Heilbrigðismál
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 213 ›
Segir fimm milljónir króna fyrir sjónmissi hlægilegar bætur Darius Osirus Kazlan varð fyrir hrottalegri líkamsárás á Kaffibarnum í febrúar 2018 sem leiddi til þess að hann missti sjón á vinstra auga. Fimm ár liðu þar til hann fékk bótagreiðslu frá ríkissjóði. Þar spilaði inn í að ofbeldismaðurinn flúði fyrst land og lést svo eftir að dómur var kveðinn upp. Darius telur bótagreiðsluna allt of lága fyrir sjónmissi. Innlent 19.3.2023 09:04
„Ljóst að það er sýklalyfjaskortur í heiminum“ „Við höfum verið að bregðast við með að veita afslætti á skráningarferlum, og vera með hvata til að koma lyfjum úr undanþágukerfinu í markaðsetta hlutann hjá okkur. Það veitir okkur aukið öryggi í sambandi við birgðir og fleira,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar í samtali við Vísi. Innlent 18.3.2023 17:00
Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. Erlent 17.3.2023 09:17
Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim. Innlent 16.3.2023 18:36
Kári lagði Persónuvernd Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19. Innlent 16.3.2023 17:11
Of algengt að fólk leiti ítrekað til læknis áður en það fær krabbameinsgreiningu „Þetta er ekki einsdæmi því miður, og þetta eru auðvitað algjörar sorgarsögur þegar við heyrum þær. Þær eru of margar. Það er einfaldlega þannig,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra Krabbameinsfélagsins. Innlent 16.3.2023 13:18
Dragi úr notkun einkabíla og vinni heima vegna loftmengunar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur borgarbúa til þess að draga úr notkun einkabíls og skorar á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu vegna svifryksmengunar í dag. Styrkur svifryks var hár í morgun og líklegt er að hann hækki aftur í síðdegisumferðinni. Innlent 16.3.2023 11:53
„Vonandi ryður þetta brautina fyrir fleiri sjúklinga“ Kvikmyndagerðarkonan Helga Rakel Rafnsdóttir hefur í langan tíma barist fyrir því að fá aðgang að lyfjum við MND sjúkdómnum. Lyfjastofnun hefur veitt undanþáguleyfi fyrir lyfinu og því fær Helga nú loksins að prófa það. Innlent 16.3.2023 10:27
Stórtíðindi fyrir fólk með MND Lyfjastofnun hefur formlega veitt undanþágu til notkunar á lyfinu Tofersen fyrir fólk sem hrjáist af MND sjúkdómnum. Gjaldkeri samtakanna MND á Íslandi fagnar tíðindunum. Innlent 15.3.2023 21:59
Svipti sálfræðing starfsleyfi sem gaf út marklausar ADHD-greiningar Heilbrigðisráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis um að svipta sálfræðing sem skrifaði upp á ADHD-greiningar sem hvergi voru teknar gildar og gaf sjúklingum lyf án lyfseðils starfsleyfi sínu. Sálfræðingurinn braut lög og er talinn óhæfur til að gegna starfi sínu. Innlent 15.3.2023 21:09
Óvissustigi vegna Covid-19 loks aflétt á Landspítala Landspítalinn var í gær færður af óvissustigi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Runólfur Pálsson forstjóri ákvað þetta í samráði við farsóttanefnd spítalans en sjúkdómurinn Covid-19 virðist nú vera búinn að ná jafnvægi í samfélaginu. Innlent 15.3.2023 07:42
Að minnsta kosti fimm börn getin með stolnu sæði Læknir á sjúkrahúsinu í Halmstad í Svíþjóð tók sæði frá mönnum sem höfðu skilað inn sýnum vegna frjósemisrannsókna og notaði til að gera konur þeim ókunnugar þungaðar. Frá þessu var greint í Uppdrag granskning fyrir helgi. Erlent 14.3.2023 13:15
Blandað kerfi er allra hagur Einstaklingur sem haft hefur búsetu hér á landi í sex mánuði er samkvæmt lögum um Sjúkratryggingar Íslands sjúkratryggður af Íslenska ríkinu. Það þýðir í stuttu máli, að þeir einstaklingar sem falla undir þessa skilgreiningu, eiga rétt á heilbrigðisþjónustu án tillits efnahags eða annara þátta sem skilgreina mismunandi hópa. Skoðun 14.3.2023 09:30
Erfitt að meta þjónustuþörfina í gistiskýlum og þörf á fleiri úrræðum Fjölgað hefur í hópi heimilislausra með fjölþættan vanda sem leita í gistiskýli borgarinnar en takmarkað er hversu mikla þjónustu hægt er að veita þar. Framkvæmdastjóri hjá borginni segir þörf á fleiri úrræðum og kallar eftir aðkomu ríkis og sveitarfélaga. Stórefla þurfi heilbrigðisþjónustu fyrir hópinn en heilbrigðisráðherra boðar meðal annars varanlegt neyslurými. Innlent 13.3.2023 20:55
Ísland efst á meðal þjóða sem geta tekist á við offituvandann Ísland er í fjórða efsta sæti á lista yfir lönd sem eru best sett til að takast á við offituvandann. Erlent 13.3.2023 14:57
Skráargatið – einfalt að velja hollara Samnorræna matvælamerkið Skráargatið var tekið upp hér á landi í lok árs 2013 sem liður í því að stuðla að bættu mataræði þjóðarinnar og þar með minnka líkur á langvinnum sjúkdómum síðar meir. Skoðun 13.3.2023 11:30
