
Samfylkingin

Hart tekist á og saka hvort annað um skattahækkanir
Formaður Samfylkingarinnar sakar stjórnvöld um að hækka skatta á ungt fólk og fjölskyldur og að reka ósjálfbæra atvinnustefnu í landinu. Forsætisráðherra segir Samfylkinguna á móti ekki boða neitt annað en skattahækkanir og aukin ríkisútgjöld.

Almennt launafólk finni ekki fyrir auknum kaupmætti
Formaður Samfylkingarinnar segir almennt launafólk ekki verða vart við aukinn kaupmátt, enda ekki tekið tillit til mikillar vaxtabyrði heimilanna. Fjármálaráðherra segir fjárlagafrumvarpið hins vegar styðja við heimilin í landinu á sama tíma og verðbólga fari minnkandi.

Látið sjóði verkafólks vera
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar koma fram áform um að fella brott framlag til jöfnunar á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða: lækka það um 4,7 milljarða strax á næsta ári og afnema til fulls árið þar á eftir.

„Þetta er allt að koma...eftir sjö ár“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ýkja hrifin af fjárlagafrumvarpinu sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í dag undir yfirskriftinni „Þetta er allt að koma“. „Þetta er allt að koma...eftir sjö ár,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.

Segir þrásetu ríkisstjórnarinnar stórskaðlega
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sér fátt eitt jákvætt í nýju fjárlagafrumvarpi. Þráseta ríkisstjórnarinnar sé þegar farna að valda verulegum skaða í efnahagsmálum.

Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“
Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga.

Smelltu Kristrúnu í hitasætið og kalla eftir aðgerðum
Ungt jafnaðarfólk kallar eftir „verulegum skattahækkunum“ á stórtæka íbúðaeigendur, stóraukinni aukningu á uppbyggingu óhagnaðardrifinna leiguíbúða, og að fólk fái hundrað prósent launa sinna greidd í fæðingarorlofi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun landsþings Ungs jafnaðarfólks sem fram fór í Hafnarfirði í dag.

Dagarnir miklu fleiri hjá Davíð og Ingibjörgu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk greidda 143 ótekna orlofsdaga í starfi borgarstjóra. Dagarnir voru 93 hjá Davíð Oddssyni en fyrirkomulag við greiðslu ótekin orlofs var tekið upp þegar hann var borgarstjóri. Markús Örn Antonsson fékk greidda út 90 ótekna orlofsdaga.

Vilja koma böndum á AirBnb leigu á Íslandi
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir stefna í þungan þingvetur. Hún á von á því að stærstu málin framundan á þingi verði húsnæðis- og efnahagsmál. Hún boðar nýtt útspil Samfylkingarinnar þar sem, meðal annars, verður kynnt nýtt inngrip á AirBnb skammtímaleigu á Íslandi. Kristrún ræddi komandi þingvetur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins.

Fjórðungur landsmanna vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið
Um það bil 24 prósent landsmanna vill sjá Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, sem næsta forsætisráðherra Íslands. Næstur er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, með níu prósent.

VG er týnd
Vinstri hreyfingin grænt framboð vill leita rótanna, fara til upprunans, ef maður skilur formann flokksins, Guðmund Inga Guðbrandsson, rétt. Hann vill róttækari VG: „Þannig við þurfum að leita í ræturnar og ákveða hvar viljum við staðsetja okkur í næstu kosningum og í mínum huga þarf það að vera vel til vinstri“ skv. mbl.is

Ósátt að Kolbrún birti bréfið í hennar óþökk
Ásta Þ. Skjaldal Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segir Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttir, oddvita Flokk fólksins í Reykjavík, hafa birt bréf hennar til forseta borgarstjórnar um framkomu Hjálmars Sveinssonar, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, á fundi í hennar óþökk.

Segir framkomu Hjálmars á fundi merki um ofbeldismenningu
„Á umhverfis og skipulagsráðsfundi [...] veittist borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Hjálmar Sveinsson, að fjarverandi borgarfulltrúa Flokks fólksins, Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, á einstaklega rætinn og ómaklegan hátt og tel ég að með orðum sínum hafi hann brotið siðareglur kjörinna fulltrúa [...] auk þess sem ég tel orð hans vera aðför að lýðræði borgarbúa.“

Skeytasendingar ráðherra til marks um valdþreytu
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem nokkrir hafa munnhöggvast opinberlega síðustu daga, nota stöðu sína í eigin þágu til að skapa sér sérstöðu í aðdraganda kosninga.

