Maðurinn sem keyrði á Liverpool stuðningsfólkið neitar sök Maðurinn sem er ákærður fyrir að keyra bíl inn í miðjan hóp Liverpool stuðningsmanna í miðbæ Liverpool neitar sök. Enski boltinn 5. september 2025 06:33
Ein sú besta gæti snúið aftur eftir 20 mánaða fjarveru Knattspyrnukonan Sam Kerr hefur ekki spilað síðan hún sleit krossband í hné á æfingu í janúar 2024. Hún gæti snúið aftur á völlinn þegar efsta deild kvenna á Englandi hefst síðar í dag, föstudag. Enski boltinn 5. september 2025 06:01
Gæti orðið fyrsti músliminn til að spila fyrir enska landsliðið Tottenham-maðurinn Djed Spence gæti orðið fyrsti músliminn til að spila fyrir enska landsliðið í fótbolta. Enski boltinn 4. september 2025 23:16
Hetja Blika: „Einn leikur í einu“ Þrátt fyrir að hafa tryggt toppliði Breiðabliks hádramatískan sigur á FH, liðinu í 2. sæti Bestu deildar kvenna, var Birta Georgsdóttir með báða fæturna á jörðinni þegar hún ræddi við Sýn Sport eftir leik. Íslenski boltinn 4. september 2025 21:32
„Betra fótboltaliðið tapaði í dag“ Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, var svekktur að tapa í dag en hann var sáttur með frammistöðu liðs síns eftir naumt tap á Sauðárkróki í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Íslenski boltinn 4. september 2025 21:17
Óvænt tap Þýskalands og Belgía skoraði sex Fjöldinn allur af leikjum í undankeppni HM karla í knattspyrnu sem fram ferá næsta ári fór fram í kvöld. Belgía skoraði sex mörk á meðan Slóvakía gerði sér lítið fyrir og lagði Þýskaland. Fótbolti 4. september 2025 20:59
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur upp í Bestu eftir ótrúlegan sigur Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur lagði HK 4-1 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi tryggja sér sæti í Bestu deild kvenna í fótbolta á næstu leiktíð. Íslenski boltinn 4. september 2025 20:14
Uppgjör: Víkingur - Valur 3-2 | Víkingur náði í dýrmæt stig í fallbarátunni Víkingur stöðvaði sigurgöngu Vals með 3-2 sigri í leik liðanna í 16. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Heimavelli Hamingunnar í kvöld. Víkingur nældi sér þarna í dýrmæt stig í fallbarátunni en liðið var að vinna sinn þriðja leik í röð. Valur hafði haft betur í þremur leikum í röð fyrir þetta tap. Íslenski boltinn 4. september 2025 19:56
Ólafur Ingi: „Sjálfum okkur verstir“ Ísland tapaði 2-1 gegn Færeyjum í fyrsta leik undankeppni evrópumóts U21 landsliðs 2027 í dag. Færeyjar skoruðu tvö mörk snemma í leiknum og gátu þétt raðirnar rækilega. Fótbolti 4. september 2025 19:51
Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-1 | Ótrúleg endurkoma og Blikar að stinga af Íslandsmeistarar Breiðabliks tók á móti FH í 16. umferð Bestu deild kvenna í kvöld. Gestirnir úr Hafnafirði komust yfir og virtust lengi vel ætla að stela stigunum þremur þrátt fyrir mikinn sóknarþunga frá heimakonum. Birta Georgsdóttir steig hins vegar upp þegar mest á reyndi og tryggði Blikum þrjú stig og örugga forystu á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 4. september 2025 18:30
Levy hættur hjá Tottenham eftir 25 ár í starfi Daniel Levy hefur sagt af sér sem formaður enska knattspyrnufélagsins Tottenham Hotspur. Levy hefur verið hæstráðandi hjá félaginu í 25 ár. Enski boltinn 4. september 2025 17:25
Uppgjörið: Tindastóll - Fram 1-0 | Lífsnauðsynlegur sigur Stólanna Tindastóll vann baráttu sigur á Fram 1-0 í Bestu deild kvenna á blíðunni á Sauðárkróki í kvöld. Íslenski boltinn 4. september 2025 17:15
Uppgjörið: Ísland - Færeyjar 1-2 | Íslendingar í gjafastuði Undankeppni Evrópumóts landsliða 21 árs og yngri hófst í dag með einum leik þegar Ísland tók á móti vinum okkar frá Færeyjum í Laugardalnum. Leiknum lauk með óvæntum 2-1 sigri gestanna. Fótbolti 4. september 2025 16:16
Sá sem ók á skrúðgöngu Liverpool-manna lýsti yfir sakleysi Karlmaður á sextugsaldri sem slasaði tugi manna þegar hann ók bíl sínum inn í mannfjölda þegar stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool fögnuðu sigri í maí lýsti sig saklausan af ákærum þegar hann kom fyrir dómara í dag. Erlent 4. september 2025 14:51
Valsmenn semja við einn markahæsta leikmanninn í Lengjunni Valsmenn hafa skrifað undir fimm ára samning við framherjann Dag Orra Garðarsson. Íslenski boltinn 4. september 2025 14:44
