

Rúmum tveimur árum eftir andlát Marie Frederiksson hefur Per Gessle ákveðið að blása nýtt líf í sænsku sveitina Roxette. Sveitin mun halda áfram en fá nýtt nafn og nýjar söngkonur.
Þak nyrðri turns Dómkirkjunnar í Lundi var fjarlægt með stórum krana í gær en framundan eru endurbætur á kirkjunni sem nú er klædd er stillönskum. Mikill fjöldi fólks kom saman til að fylgjast með framkvæmdinni.
Átján ára nemandinn, sem banaði tveimur konum í framhaldsskóla í sænsku borginni Malmö síðdegis í gær, var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning um árásina barst lögreglu.
Lögreglan í Malmö segir tvær konur hafa látist í árás við framhaldsskóla fyrr í dag. Konurnar voru fluttar á sjúkrahús um klukkutíma eftir að lögregla fékk tilkynningu um málið en voru úrskurðaðar látnar í kjölfarið. Konurnar sem létust voru starfsmenn við skólann að sögn lögreglu.
Lögregla var með töluverðan viðbúnað við framhaldsskóla í Malmö í dag þar sem talið var að fjöldi nemenda hafi slasast. Að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT liggur ekki fyrir hvað átti sér stað við skólann. Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að ungur maður vopnaður exi og hníf hafi verið að verki en lögregla hefur ekki gefið neitt út.
Hinn sænski Armand Gustav Duplantis bætti eigið heimsmet í stangarstökki enn á ný en aðeins eru 13 dagar síðan hann bætti það síðast.
Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.
Sænska sjónvarpsstjarnan Petra Mede tilkynnti í viðtali við Nyhetsmorgon á TV4 að hún á von á sínu öðru barni.
Söngkonan Cornelia Jakobs bar sigur úr býtum í keppninni Melodifestivalen með laginu Hold Me Closer. Hún tekur því þátt í Eurovison fyrir hönd Svía í maí.
Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í morgun að til standi að stórauka framlög til varnarmála og að miðað verði við að tvö prósent af vergri landsframleiðslu verði lögð til málaflokksins. Þá verður fleirum gert að gegna herskyldu.
Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Lýðheilsustofnun Svíþjóðar. Hann mun taka við stjórnunarstöðu hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) í Genf.
Sænski skautahlauparinn Nils van der Poel vann tvö gull á Vetrarólympíuleikunum í Peking á dögunum en hann tók þá ákvörðun að gefa annað gullið sitt eftir að hann kom heim frá Kína.
Svíinn Lennart Alm kom félagi sínu mikið á óvart eftir að hann kvaddi þessa jörð.
Sænski tónlistarmaðurinn Björn Ulvaeus og eiginkona hans, Lena Ulvaeus hafa ákveðið að skilja eftir rúmlega fjörutíu ára hjónaband.
Ein þekktasta handboltakona heims og líklega besta handboltakona Svíþjóðar fyrr og síðar, Isabelle Gulldén, gengur í raðir Íslendingaliðsins Lugi eftir tímabilið.
Tjáningarfrelsi er af hinu góða. Um það getum við öll verið sammála. Þetta tjáningarfrelsi leiðir til þess að við fréttum af ýmsu sem við hefðum annars ekki frétt af.
Þremur árum eftir fall kalífadæmis Íslamska ríkisins eru tugir þúsunda fyrrverandi meðlima hryðjuverkasamtakanna enn í búðum og fangelsum sem sýrlenskir Kúrdar reka í norðausturhluta landsins. Að miklu leyti er um erlenda vígamann að ræða og eiginkonur þeirra og börn sem heimaríki þeirra vilja ekki taka við á nýjan leik.
Það er mat íslenskrar sendinefndar, sem tók út mikið magn plastúrgangs sem fannst í vöruskemmu í Svíþjóð, að það sé líklega að stærstum hluta ættað þaðan, en ekki frá Íslandi.
Ingvar Oldsberg, einn þekktasti sjónvarpsmaður Svíþjóðar, er látinn, 76 ára að aldri.
Aflétting langflestra takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins tók gildi í Svíþjóð á miðnætti. Þannig hefur regla um að veitingastaðir þurfi að loka klukkan 23 og hætta áfengissölu klukkan 22:30 verið felld úr gildi.
Tveir grímuklæddir menn réðust vopnaðir hnífum inn í skólastofu í Svíþjóð fyrr í dag. Nemendur og starfsfólk sluppu ómeiddir.
Svíar hyggjast aflétta öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar þann 9. febrúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir því að ríkisstjórn Svíþjóðar greini frá fyrirætlunum á ríkisstjórnarfundi á morgun.
Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur undanfarnar vikur og mánuði háð baráttu við eitilfrumukrabbamein. Hann er nú staddur í Lundi í Svíþjóð og mun fyrstur Íslendinga gangast undir nýja hátæknimeðferð við „aggresívu“ krabbameini.
Svíþjóð er Evrópumeistari í handbolta eftir sigur á Spánverjum í úrslitaleik í Búdapest í dag.
Um fimmtíu manns voru dæmdir til dauða í Austur-Kongó í gær í tengslum við morðið á tveimur sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna árið 2017.
Níu ára gamall drengur og sextug kona létust þegar tré féll á þau vegna stormsins Malik, sem ríður yfir Bretlandseyjar. Þúsundir heimila hafa verið rafmagnslaus í Skotlandi og Englandi vegna stormsins.
Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari Daniel Ståhl – Ólympíumeistara í kringlukasti – var í dag kosinn þjálfari ársins í Svíþjóð.
Yfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að fjölga hermönnum og vopnum á Gotlandi í Eystrasaltshafi. Ástæðan er sögð vera versnandi öryggisástand á svæðinu sem að miklu leyti má rekja til mögulegrar innrásar Rússa í Úkraínu.
Þjálfarinn Sara Snædís Ólafsdóttir býr ásamt eiginmanni sínum Stefáni Jökli Stefánssyni og tveimur dætrum þeirra í Stokkhólmi. Þau heilluðust af borginni á sínum tíma þar sem ekki er langt að fara til Íslands og Stefán valdi skólann KTH í Stokkhólmi fyrir mastersnámið sitt.
Mánaðarlaun Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, hækkuðu á síðasta ári um nærri 30 þúsund sænskar krónur, jafnvirði um 430 þúsund íslenska króna. Laun hans eftir hækkunina nema rúmlega 270 þúsund sænskum krónum eða 3,9 milljónum íslenskra króna.