Breytt dagsetning samræmdra prófa Dagsetningum samræmdra lokaprófa í 10. bekk næstkomandi vor hefur verið breytt vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á skólahaldi í grunnskólum í haust. Röð prófanna hefur einnig að nokkru leyti verið breytt frá því sem áður var tilkynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Innlent 19. nóvember 2004 00:01
Sitja ekki við sama borð? Um 200 nemendur, nýútskrifaðir úr grunnskóla, höfðu samband við menntamálaráðuneytið í haust vegna þess að þeir fengu ekki inngöngu í framhaldsskóla. Aðstoðaði ráðuneytið þá við að fá inngöngu í skóla og fengu þeir allir inni. Það sama gildir ekki um þá sem voru aftur að hefja framhaldsskólanám eftir hlé. Innlent 11. nóvember 2004 00:01
HÍ tekur við nýnemum Háskóli Íslands hefur ákveðið að taka við umsóknum um skólavist á vormisseri 2005. Síðastliðið vor var gripið til sparnaðaraðgerða og meðal þeirra var að taka ekki nýja nemendur inn í skólann á miðju háskólaári, þ.e. um áramót. Innlent 10. nóvember 2004 00:01
Formaður SHÍ fagnar lækkuninni Formaður Stúdentaráðs fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að lækka endurgreiðslubyrði námslána um eitt prósentustig. Fyrir nýútskrifaðan háskólastúdent með 250 þúsund krónur á mánuði samsvarar þetta þrjátíu þúsund krónum á ári. Innlent 7. nóvember 2004 00:01
Endurgreiðslubyrði námslána lækkuð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra greindi frá því í ávarpi sínu til kjördæmisþings Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi að sátt hefði náðst milli stjórnarflokkanna um að lækka endurgreiðsluhlutfall námslána úr 4,75 prósentum af tekjum í 3,75 prósent. Þetta á við um ný lán og greiðslur af gömlum lánum eftir að frumvarp þessa efnis tekur gildi. Innlent 6. nóvember 2004 00:01
BHM gagnrýnir upptöku skólagjalda Bandalag háskólamanna, BHM, telur að skólagjöld í ríkisreknum háskólum gangi þvert gegn þeirri stefnu að háskólanám skuli vera öllum aðgengilegt, óháð efnahag. Bandalagið telur einu lausnina á fjárhagsvanda ríkisreknu háskólanna þá að stórauka framlög til þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu sem BHM sendi frá sér í dag. Innlent 5. nóvember 2004 00:01
Brautskráning 119 kandídata Alls 119 kandídatar voru brautskráðir frá Kennaraháskóla Íslands um helgina. Úr grunndeild brautskráðust 32 en úr framhaldsdeild 87, þar af átta með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði. Innlent 3. nóvember 2004 00:01
Undirskriftir vegna Þjóðarbókhlöðu Á þriðja þúsund manns hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun stúdentaráðs þar sem háskólaráð er hvatt til að samþykkja tillögu stúdenta um að veita 8 milljónir til kvöldopnunar Þjóðarbókhlöðunnar, að því er segir í frétt frá stúdentaráði. Innlent 3. nóvember 2004 00:01
Tímasetning samræmdra prófa Samræmd próf í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk grunnskóla verða haldin fimmtudaginn 25. nóvember og föstudaginn 26. nóvember samkvæmt ákvörðun menntamálaráðuneytisins. Innlent 2. nóvember 2004 00:01
Um 350 börn án kennslu Um 350 börn í Ingunnarskóla í Grafarholti eru án kennslu og verða það alla vikuna. Ástæðan er sú að skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, kennari og starfsmenn eru í kynnisferð í Minneapolis. Innlent 1. nóvember 2004 00:01
Rétt að innheimta skólagjöld Ungir Sjálfstæðismenn segja rétt að veita ríkisháskólum rétt til innheimtu skólagjalda, enda verði þau lánshæf. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna. Innlent 23. október 2004 00:01
Fyrsti heiðursdoktorinn Brautskráningar verða bæði hjá Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands í dag. Meðal annars útskrifast fyrsti meistaraneminn úr heilsuhagfræði og tilkynnt verður um kjör fyrsta heiðusdoktorsins í viðskipta- og hagfræðideild, sem og kjöri heiðursdoktors í heimspekideild. Innlent 23. október 2004 00:01
Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum? Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu. Innlent 22. október 2004 00:01
HR og THÍ sameinaðir Samþykkt hefur verið að sameina Háskólann í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands með stofnun einkahlutafélags sem taka mun yfir starfsemi beggja skólanna. Við sameininguna verður til næststærsti háskóli landsins. Innlent 19. október 2004 00:01
Loks endurskoðun á menntasamningi Vonir standa til að stöðugleiki sé að komast á í menntamálum geðsjúkra. Innlent 12. október 2004 00:01
Slæmt upplýsingastreymi hjá FB Þess sjást engin merki, hvorki í námsvísi né á heimasíðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti, að skólinn veki athygli nemenda á því að sum stúdentspróf skólans veita ekki aðgang að Háskóla Íslands. Innlent 10. október 2004 00:01
Nóbelsverðlaunahafi til Akureyrar Íranski mannréttindafrömuðurinn Shirin Ebadi, núverandi handhafi friðarverðlauna Nóbels, verður í næsta mánuði sæmd heiðursdoktorsnafnbót við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Innlent 7. október 2004 00:01
Nóbelsverðlaunahafi til Akureyrar Íranski mannréttindafrömuðurinn Shirin Ebadi, núverandi handhafi friðarverðlauna Nóbels, verður í næsta mánuði sæmd heiðursdoktorsnafnbót við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Innlent 7. október 2004 00:01
Kærkomin búbót fyrir Háskólann Fyrirtæki og stofnanir styrkja starfsemi Háskóla Íslands í æ ríkari mæli, bæði með launagreiðslum kennara og beinum fjárframlögum til deilda. Ljóst er að um talsverða fjármuni er að ræða þótt heildarupphæðin sé ekki ljós. Innlent 6. október 2004 00:01
Réttindakennurum fjölgar Alls hafa 408 menntaðir grunnskólakennarar sótt um leyfisbréf til menntamálaráðuneytisins til kennslu það sem af er árinu. Það er þegar 60 leyfum meira en allt árið í fyrra. Frá árinu 2000 hefur aukningin numið 158 prósentum. Innlent 4. október 2004 00:01
Kennurum fjölgar um tæp 30 prósent Frá árinu 1998 hefur stöðugildum grunnskólakennara fjölgað um tæplega þrjátíu prósent á sama tíma og nemendum fjölgaði einungis um 5,6 prósent, að því er fram kemur í frétt frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Innlent 4. október 2004 00:01
Ríkið leysi kennaradeilu Stjórnarandstæðingar hvöttu til þess að ríkið greiddi fyrir lausn kennaradeilunnar í umræðum um stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á Alþingi í gær. Innlent 4. október 2004 00:01