Færri að greinast með inflúensu og innlögnum að fækka Færri greindust með staðfesta inflúensu í viku níu samanborið við síðustu þrjár vikur. Heildarfjöldi greindra var 38. Þá greindust færri með Covid-19 en hlutfall jákvæðra sýna af var þó svipað og verið hefur. Innlent 13.3.2023 08:10
Heilbrigðisráðherra telur þörf á morfínklíník Heilbrigðisráðherra telur þörf á skaðaminnkandi úrræði þar sem fólk með alvarlegan vímuefnavanda getur fengið og notað morfín undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. Hann mun stofna starfshóp um aðgerðaáætlun fyrir hópinn og vonast til að geta lagt afraksturinn fyrir þingið næsta vetur. Innlent 12.3.2023 19:32
Heilbrigðismál í Suðurnesjabæ Í Suðurnesjabæ eru byggðakjarnarnir Sandgerði og Garður. Á árum áður voru heilsugæslustöðvar á báðum stöðum en þeim var lokað. Bæjaryfirvöld hafa unnið að málinu í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einnig hafa átt sér stað samtöl við heilbrigðisráðherra og þingmenn kjördæmisins. Skoðun 9.3.2023 22:31
Varað við útivist og áreynslu við miklar umferðargötur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar börn og þá sem viðkvæmir eru fyrir í öndunarfærum við útivist og áreynslu við miklar umferðargötur vegna hækkun á styrk svifryks. Innlent 9.3.2023 15:47
Máttu reka hjúkrunarfræðing sem neitaði hraðprófi Heilbrigðisfyrirtæki var heimilt að rifta ráðningarsamningi skurðhjúkrunarfræðings sem neitaði að gangast undir hraðpróf þegar ómíkronafbrigði kórónuveirunnar blossaði fyrst upp árið 2021. Héraðsdómur taldi konuna hafa gerst seka um verulega vanefnd á samningi sínum við fyrirtækið. Innlent 9.3.2023 14:41
Ekki humma fram af þér heilsuna Flestir þekkja frestunaráráttuna, tilfinninguna að vilja ýta á undan sér einhverju verkefni sem manni hugnast ekki að sinna. Skila einhverju af sér á síðustu stundu og kannski ekki í þeim gæðaflokki sem maður hefði viljað. Að fresta einhverju og fresta því svo aftur, og finna kvíðann magnast þangað til að það er orðið óumflýjanlegt að ljúka verkinu. Skoðun 9.3.2023 07:00
Forsetinn fékk fyrstu sokkana Forseti Íslands tók í dag á móti fyrsta parinu af Mottumarssokkunum sem seldir eru til styrktar árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins tileinkuðu krabbameinum hjá körlum. Lífið 8.3.2023 13:18
Drykkja hefur aukist aftur eftir afnám samkomutakmarkana Áhættudrykkja er farin að aukast aftur eftir að hafa dregist saman þegar samkomutakmarkanir voru í gildi árin 2020 og 2021. Sérfræðingur hjá landlækni segir nauðsynlegt að halda í takmarkað aðgengi að áfengi til að hægt sé að draga úr drykkju á ný. Innlent 7.3.2023 20:16
Alvarlegt að ekki hafi tekist að manna sjúkraflug Heilbrigðisráðherra segir alvarlegt að maður sem beið eftir lifrarígræðslu hafi misst af tækifærinu þar sem ekki tókst að manna sjúkraflug. Tryggja þurfi að atvikið endurtaki sig ekki en til greina komi að taka upp bakvaktir til að tryggja að flugáhöfn sé alltaf til taks. Innlent 7.3.2023 18:27
Endóvika Hvað er endóvika? Jú það er vika til vitundavakningar og fræðslu og vekur verðskuldaða athygli á endómetríósu, sem einnig kallast legslímuflakk. Sjúkdóminn sem mátti ekki og var ekki talað um í áranna raðir. Endómetríósa, eða endó til styttingar, hrjáir konur og einstaklinga sem fæðast í kvenlíkama. Skoðun 7.3.2023 14:30
Stjórnvöld þurfi að taka sig á: „Svona lagað má aldrei endurtaka sig“ Þingmaður stjórnarandstöðunar segir mál manns sem missti af líffæraígræðslu þar sem ekki tókst að manna sjúkraflugvél til að flytja hann til Svíþjóðar - grafalvarlegt. Stjórnvöld þurfi að tryggja að samningar séu til staðar og haldi í öllum tilvikum. Málið megi aldrei endurtaka sig. Innlent 7.3.2023 13:52
Fjórðungur stundar áhættudrykkju en 2.000 hafa hætt að reykja Árið 2022 féll um það bil fjórðungur Íslendinga undir þá skilgreiningu að vera með skaðlegt neyslumynstur áfengis eða stunda svokallaða áhættudrykkju, um 27 prósent karla og 21 prósent kvenna. Innlent 7.3.2023 06:55
Missti af lifur því ekki tókst að manna sjúkraflug Karlmaður sem beðið hefur eftir lifrarígræðslu missti af tækifærinu loksins þegar það kom vegna þess að ekki tókst að manna sjúkraflugvél til að flytja hann til Svíþjóðar. Stjórnendur Landspítalans segja atvik sem þetta ekki mega endurtaka sig. Innlent 6.3.2023 18:34
Lýsir algjöru úrræðaleysi sem foreldri barns með átröskun Arna Pálsdóttir, lögfræðingur og móðir, kallar eftir hugarfarsbreytingu til geðraskana og heilbrigðiskerfi sem veiti barni hennar nauðsynlega þjónustu. Barn hennar glímir við átröskun. Innlent 6.3.2023 16:38