
Ekvador

Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri
Marco Angulo, leikmaður MLS liðsins FC Cincinnati og landsliðsmaður Ekvador, er látinn aðeins 22 ára að aldri.

Fundu um 40 kíló af kókaíni í bananasendingu
Um 40 kíló af kókaíni fundust í bananasendingum til franskrar verslunarkeðju í vikunni. Efnin fundust í þremur ólíkum verslunum. Lögreglan rannsakar nú hver viðtakandinn var.

Hraun flæðir á Galapagoseyjum
Eldgos hófst á Galapagos-eyjum undan ströndum Ekvador í gærkvöldi. Hraun flæddi úr La Cumbre eldfjallinu á Fernandinaeyju en það er virkasta eldfjalla eyjaklasans fræga, og rann út í sjó.

Óöld í Ekvador
Forseti Ekvador hefur lýst yfir neyðarástandi vegna ofbeldisöldu þar í landi í kjölfar þess að alræmdur leiðtogi glæpagengis hvarf úr fangelsi. Skotbardagar hafa átt sér stað víðs vegar um landið, sprengingar og umfangsmikil rán. Þá hafa fangar hafið óeirðir í nokkrum fangelsum Ekvador á undanfarinni viku.

Byssumenn réðust inn í beina útsendingu og hótuðu sprengjuárás
Hópur manna vopnuðum skotvopnum brutust inn í sjónvarpssett hjá ekvadorska miðlinum TC í borginni Guayaquil fyrr í kvöld meðan á beinni útsendingu stóð.

Bananaprins kjörinn forseti í Ekvador
Bananaerfinginn Daniel Noboa var í gærkvöldi kjörinn forseti Ekvador og verður hann sá yngsti til að sinna embættinu í sögu landsins. Noboa hefur heitið því að taka á ofbeldisöldu sem ríður yfir landið af hörku og auka atvinnustig ungs fólks.

Sakborningar í morðmáli forsetaframbjóðanda drepnir í fangelsi
Mennirnir sex sem grunaðir eru um morðið á ekvadorska forsetaframbjóðandanum Fernando Villavicencio í ágúst eru nú sagðir hafa verið drepnir í fangelsi í Guayaquil í Ekvador, viku fyrir seinni umferð forsetakosninganna.

Bananaerfingi og bandamaður spillts forseta í aðra umferð
Allt stefnir í að kosið verði á milli vinstrisinna og erfingja bananaveldis í annarri umferð forsetakosninga í Ekvador eftir að engum frambjóðanda tókst að tryggja sér hreinan meirihluta í kosningunum þar í gær.

Varaforsetaefni kemur í stað látna forsetaframbjóðandans
Hin ekvadorska Andrea Gonzalez, fyrrverandi varaforsetaefni, hefur tekið við forsetaframboði Fernando Villavicencio sem var skotinn til bana dögunum.

Meintir morðingjar frambjóðandans frá Kólumbíu
Sex menn sem voru handteknir vegna morðsins á Fernando Villavicencio, forsetaframbjóðanda í Ekvador, í gær eru kólumbískir ríkisborgarar. Innanríkisráðherra landsins segir að mennirnir tengist skipulagðri glæpastarfsemi.

Frambjóðandi til forseta Ekvador skotinn til bana
Frambjóðandi í komandi forsetakosningum í Suður-Ameríkuríkinu Ekvador var skotinn til bana á kosningafundi í höfuðborginni Quito í gær.

Lést sjö dögum eftir að hafa lifnað við í eigin jarðarför
Kona sem lifnaði við í eigin jarðarför í síðustu viku er látin, viku eftir að atburðurinn átti sér stað. Hún lést af völdum heilablóðfalls, 76 ára.

Bella lifnaði við í eigin jarðarför
Syrgjendur í jarðarför aldraðrar konu í Ekvador hrukku í kút á föstudaginn var þegar hin látna lifnaði við.

Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu
Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum.

Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador
Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo.

Rannsaka dauða fjögurra skjaldbaka
Yfirvöld í Ekvador rannsaka nú dauða fjögurra risaskjaldbaka sem fundust á Galapagos-eyjum fyrr á árinu. Talið er að veiðiþjófar hafi veitt og borðað þær.