Fundur leigjendasamtakanna með húsnæðishóp Samfylkingar
Í síðustu viku átti Yngvi Sighvatsson, varaformaður Leigjendasamtakanna, fund með Jóhanni Páli Jóhannssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, sem fer fyrir húsnæðishópi flokksins í aðdraganda komandi kosninga.

Eflum Mjódd sem miðstöð almenningssamgangna fyrir landið allt
Sterkar almenningssamgöngur fyrir fjölmennsta íbúahorn landsins ætti að vera í algjörum forgangi hjá pólitíkinni - svæði sem 82% landsmanna býr á og langflestir ferðamenn snerta fyrst. Strætó bs. þjónustar höfuðborgarsvæðið og landsbyggðarstrætó, sem Vegagerðin ber ábyrgð á og rekur, sinnir á tengingu út land, eins og til Keflavíkur, Akureyrar og austur fyrir fjall.

Hildur biður Samfylkinguna afsökunar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, biður Samfylkinguna afsökunar á rangfærslum í grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í dag. Í greininni segir hún Samfylkinguna ekki hafa komið á tólf mánaða fæðingarorlofi þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um að svo hafi verið, það reyndist ekki alveg rétt hjá henni

Til stuðnings Kristrúnu Frostadóttur
Nú býðst sósíaldemókrötum og vinstri mönnum að sameinast um ábyrga stefnu í útlendingamálum – og fleiri málum. Ekki er óhugsandi að einhverjum hafi þótt mál til komið.

Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít
Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga.

Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fagnaði kosningasigri Verkamannaflokksins í Bretlandi með formanni flokksins, Keir Starmer. Kristrún segir Starmer meðvitaðan um uppgang Samfylkingarinnar á Íslandi.

Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn
Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag en Íhaldsflokkurinn stendur ákaflega illa; ekki einu sinni forsætisráðherrann er öruggur um þingsæti. Formaður Samfylkingarinnar, sem er stödd úti í Bretlandi til að fylgjast með kosningum, segir greinilegt að Bretar vilji breytingar.

VG mælist enn úti af þingi og Samfylkingin dalar
Vinstri græn mælast með 4 prósenta fylgi og fylgi Samfylkingarinnar dalar mest í nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Miðflokkurinn bætir mestu við fylgi sitt og mælist með 14,5 prósent fylgi.

Kjósendur hafi nýtt forsetakosningar til að senda pólitíkinni skilaboð
Stefán Einar Stefánsson þáttastjórnandi segir mikla þreytu meðal almennings á núverandi ríkisstjórn og niðurstöður kannanna endurspegli það. Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu er Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 14,7 prósenta fylgi og Samfylkingin með mest fylgi, 27,1 prósent. Miðflokkurinn er með 12,7 prósent í sömu könnun og Vinstri græn fimm prósent.

Væru með helmingi færri þingmenn
Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega.

Miðflokkurinn nartar í hæla Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu en Sósíalistaflokkurinn bætir við sig tveimur. Marktækur munur er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sextánda mánuðinn í röð. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er nú 30 prósent og hefur aldrei verið lægra.

Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti
Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst.

„Þetta er ekki það sem ég kalla að vinna frítt“
„Þetta er ótrúleg fullyrðing. Það er svo margt í þessari stuttu færslu sem maður gæti gert athugasemdir við. Ég gæti í allan dag nefnt dæmi um það hvernig borgin hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni með því að hafa Dag í stóli borgarstjóra. Ég held að borgarbúar hefðu farið betur úr því að fá nýjan borgarstjóra og greiða biðlaun.“

Er aðeins á biðlaunum og hnýtir í Hildi og Morgunblaðið
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, verður á biðlaunum borgarstjóra í sex mánuði eftir að hann lét af störfum í byrjun árs. Hann mun ekki þiggja laun sem formaður borgarráðs á tímabilinu.

Jón hafi fengið leyfi til að hrauna yfir Bjarkeyju og VG
Oddný G. Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar furðar sig á stórum orðum Jóns Gunnarssonar í umræðum um vantraust á hendur matvælaráðherra, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, í dag. Jón sat hjá í atkvæðagreiðslu um vantraust einn stjórnarliða.

Loksins ábyrg og öfgalaus útlendingapólitík í Samfylkingunni
Þegar Kristrún Frostadóttir tók við formannshlutverki í Samfylkingunni lofaði hún flokksmönnum og almenningi öllum að undir hennar forystu myndi Samfylkingin sýna hæfni og styrk í stjórnarandstöðu.