
Reykjavík

Hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum
Handhafi stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um að leggja á hann stöðubrotsgjald. Handhafinn hafði lagt bíl sínum í almennt stæði á göngugötu en Bílastæðasjóður taldi honum aðeins heimilt að leggja í sérmerkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða á göngugötu.

Lúxushótelið við Hörpu opnar loks í næstu viku og býður opnunartilboð
Nýjasta viðbótin í flóru íslenskra lúxushótela opnar síðar í þessum mánuði þegar The Reykjavík Edition tekur á móti sínum fyrstu gestum. Ítrekaðar tafir hafa orðið á verklokum en upphaflega stóð til að opna nýja fimm stjörnu hótelið við hlið Hörpu árið 2018.

Kviknaði í rafmagnshjóli við Hjarðarhaga
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynning barst um að kviknað hafi í rafmagnshjóli fyrir utan Hjarðarhaga 56 í Reykjavík.

Réðst á dyravörð eftir að hafa verið vísað út
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða í nótt mann sem hafði ráðist á dyravörð skemmtistaðar eftir að dyravörðurinn hafði vísað honum af staðnum.

Skotsvæðið Álfsnesi
Á Álfsnesi hafa tvö íþróttafélög verið með sína æfingar aðstöðu í yfir tíu ár. Áframhaldandi starfsleyfi fyrir Skotfélag Reykjavíkur gaf Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur út í vor. Leyfið var allt annað en það leyfi sem fyrir var og verulega dregið úr þeim tíma sem hægt var að hafa skotsvæðið opið.

Föt karlmanns fundust við Elliðaá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um að föt af karlmanni hefðu fundist við Elliðaá. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að dróni hafi verið notaður til að skoða ána.

Hverfið mitt 2.0
Hverfið mitt kosningin er hafin! Öll sem eru fædd árið 2006 eða fyrr og eiga lögheimili í Reykjavík, óháð ríkisborgararétti, tekið þátt í kosningunni. Kosningin er rafræn á hverfidmitt.is og stendur yfir í tvær vikur eða til hádegis 14. október.

Ljósastaurar í Breiðholti fengu að finna fyrir því
Lögreglumenn sem voru við eftirlit í Breiðholti í gærkvöldi urðu vitni að því þegar ökumaður ók á ljósastaur.

Gekk um miðbæinn með hníf í hendi
Í gærkvöldi þurfti lögregla að hafa afskipti af manni sem gekk um miðborg Reykjavíkur með hníf í hendi.

Lögregla hafði afskipti af vopnuðum manni við Kattakaffihúsið
Á áttunda tímanum í kvöld barst lögreglu tilkynning um mann vopnaðan hnífi í Bergstaðastræti, nánar tiltekið fyrir utan Kattakaffihúsið í Bergstaðastræti 10.

Sjaldgæfur gestur í Vatnsmýrinni
Bognefur sást í Vatnsmýrinni í gær en sá fugl er mjög sjaldgæfur gestur hér á landi. Fuglinn er af storkættum og er skreyttur litríkum fjöðrum.

Fær ekki að hafa kött í blokk vegna ofnæmis nágranna
Í nýlegu áliti kærunefndar húsamála segir að íbúum fjölbýlishúss í Reykjavík sé óheimilt að hafa ketti í húsinu vegna ofnæmis íbúa.

Jöfn tækifæri til náms fyrir öll börn
Mætum börnum þar sem þau eru óháð greiningum. Verum fyrri til og styðjum við þau og styrkjum áður en þau hrasa. Grípum þau sem þess þurfa. Höldum á sama tíma vel utan um peningana og pössum að þeir nýtist börnunum okkar sem allra best. Þetta eru allt áherslur í Eddu, sem er nýtt úthlutunarlíkan fyrir grunnskóla í Reykjavík og var samþykkt í vikunni.

Háttaði sig og steinsofnaði í sófa hjá ókunnugum
Íbúi í miðbæ Reykjavíkur þurfti að óska eftir aðstoð lögreglu í nótt eftir að ókunnugur maður lagðist til svefns í íbúð hans.

Unglingur sparkaði í lögreglubíl og hrækti á lögreglumann
Töluvert annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Sautján ára karlmaður var handtekinn í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur undir miðnætti.

Flugvél Icelandair snúið við frá Reykjavíkurflugvelli: Farþegar biðu í tæpar tvær klukkustundir
Flugvél Icelandair á leið frá Akureyri til Reykjavíkur gat ekki lent á Reykjavíkurflugvelli sökum sviptivindar í kvöld. Vélinni var beint til Keflavíkur þar sem við tók glundroði og löng bið.

