Snorri Steinn ósáttur: „Einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, er mjög ósáttur og skilur hvorki upp né niður í leikjaáætlun Olís-deildar karla sem var gefin út í dag. Handbolti 15. apríl 2021 14:05
Íslandsmótið í handbolta fer aftur af stað 25. apríl Handknattleikssamband Íslands hefur staðfest að Íslandsmótið í handbolta fari af stað á nýjan leik þann 25. apríl. Handbolti 15. apríl 2021 13:31
„Með ólíkindum að EHF bjóði okkur upp á þessa umræðu“ „Það er í raun ótrúlegt að leggja þetta til,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, um þá tillögu handknattleikssambands Evrópu, EHF, að Ísland spili þrjá leiki, í þremur löndum á aðeins sex dögum. Handbolti 15. apríl 2021 12:01
Draugamarksleikurinn verður endurtekinn Leikur Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta verður endurtekinn. Endurskipaður áfrýjunardómstóll staðfesti fyrri dóm dómstólsins. Handbolti 15. apríl 2021 12:00
„Flókið en tekst með góðu skipulagi“ Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að það sé að mörgu að hyggja hjá HSÍ í kringum landsleikina hjá íslenska kvennalandsliðinu varðandi kórónuveinu ferðatakmarkanir. Handbolti 14. apríl 2021 19:02
Hópurinn sem fer til Slóveníu: Anna Úrsúla ekki með Arnar Pétursson hefur valið sextán leikmanna hóp sem fer til Slóveníu og mætir þar heimakonum í umspili um sæti á HM kvenna í handbolta. Handbolti 14. apríl 2021 15:25
Kom ekki heim til sín í mánuð Rut Jónsdóttir, leikmaður KA/Þór í Olís-deild kvenna og íslenska landsliðsins, hefur ekki komið heim til sín síðan í byrjun mars vegna anna með landsliðinu, æfingabanns hér á landi og fleira. Handbolti 14. apríl 2021 08:30
Ómar Ingi fór á kostum í Evrópudeildinni Ómar Ingi Magnússon átti stórleik þegar að lið hans Magdeburg vann góðan sex marka sigur gegn Kristianstad í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta. Lokatölur 34-28, og Magdeburg því í góðum málum fyrir seinni leikinn í Þýskalandi. Handbolti 13. apríl 2021 19:19
Lilja Alfreðsdóttir: „Þetta er mér mikið hjartansmál“ Fyrr í dag var það staðfest að æfingar og keppni í íþróttum yrði leyft á nýjan leik næstkomandi fimmtudag. Skömmu seinna kom tilkynning um að dregin hefði verið til baka sú ákvörðun að banna áhorfendur á íþróttaviðburðum og munu hundrað manns geta komið saman á pöllum íþróttamannvirkja landsins. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra segir þetta mikið fagnaðarefni. Sport 13. apríl 2021 18:58
Aron og félagar nálgast titilinn í spænska handboltanum Aron Pálmarsson og liðsfélagar hans í Barcelona tóku stórt skref í átt að enn einum deildarmeistaratitlinum í spæska handboltanum þegar þeir lögðu CD Bidasoa Irun, 35-27 í dag. Barcelona hefur nú 11 stiga forskot á Bidasoa sem situr í öðru sæti. Handbolti 13. apríl 2021 17:38
Leyfa áhorfendur á íþróttaviðburðum Yfirvöld hafa dregið til baka ákvörðun um áhorfendabann á íþróttaleikjum og munu hundrað manns geta komið saman í stúku á leikjum næstu þrjár vikurnar. Sport 13. apríl 2021 17:29
„Tímaramminn leyfir okkur því miður ekki að klára allt sem við þurfum að klára“ Allar líkur eru á því að gera þurfi breytingar á mótafyrirkomulagi hjá HSÍ til að hægt verði að klára Íslandsmótið. Stefnt er að því að hefja keppni á ný í lok næstu viku. Handbolti 13. apríl 2021 14:16
Engir áhorfendur leyfðir þegar íþróttir fara af stað á nýjan leik Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaviðburðum þegar íþróttir hér á landi fara af stað á nýjan leik. Sport 13. apríl 2021 13:56
Yfirlýsing Stjörnunnar vegna draugamarksins: Það sem gerist inni á vellinum á að ráða úrslitum Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir ástæður þess að hún kærði úrslit leiksins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna 13. febrúar. Handbolti 13. apríl 2021 13:31
Íþróttir leyfðar að nýju Æfingar og keppni í íþróttum verður að nýju leyfð á fimmtudag samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. Sport 13. apríl 2021 12:05
