Fótboltafélög heimsins farin að eyða miklu meiri pening í konurnar Kvennaknattspyrnan er farin að velta miklu hærri peningaupphæðum en áður eftir að hafa tekið risastökk á síðustu árum. Fótbolti 27. janúar 2023 08:01
„Ef ég hefði farið þá væri Mikel hér og væri sá besti“ Pep Guardiola fór fögrum orðum um Mikel Arteta, fyrrum aðstoðarþjálfara sinn, í viðtali við BBC í gær. Þeir verða andstæðingar þegar Manchester City og Arsenal mætast í enska bikarnum í kvöld. Fótbolti 27. janúar 2023 07:01
Gunnhildur Yrsa var orðin þreytt en hlakkar til ævintýrisins með Stjörnunni Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er snúin heim úr atvinnumennsku og spilar með uppeldisfélagi sínu Stjörnunnar á komandi leiktíð. Hún lítur bjartsýnisaugum á framtíðina hér heima. Fótbolti 26. janúar 2023 23:31
Real í undanúrslit eftir sigur á Atletico í framlengdum leik Real Madrid er komið áfram í undanúrslit spænska konungsbikarsins í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Atletico í framlengdum leik í kvöld. Fótbolti 26. janúar 2023 23:10
Mikael Egill skiptir um lið á Ítalíu Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson hefur gengið til liðs við ítalska liðið Venezia í ítölsku Serie B. Hann hefur skrifað undir samning til ársins 2027. Fótbolti 26. janúar 2023 22:30
Sverrir Ingi og félagar slógu Panathinaikos út í bikarnum Sverrir Ingi Ingason og samherjar hans í PAOK tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum gríska bikarsins eftir 1-1 jafntefli við Panathinaikos í kvöld. PAOK vann 3-1 samanlagt í tveimur leikjum. Fótbolti 26. janúar 2023 19:32
Brúða klædd í búning Vinicius Jr. hengd frá brú í Madríd Brúða íklædd Real Madrid treyju með nafni hins brasilíska Vinicius Jr. var hengd frá brú í Madríd í gær. Nágrannaliðin Real Madrid og Atletico Madrid eigast við í kvöld í spænska konungsbikarnum. Fótbolti 26. janúar 2023 19:00
Sá með bleika hárið fann þá bleikustu í stúkunni og gaf henni treyjuna Franski knattspyrnumaðurinn Antoine Griezmann hefur vakið athygli undanfarið fyrir sérstaka hárgreiðslu. Fótbolti 26. janúar 2023 16:30
Diego Simeone vill hætta með framlengingar í fótbolta Diego Simeone, þjálfari spænska liðsins Atletico Madrid, hefur sterkar skoðanir á framlengingum í fótbolta. Fótbolti 26. janúar 2023 15:30
Úr marki ÍA til Stjörnunnar Árni Snær Ólafsson, sem verið hefur markvörður og fyrirliði ÍA í fótbolta, er mættur í Garðabæinn og genginn í raðir Stjörnunnar. Fótbolti 26. janúar 2023 14:55
Verðlauna bandaríska blaðamanninn sem dó á HM í Katar Bandaríska knattspyrnusambandið mun veita Grant Wahl heitnum heiðursverðlaun sambandsins sem eru veitt fjölmiðlamönnum sem hafa unnið mikið starf við fréttaskrif um fótboltann í Bandaríkjunum. Fótbolti 26. janúar 2023 14:01
Piqué frumsýndi „Casio-kærustuna“ Gerard Piqué, fyrrverandi leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, frumsýndi nýju kærustuna sína á Instagram. Sú heitir Clara og er tólf árum yngri en Piqué, eða 23 ára. Fótbolti 26. janúar 2023 12:46
UEFA stækkar Þjóðadeildina en fækkar leikjum Íslands í undankeppni HM og EM Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, samþykkti í gær breytingar á bæði Þjóðadeildinni sem og á undankeppnum heimsmeistaramótsins og Evrópumótsins. Fótbolti 26. janúar 2023 10:00
Barcelona í undanúrslit bikarsins Ousmane Dembele skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Barcelona á Real Sociedad í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins í knattspyrnu. Fótbolti 25. janúar 2023 22:46
Fram í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Framarar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Val. Fótbolti 25. janúar 2023 21:11
Willum á skotskónum í Hollandi Willum Þór Willumsson skoraði mark Go Ahead Eagles sem tapaði 4-1 gegn AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mark Willums kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Fótbolti 25. janúar 2023 20:04
