Fjölnismenn á toppinn með stórsigri | Selfyssingar unnu Suðurlandsslaginn Fjölnismenn tróna á toppi Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir afar öruggan 6-0 sigur gegn Þór frá Akureyri í kvöld. Þá vann Selfoss nauman 3-1 útisigur gegn Ægi í Suðurlandsslag. Fótbolti 26. maí 2023 21:13
Alex og félagar aftur á sigurbraut Eftir fjóra leiki í röð án sigurs eru Alex Þór Hauksson og félagar hans í Öster komnir aftur á sigurbraut í sænsku B-deildinni í knattspyrnu eftir 2-1 sigur gegn Landskrona í kvöld. Fótbolti 26. maí 2023 18:59
Átak til stuðnings dómurum: „Ertu vanur því að garga á fólk?“ Knattspyrnusamband Íslands hefur hrundið af stað átaki vegna hegðunar fólks í garð dómara, til að vekja athygli á störfum þeirra og mikilvægi fyrir fótboltann. Fótbolti 26. maí 2023 15:45
Grímuklæddir menn réðust á kærustu Kluivert Justin Kluivert og fjölskylda hans varð fyrir ömurlegri lífsreynslu í vikunni á meðan hann var upptekinn við það að spila með Valencia í spænsku deildinni. Fótbolti 26. maí 2023 11:31
Hrækti á leikmann Fjölnis: „Óafsakanlegt á alla vegu“ Gonzalo Zamorano, sóknarmaður Selfoss, var einn af þremur sem fengu rautt spjald í leik gegn Fjölni í Lengjudeildinni í fótbolta á dögunum. Ástæðan var óvenjuleg en Zamorano varð uppvís að því að hrækja á andstæðing. Fótbolti 26. maí 2023 08:01
Milner fékk vítapunktinn í kveðjugjöf Eftir átta ára veru hjá Liverpool er James Milner á leið frá félaginu. Til að þakka honum fyrir þjónustu sína við félagið gáfu vallarstarfsmenn honum eitt stykki vítapunkt í kveðjugjöf. Fótbolti 26. maí 2023 07:01
La Liga gæti útrýmt kynþáttaníð ef deildin hefði næg völd til þess Javier Tebas, forseti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, La Liga, segir að deildin gæti fækkað atvikum þar sem leikmenn deildarinnar verða fyrir kynþáttaníð umtalsvert á næstu mánuðum ef hún hefði réttu tólin til þess. Fótbolti 25. maí 2023 22:31
„Hættir að haltra og farnir að labba“ Breiðablik sigraði Val 1-0 á Kópavogsvellinum fyrr í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, var ánægður með frammistöðu sinna manna. Fótbolti 25. maí 2023 22:26
Umfjöllun og viðtöl: KA - Víkingur 0-4 | Víkingar enn með fullt hús stiga eftir stórsigur Víkingar eru áfram taplausir á toppi Bestu deildar karla eftir 4-0 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í dag. Liðið skoraði tvö mörk í sitthvorum hálfleik og áttu heimamenn engin svör. KA er áfram í 6. sæti með 11 stig eða heilum 16 stigum á eftir Víking og titilbaráttan sem norðanmenn óskuðu sér sennilega fokin út um gluggan snemma. Fótbolti 25. maí 2023 21:21
Arnar: Var kominn tími til að við förum að ganga frá liðum Víkingur vann 4-0 útisigur á KA á Akureyri fyrr í kvöld. Víkingur spilaði miklu betur en KA í dag eins og tölurnar gefa til kynna. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ánægður með sigurinn en gat þó fundið ýmislegt í leik síns liðs sem má betur fara. Fótbolti 25. maí 2023 21:00
Fimm spor þurfti til að loka ljótu sári á fæti Benzemas Sauma þurfti fimm spor í Karim Benzema, leikmanns Real Madrid, eftir að leikmaður Rayo Vallecano stappaði ofan á fæti hans í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 25. maí 2023 14:01
Alexandra átti eitt af flottustu mörkum vikunnar í Seríu A Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum í síðustu umferð í ítalska boltanum en hún skoraði tvö mörk í flottum 4-2 sigri á Juventus. Fótbolti 25. maí 2023 11:01
Grátklökkur Iniesta missti samninginn en ætlar ekki að hætta Andrés Iniesta hélt áfram að spila fótbolta þegar Barcelona tíminn var á enda og hann ætlar einnig að halda áfram að spila þótt að hann hafi misst samning sinn hjá japanska félaginu Vissel Kobe. Fótbolti 25. maí 2023 10:30
Valgeir algjörlega í öngum sínum og þjálfarinn vill VAR Valgeir Lunddal Friðriksson reyndist ákveðinn örlagavaldur, á slæman hátt, þegar lið hans Häcken varð að sætta sig við 1-0 tap gegn Djurgården í Stokkhólmi, í mikilvægum slag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 25. maí 2023 07:31