Arnar og Hákon sátu fyrir svörum Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir leikinn gegn Aserbaídsjan í undankeppni HM 2026. Fótbolti 4. september 2025 12:21
Mættust í fótboltagolfi fyrir stórleik kvöldsins Tvö efstu lið Bestu deildar kvenna í fótbolta, Breiðablik og FH, mætast í stórleik í kvöld. Að því tilefni mættust leikmenn liðanna í fótboltagolfi. Íslenski boltinn 4. september 2025 12:01
Fundu efnið sem felldi fótboltastelpurnar í öllu gúmmíi á gervigrasi Rannsókn tengdu óvenjulegu „lyfjahneyksli“ í norska kvennafótboltanum er nú lokið og hún sýnir vel hætturnar sem leynast í kurluðu dekkjagúmmí á gervigrasvöllum. Fótbolti 4. september 2025 11:01
Isak í fjölmiðlafeluleik Alexander Isak gæti verið að fara spila langþráðan fótboltaleik á næstu dögum en fjölmiðlar munu samt ekkert fá að tala við nýjasta leikmann Liverpool fram að þeim leik. Fótbolti 4. september 2025 10:31
Mo Salah var ekki skemmt vegna færslu um fyrrum félaga Mohamed Salah gagnrýndi færslu á vinsælum Liverpool samfélagsmiðli þar sem hann taldi menn þar á bæ vera hreinlega að gera lítið úr fyrrum liðsfélögum hans hjá Liverpool. Enski boltinn 4. september 2025 09:31
Guðjohnsen bræður berjast um sömu stöðu en gætu spilað saman Guðjohnsen bræðurnir Daníel Tristan og Andri Lucas gætu spilað sinn fyrsta leik saman á morgun þegar Ísland mætir Aserbaísjan á Laugardalsvelli. Þeir eru báðir framherjar en búa yfir mismunandi eiginleikum. Fótbolti 4. september 2025 08:58
Setti nýtt heimsmet í Liverpool treyjum Stuðningsmenn Englandsmeistara Liverpool eru víðar út um heim en bara í Bítlaborginni eins og við þekkjum vel hér á Íslandi. Enski boltinn 4. september 2025 07:30
Heimir leggur allt undir: „Núna er tíminn til að standa sig“ Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta, fer ekki leynt með það hve mikilvægur leikur liðsins við Ungverjaland í Dublin á laugardaginn er. Hann hefur sent út ákall til stuðningsmanna og vonast eftir töfrandi kvöldi. Fótbolti 4. september 2025 07:02
Styðja þrettán ára strák sem var kýldur af pabba mótherja Markverðirnir Gianluigi Donnarumma og Gianluigi Buffon eru á meðal þeirra sem sent hafa þrettán ára ítölskum markverði hlýjar kveðjur eftir skelfilegt atvik á leik í yngri flokkum á Ítalíu, þar sem fertugur maður kýldi strákinn unga. Fótbolti 3. september 2025 23:01
Blindraþraut fyrir risaleik: „Þetta er svo vandræðalegt“ Það var svo sannarlega skellihlegið þegar fulltrúar Breiðabliks og FH mættust í skemmtilegri blindraþraut á Kópavogsvelli, fyrir rosalegt uppgjör þessara efstu liða Bestu deildar kvenna í fótbolta annað kvöld. Íslenski boltinn 3. september 2025 22:02
Chiesa og Tel ekki valdir í Meistaradeild en Dowman gæti slegið met Federico Chiesa, Gabriel Jesus og Mathys Tel eru á meðal þeirra sem ekki fá að spila með liðum sínum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í haust, líkt og nýr leikmaður Chelsea. Leikmaður Arsenal gæti slegið aldursmet. Enski boltinn 3. september 2025 21:22
Sædís kom að dýrmætu marki Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir átti sinn þátt í sigurmarkinu þegar Vålerenga náði að kreista út 1-0 útisigur gegn Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 3. september 2025 18:06
„Lítum á þennan leik sem leik sem við verðum að vinna“ „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Það er skemmtilegt að byrja á heimavelli og ég tala nú ekki um að nýju grasi,“ segir landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson fyrir landsleikinn gegn Aserbaísjan á föstudagskvöldið í undankeppni HM sem fram fer á næsta ári. Fótbolti 3. september 2025 17:17
Freyr ósáttur við Bodø/Glimt og sakar þá um hroka Þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Brann, Freyr Alexandersson, var langt frá því að vera sáttur með hvernig meistarar Bodø/Glimt báru sig að þegar þeir freistuðu þess að kaupa miðjumanninn Felix Horn Myhre. Fótbolti 3. september 2025 15:32
Leikir U-21 árs strákanna í opinni dagskrá á Sýn Sport Íslenska karlalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri hefur leik í undankeppni EM 2027 á morgun þegar Færeyjar koma í heimsókn. Fótbolti 3. september 2025 13:45