Ók bíl á bensíndælurnar á Sprengisandi
Í kvöld varð slys á eldsneytisstöð Atlantsolíu á Sprengisandi þegar bifreið var ekið yfir eldsneytisdælu.

Skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gegn eiginkonu og dóttur
Karlmaður var í dag dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni með ofbeldi, kýlt hana í andlit, togað í hár hennar og hrækt á hana. Þá hafi hann tekið í fætur dóttur sinnar er hún reyndi að koma móður sinni til aðstoðar, svo hún féll niður úr rúmi.

Fall WOW var upphafið að endalokum Hótels Sögu
Formaður Bændasamtakanna segir fall WOW flugfélagsins í mars 2019 hafa markað upphafið að endalokum Hótels Sögu en rekstrarfélag þess var tekið til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Alger óvissa ríki um framtíð húsnæðisins.

Vakta fjörur eftir bilun í hreinsistöð
Komið hefur upp bilun í hreinsistöð við Ánanaust í Reykjavík og fer því óhreinsað skólp í sjó.

Versta manneskja í heimi opnaði RIFF í Gamla bíói
RIFF - Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík var sett formlega í Gamla bíói í gær. Opnunarmynd hátíðarinnar var kvikmyndin Versta manneskja í heimi.

Ógætilegur akstur á skólalóð en báðir aftur í þegar lögreglu bar að
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í gær þrjár tilkynningar þar sem um var að ræða ógætilegur akstur bifreiða á bifreiðastæðum. Í tveimur tilvikum höfðu ökumenn látið af háttsemi sinni þegar á staðinn var komið.

Stærsta gjöf sem Reykjavíkurborg hefur þegið
Dóttir listakonunnar Nínu Tryggvadóttur hefur ánafnað Reykjavíkurborg á annað þúsund listaverk eftir móður sína og allar eigur sínar eftir hennar dag. Verkin verða sett upp í fyrsta listasafni Reykjavíkur sem kennt verður við íslenska listakonu.

Um fimmtíu sekúndna ganga frá nýja kvennaklefanum upp í innilaugina
Gestir Sundhallarinnar eru sammála gagnrýni þess efnis að gönguleið frá nýjum kvennaklefa og í innilaugina sé of löng. Laugin standi þrátt fyrir það alltaf fyrir sínu og sé stórkostleg sem fyrr.

Borgarráð samþykkir stofnun Jafnlaunastofu
Borgarráð samþykkti í dag einróma að setja á fót sjálfstæða starfseiningu á sviði jafnlaunamála. Starfseiningin ber heitið Jafnlaunastofa og verður einingin sameignarfélag í eigu Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Gefur Reykvíkingum meira en þúsund listaverk eftir móður sína
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Una Dóra Copley, dóttir Nínu Tryggvadóttur listakonu, undirrituðu í dag samning um stofnun Listasafns Nínu Tryggvadóttur. Safnið verður fyrsta myndlistasafn Reykjavíkurborgar sem kennt verður við og tileinkað íslenskri listakonu.

Ákærður fyrir að hafa nauðgað og ítrekað beitt unnustu sína ofbeldi
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi fyrir að hafa margveist að þáverandi unnustu sinni, ráðist á hana og nauðgað henni í lok árs 2018 og byrjun árs 2019. Maðurinn hefur verið krafinn um að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur fyrir ofbeldið.

Stefna að miklum fjárfestingum og lækkun skulda
Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtæki munu fjárfesta fyrir um 106 milljarða króna á næstu sex árum. Það er samkvæmt fjárhagsspá samstæðunnar sem samþykkt var af stjórn OR í dag.

Of seint fyrir Gústa að aðlagast náttúrunni og sambúðin versni þegar hann þroskast
„Gústi refur hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu og þá sérstaklega „eigandi“ hans Tiktok stjarnan Ágúst Beinteinn Árnason. Refur þessi er haldinn að því er virðist í miðborg Reykjavíkur þar sem hann er í tjóðri eiganda síns honum til skemmtunar. Það þarf að sjálfsögðu ekki að fjölyrða um að hér er um lögbrot að ræða, enda refir villt dýr sem ekki má halda án sérstaks leyfis.“

Ákærðir fyrir að hafa beitt IKEA-borðhníf og glasi gegn hvor öðrum
Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að hafa veist hvor að öðrum að næturlagi í október í fyrra. Annar maðurinn beitti hinn glerglasi á meðan hinn mundaði borðhníf frá IKEA í slagsmálunum. Báðir eru þeir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn hvor öðrum.