Man United varar stuðningsfólk við níðsöngvum um samkynhneigða Manchester United tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heimaliðið hefur varað stuðningsfólk sitt við að syngja níðsöngva um samkynhneigða en slíkt tíðkast því miður oftar en ekki þegar Chelsea kemur í heimsókn. Enski boltinn 25. maí 2023 07:00
Mount hallast að Man United Enski miðjumaðurinn Mason Mount hallast að því að ganga í raðir Manchester United en hann er eftirsóttur af fjölda liða. Enski boltinn 24. maí 2023 23:01
Markvörður Newcastle í aðgerð Nick Pope, markvörður Newcastle United, mun ekki leika með liðinu í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þar sem hann er á leið í aðgerð. Enski boltinn 24. maí 2023 22:30
Atlético henti frá sér þriggja marka forystu í Katalóníu Atlético Madríd komst ekki upp fyrir nágranna sína í Real Madríd en liðið gerði 3-3 jafntefli við Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að komast 3-0 yfir. Fótbolti 24. maí 2023 22:05
Inter bikarmeistari þökk sé tvennu Martínez Inter sigraði Fiorentina 2-1 í úrslitum Coppa Italia, bikarkeppni karla í knattspyrnu á Ítalíu, í kvöld. Fótbolti 24. maí 2023 21:15
Þrjú mörk dæmd af í fjörugu jafntefli Brighton og Englandsmeistaranna Englandsmeistarar Manchester City gerðu 1-1 jafntefli við Brighton & Hove Albion í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 24. maí 2023 21:00
Sverrir Ingi og félagar töpuðu í úrslitum Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn þegar PAOK tapaði 2-0 fyrir AEK Aþenu í úrslitum grísku bikarkeppninnar. PAOK var manni fleiri frá 6. mínútu leiksins. Fótbolti 24. maí 2023 20:00
Real aftur upp í annað sætið eftir dramatískan sigur Real Madríd er komið upp í 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir dramatískan 2-1 sigur á Rayo Vallecano. Fótbolti 24. maí 2023 19:31
Pirlo atvinnulaus Tyrkneska knattspyrnufélagið Fatih Karagümrük Spor Kulübü hefur ákveðið að láta þjálfara sinn Andrea Pirlo fara þó enn séu þrjár umferðir þangað til tyrkneska úrvalsdeildin klárast. Fótbolti 24. maí 2023 18:45
Varnarmaður Man United á leið til Barcelona Ona Batlle verður samningslaus í sumar og stefnir í að hún gangi í raðir Barcelona en hún er uppalin í Katalóníu. Enski boltinn 24. maí 2023 17:45
Vann tvo titla á fyrsta tímabilinu með PSV en er hættur vegna innanbúðar vandræða Ruud van Nistelrooy er hættur sem þjálfari PSV Eindhoven þrátt fyrir að tímabilinu sé ekki lokið. Fótbolti 24. maí 2023 16:02
Búa sig undir mikið fyllerí og ólæti Lögreglan í Tékklandi verður með fjölmennt lið til taks þegar stuðningsmenn West Ham og Fiorentina fara að streyma til höfuðborgarinnar, Prag, vegna úrslitaleiks Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 24. maí 2023 15:30
Valencia þarf að vera með tóma stúku í fimm leikjum Spænska knattspyrnusambandið hefur brugðist hart við þeirri meðferð sem brasilíski framherjinn Vinicius Junior fékk frá stuðningsmönnum Valencia á dögunum. Fótbolti 24. maí 2023 15:01
Ronaldo: Deildin í Sádi-Arabíu gæti orðið ein af þeim fimm bestu í heimi Cristiano Ronaldo hefur mikla trú á uppgangi deildarinnar í Sádi-Arabíu á næstu árum en hann gekk til liðs við Al Nassr í janúar. Fótbolti 24. maí 2023 12:01
Hrósar De Zerbi í hástert og segir hann einn áhrifamesta stjóra síðustu áratuga Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, hrósar kollega sínum hjá Brighton, Roberto de Zerbi, í hástert og segir hann einn áhrifamesta þjálfara síðustu tuttugu ára. Fótbolti 24. maí 2023 07:00
Facebook-síða Maradona hökkuð: „Þið vitið að ég sviðsetti dauða minn“ Óprúttinn aðili hefur komist inn á Facebook-síðu knattspyrnugoðsagnarinnar Diego Maradona og birtir þar heldur ónærgætnar færslur um þessar mundir. Fótbolti 23. maí 2023 22:41
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn