málfríður Erna Sigurðardóttir.
Topplið Vals vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Þór/KA í Bestu-deild kvenna í kvöld. Valskonur skoruðu tvö á fyrstu tíu mínútum leiksins.
Valur vann góðan 3-0 sigur á Þór/KA á heimavelli í Bestu deild kvenna í kvöld. Anna Rakel Pétursdóttir tók þar á móti uppeldisfélagi sínu. Hún var að vonum ánægð með leikinn.
Selfoss tók á móti ÍBV í sannkölluðum suðurlandsslag í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur þar sem að Selfyssingar voru töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik en ÍBV í þeim síðari. Bæði lið björguðu á línu í markalausu jafntefli í kvöld þar sem að mörg færi litu dagsins ljós.
Afturelding tók á móti Þrótti í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Afturelding er neðst í deildinni og þurfi á sigri að halda, ekki kom hann í dag þar sem Þróttur vann með tveimur mörkum. Lokatölur 0-2.
Helena Ólafsdóttir hitaði upp fyrir 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta með EM-förunum Söndru Sigurðardóttur og Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur.
Afturelding hefur fengið bandaríska varnarmanninn Mackenzie Hope Cherry til liðs við sig og mun hún leika með liðinu út tímabilið í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu.
Breiðablik vann í kvöld sannfærandi 5-0 sigur á KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta en deildin hafði verið í pásu vegna Evrópumótsins síðan um miðjan júní. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir að lið hans hafi verið lengi í gang.
Besta deild kvenna í fótbolta fór af stað eftir landsleikjahlé í kvöld en þar mætti Valur, sem er á toppi deildarinnar, Stjörnunni sem situr í þriðja sæti deildarinnar.
Breiðablik tók á móti KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikið var að nýju eftir rúmlega mánaðar pásu á deildinni vegna Evrópumóts kvenna í knattspyrnu. Breiðablik komst yfir í fyrri hálfleik og á síðustu 20 mínútunum bættu þær fjórum mörkum við til viðbótar.
Besta deild-kvenna fór aftur á stað eftir að hlé var gert á deildinni vegna þátttöku Íslands á EM. Stjarnan heimsótti topplið Vals. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og voru keimlík.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð ánægður með eitt stig gegn toppliði Vals í fyrsta leik eftir landsleikjahlé.
Keppni í Bestu deild kvenna hefst aftur í kvöld með tveimur leikjum. Elísa Viðarsdóttir, sem er nýkomin af Evrópumótinu í Englandi, og stöllur hennar í Val taka á móti Stjörnunni.
Einn af landsliðsmarkvörðum Íslands á Evrópumótinu er komin í nýtt félag fyrir lokasprettinn í Bestu deildinni því hún mun klára tímabilið í Vestmannaeyjum.
Marín Rún Guðmundsdóttir hefur samið við Keflavík á nýjan leik eftir stutt stopp hjá Hellas Verona á Ítalíu.
Agla María Albertsdóttir er sátt við að vera kominn aftur í Breiðablik eftir skammvinna dvöl hjá sænska félaginu Häcken.