Gunnhildur Yrsa komin heim í Stjörnuna Landsliðskonan margreynda Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Gunnhildur Yrsa kemur til Stjörnunnar frá bandaríska liðinu Orlando Pride. Fótbolti 25. janúar 2023 17:37
Einn besti kylfingur heims dolfallinn yfir golfhæfileikum Bales Jon Rahm, sem er í 3. sæti heimslistans í golfi, var dolfallinn yfir golfhæfileikum Gareths Bale eftir að spila níu holur með Walesverjanum á dögunum. Golf 25. janúar 2023 17:00
„Ekki upplifað svona blóðuga viku á Ítalíu síðan 2006“ „Við höfum ekki upplifað svona blóðuga viku á Ítalíu síðan 2006, Calciopoli-skandalinn,“ segir Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska fótboltann, en hneykslismálið sem skekur ítalskan fótbolta þessa dagana var rætt í þaula í nýjasta þættinum af Punkti og basta. Fótbolti 25. janúar 2023 16:02
Guðný lagði upp dýrmætt mark fyrir Milan Guðný Árnadóttir átti stóran þátt í 1-0 sigri AC Milan á útivelli gegn Fiorentina í Íslendingaslag í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Fótbolti 25. janúar 2023 15:32
Kolbeinn frá Dortmund til Freys Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson er orðinn fjórði Íslendingurinn í herbúðum danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby en félagið fékk hann frá þýska stórliðinu Dortmund. Fótbolti 25. janúar 2023 11:22
Liverpool leiðir kapphlaupið um Bellingham Þrátt fyrir áhuga frá stórliðum á borð við Manchester City og Real Madrid leiðir Liverpool kapphlaupið um að kaupa enska miðjumanninn Jude Bellingham frá Borussia Dortmund. Enski boltinn 25. janúar 2023 07:01
Bregðast við löngum samningum Chelsea og breyta fjárhagsreglunum Evrópska knattspyrnusambandið UEFA mun bregðast við löngum samningum enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea með því að gera breytingu á fjárhagsreglum sambandsins, FFP (e. Financial Fair Play). Enski boltinn 24. janúar 2023 23:31
Viðurkennir að leikmenn hafi svindlað á Covid-prófum á Afríkumótinu Said All Said Athouman, forseti knattspyrnusambands Kómoreyja, viðurkennir að leikmenn hafi svindlað á kórónuveiruprófum fyrir leik liðsins gegn Gana á Afríkumótinu í fótbolta sem haldið var í Kamerún fyrir tveimur árum. Fótbolti 24. janúar 2023 23:00
Sierra Lelii gengin til liðs við Þrótt á ný Bandaríska knattspyrnukonan Sierra Marie Lelii er gengin til liðs við Þrótt og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu-deild kvenna. Fótbolti 24. janúar 2023 22:32
Lazio valtaði yfir meistarana og stökk upp í þriðja sæti Lazio vann afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Ítalíumeisturum AC Milan í stórleik nítjándu umferðar ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fótbolti 24. janúar 2023 21:39
Þýsku meistararnir misstigu sig annan leikinn í röð Þýskalandsmeistarar Bayern München björguðu stigi er liðið tók á móti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, lokatölur 1-1. Þetta er annar deildarleikurinn í röð sem Bayern tapar stigum og því óhætt að segja að liðið fari hægt af stað eftir langt jóla og HM-frí. Fótbolti 24. janúar 2023 21:25
Gunnhildur og eiginkonan yfirgefa Orlando Pride Knattspyrnukonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur yfirgefið herbúðir Orlando Pride þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár. Fótbolti 24. janúar 2023 21:09
Moshiri setur Everton á sölu og vill tæpa níutíu milljarða fyrir félagið Farhad Moshiri, eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, hefur sett félagið á sölu. Moshiri er sagður vilja fá meira en hálfan milljarð punda fyrir Everton, en það samsvarar tæpum níutíu milljörðum íslenskra króna. Enski boltinn 24. janúar 2023 20:26
Tottenham að ræna Danjuma af Everton Þrátt fyrir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá Everton síðastliðin laugardag virðist hollenski kantmaðurinn Arnaut Danjuma ætla að enda í herbúðum Tottenham. Enski boltinn 24. janúar 2023 19:15