Segja að Ekvador verði hent út af HM vegna falsaðs vegabréfs
Hætt er við því að Ekvador fái ekki að taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur. Síle fái sæti liðsins þar sem ólöglegur leikmaður, með falsað ekvadorskt vegabréf, spilaði með liðinu í undankeppninni.

24 látin eftir aurskriður og flóð í Ekvador
Að minnstu 24 eru látin og tugir eru slasaðir eftir að aurskriður hafa fallið víðs vegar í ekvadorsku höfuðborginni Quito. Úrhellisrigning hefur verið í landinu síðustu daga sem hefur svo framkallað aurskriðurnar og aurflóð.

Fimm ára og eldri skyldaðir í bólusetningu
Bólusetningarskyldu hefur verið komið á í Ekvador í Suður-Ameríku. Allir, fimm ára og eldri, skulu fara í bólusetningu en stjórnvöld tóku ákvörðunina í ljósi fjölgun smita af völdum kórónuveirunnar.

Nærri sjötíu fangar drepnir í fangelsi í Ekvador
Blóðug átök brutust út í fangelsi í Ekvador í gær en 68 létu lífið og yfir 25 særðust í átökunum, sem hófust um kvöldmatarleyti á föstudag.

Spretthlaupari skotinn til bana
Ekvadorinn Alex Quinonez, sem vann til verðlauna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum 2019, var skotinn til bana í borginni Guayaquil í Ekvador síðastliðið föstudagskvöld.

Að minnsta kosti 116 látnir í fangaóeirðum í Ekvador
Að minnsta kosti 116 eru látnir eftir bardaga glæpagengja í Litoral-fangelsinu í borginni Guayaquil í Ekvador. Að minnsta kosti fimm fangar voru afhöfðaðir en aðrir skotnir. Talið er að gengin hafi tengsl við mexíkósk glæpasamtök.

24 dánir og 48 særðir í óeirðum í fangelsi í Ekvador
Minnst 24 fangar eru látnir og minnst 48 særðir eftir miklar óeirðir í fangelsi í Ekvador í gær. Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem óeirðir sem þessar eiga sér stað í landinu vegna baráttu glæpagengja í landinu.

Fundu risaskjaldböku af tegund sem var talin hafa dáið út fyrir rúmri öld
Erfðarannsóknir hafa leitt í ljós að risaskjaldbaka sem fannst á Galapagoseyjum sé af tegund sem vísindamenn töldu hafa dáið út fyrir rúmum hundrað árum.

Bogi Darwins á Galapagos er hruninn
Bogi Darwins, fræg bergmyndun undan strönd einnar Galapagoseyja, er hruninn. Umhverfisráðuneyti Ekvadors greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni og segir hann hafa hrunið vegna náttúrulegrar rofs.

Afglæpavæða þungunarrof í kjölfar nauðgunar
Stjórnlagadómstóll Ekvador hefur komist að þeirri niðurstöðu að lagaákvæði sem banni þungunarrof í kjölfar nauðgunar brjóti gegn stjórnarskrá landsins. Sjö dómarar voru á þessu máli, gegn tveimur en rætur þess má rekja til baráttu kvennréttindasamtaka í Ekvador.

Létu þriggja og fimm ára stúlkubörn falla niður fjögurra metra háan landamæravegg
Bandaríska landamæragæslan birti í gær myndband sem sýnir hvar tvö börn eru látin detta yfir rúmlega fjögurra metra háan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Börnin tvö eru systkini frá Ekvador og talið er að smyglarar hafi verið að verki.

75 fangar létu lífið í átökum í Ekvador
Að minnsta kosti 75 fangar létu lífið í blóðugum átökum liðsmanna tveggja glæpagengja innan veggja þriggja fangelsa í Ekvador í gær. Fangaverðir þurftu að leita aðstoðar hjá bæði lögreglu og hernum til að ná aftur stjórn á ástandinu í fangelsunum.

Sagðir ógna fiskistofnum og fæðuöryggi með sautján þúsund skipa veiðiflota
Sjóher Ekvador uppgötvaði nýverið 340 skipa veiðiflota við veiðar við hinar frægur Galápagoseyjar. Þar var á ferð floti frá Kína sem var að veiða smokk- og túnfisk.

Þrír af hverjum tíu gætu veikst alvarlega
Heilbrigðistofnun Ameríkuríkja varar nú við því að kórónuveirufaraldurinn á svæðinu sýni engin merki þess að vera að hægja á sér.