Skipa nefnd sem á að móta stefnu kvennahandbolta hér á landi Á ársþingi HSÍ í gær var ákveðið að skipa nefnd sem mun móta stefnu framtíðar kvennahandbolta hér á landi. Afrekstefna sambandsins var einnig uppfærð og þá var staðfest að HSÍ hafi skilað hagnaði þriðja árið í röð. Handbolti 13. apríl 2021 09:00
Tillögu HK vísað frá Olís deild kvenna í handbolta helst óbreytt á næstu leiktíð en þetta var staðfest á ársþingi HSÍ í dag. Handbolti 12. apríl 2021 20:40
Ómar fór á kostum í sigri Ómar Ingi Magnússon var lang markahæsti leikmaður vallarins er Magdeburg hafði betur gegn Nordhorn-Lingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 11. apríl 2021 15:36
Viktor hafði betur í uppgjöri íslensku markvarðanna GOG vann öruggan sigur á Kolding er liðin mættust í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 10. apríl 2021 17:31
Íslendingarnir atkvæðamiklir í Svíþjóð og Danmörku Íslendingalið áttust við í sænska og danska handboltanum í dag og voru íslensku leikmennirnir flestir í stórum hlutverkum. Handbolti 10. apríl 2021 16:03
Leggja til fjölgun liða í efstu deild Ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, fer fram næstkomandi mánudag og liggur ein tillaga frá félögum í landinu fyrir þinginu. Hún kemur úr Kópavogi. Handbolti 10. apríl 2021 11:31
„Svo er það náttúrulega önnur saga hvort öll liðin séu að fylgja þessari reglu“ Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu í Olís-deild karla í handbolta, ræddi við Stöð 2 og Vísi æfingabannið hér á landi. Hann segist ekki viss um að öll lið landsins séu að fara eftir settum reglum. Handbolti 9. apríl 2021 18:46
Börsungar unnu ellefu marka sigur og eru enn með fullt hús stiga Barcelona vann 11 marka sigur á Benedorm í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 35-46. Börsungar eru því enn með fullt hús stiga. Handbolti 9. apríl 2021 18:00
Melsungen og Löwen unnu en fimm mörk Odds dugðu ekki til sigurs Þrjú Íslendingalið voru eldlínunni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og eitt í B-deildinni. Balingen-Weilstetten tapaði gegn Göppingen, Melsungen vann Essen og Rhein-Neckar Löwen vann Nordhorn-Lingen. Þá tapaði Gummersbach í B-deildinni. Handbolti 8. apríl 2021 20:01
Með þessu áframhaldi sjáum við fram á að geta ekki klárað tímabilið okkar Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, tjáði sig um kórónufaraldurinn og stöðu íþróttafólks hér á landi á Facebook-síðu sinni í dag. Pistilinn í heild sinni má finna neðst í fréttinni. Handbolti 8. apríl 2021 17:06
Stjarnan fær grjótharðan línumann úr Þorpinu Stjarnan hefur samið við línumanninn Þórð Tandra Ágústsson. Hann kemur til liðsins frá Þór í sumar. Handbolti 8. apríl 2021 10:31
Gísli óttaðist um ferilinn en stuðningur mömmu hjálpaði Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, óttaðist að handboltaferlinum væri lokið þegar hann fór úr axlarlið í síðasta mánuði. Áfallið var mikið en Gísli fékk uppörvandi skilaboð frá lækninum sem sér um aðgerð á öxlinni. Handbolti 7. apríl 2021 10:01
Komið áfram án þess að spila Flensburg, topplið þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta, er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, án þess að spila leik. Íslenski landsliðsmaðurinn Alexander Petersson er meðal leikmanna liðsins. Handbolti 6. apríl 2021 19:01
Segir það sorglegt að samherjar hans í landsliðinu séu að spila víðsvegar um Evrópu en ekki megi æfa á Íslandi Það er erfitt og raun óskiljanlegt fyrir afreksmenn í íþróttum að sitja við sama borð er varðar æfingar og keppni og leikmenn í yngri flokkum segir landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, Björgvin Páll Gústavsson. Handbolti 6. apríl 2021 17:45
Fékk skilaboð um að hann væri feitur og ljótur Nikolaj Jacobsen, þjálfari heimsmeistara Dana, segist hafa fengið mörg ljót skilaboð frá netverjum í gegnum tíðina og nokkur þeirra hafi komið í janúar, þrátt fyrir að Danir hafi staðið uppi sem sigurvegarar á HM í Egyptalandi. Handbolti 6. apríl 2021 07:00