
Mýrdalshreppur

Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum
Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli er í rénun. Prófessor í jarðeðlisfræði segir öll fjögur jökulhlaupin sem hafa orðið úr jöklinum eftir Kötlugos 1918 hafa komið án fyrirvara. Af þeim hafi jökulhlaupið í gær verið það minnsta.

RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið
Ljósmyndarinn RAX flug yfir Skálm og Mýrdalsjökul í dag og fangaði sjónarspilið á svæðinu eftir að jökulhlaup varð úr jöklinum í gær.

Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan
Fjöldinn allur af ferðamönnum bíður nú við Laufskálavörðu, austan megin við Skálm, eftir að þjóðvegurinn opni. Fjölmiðlamaðurinn Gunnlaugur Helgason, eða Gulli Helga, er á svæðinu og spáir enn lengri bið.

Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann
Jökulhlaupið í Mýrdalsjökli og lokanir á þjóðveginum hafa haft margvísleg áhrif á ferðamenn og ferðaþjónustu á svæðinu. Ferðir hafa verið felldar niður, miklar breytingar hafa orðið á bókunum og dæmi eru um að fólk hafi misst af flugi.

Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið
Talið er að tvö jökulhlaup hafi valdið einu stærsta hlaupi úr Mýrdalsjökli um árabil. Það er í rénun en nokkur jarðskjálftavirkni hefur mælst undir jöklinum.

Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn
Hlaupvatn er ennþá í ánni Skálm og jökulhlaupið er ekki búið, en dregið hefur verulega úr rennsli og vatnshæðin er komin undir það sem hún var fyrir hlaup. Nokkurrar jarðskjálftavirkni hefur orðið vart í vestanverðum Mýrdalsjökli og í Sólheimajökli, sem telst eðlilegt eftir hlaup.

Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss
Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli hefur náð hámarki við þjóðveg 1. Ekkert í gögnum veðurstofunnar bendir til þess að hlaupið sé afleiðing eldgoss undir jöklinum.

Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum
Veðurfræðingur segir líklegt að jökulhlaup úr Mýrdalsjökli hafi þegar náð hámarki. Jökulhlaup verði á hverju sumri en óljóst sé hvað veldur því að sum séu stærri en önnur. Sem fyrr sé möguleiki á eldgosi í Kötlu.

„Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“
Óvissustig er í gildi vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Lögreglustjórinn á Suðurlandi segist ekki vitað til þess að neinn hafi verið í hættu og segir aðgerðir hafa gengið vel. Fyrir liggur að hlaupið er á pari við jökulhlaupið í Múlakvísl 2011.

„Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“
Oddviti Skaftárhrepps segist hafa í allt að aldarfjórðung séð fyrir að atburðarás á borð við þá sem varð í dag þegar jökulhlaup varð úr Mýrdalsjökli, gæti gerst. Hann segir stærðargráðu hlaupsins slíka að það hefði valdið tjóni sem þessu hvar sem það hefði orðið.

Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi beinir því eindregið til fólks að halda sig frá svæðinu milli Skaftártungu og Víkur í Mýrdal. Áhyggjur eru af gosmengun og þá hefur vatn flætt yfir hringveginn og fleiri vegi á svæðinu.

Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað
Jökulhlaup er hafið úr Mýrdalsjökli og miklir vatnavextir er í Skálm austan Mýrdalsjökuls. Hringveginum er lokað milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs, þar sem vatn flæðir yfir veginn á köflum.

Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki
Íris Guðnadóttir, talsmaður landeigenda í Reynisfjöru, segir mál manns sem var ofrukkaður fyrir bílastæði við Reynisfjöru vera leiðan misskilning sem búið er að kippa í lag. Ekki sé verið að okra á ferðamönnum heldur borga fyrir nauðsynlega innviði.

Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru
Adolf Ingi Erlingsson leiðsögumaður segir farir sínar ekki sléttar af fyrirtækinu MyParking ehf, sem hann segir hafa rukkað sig um 2800 krónur aukalega fyrir bílastæði við Reynisfjöru en þegar höfðu verið greiddar þúsund krónur fyrir stæðið. Lendi ferðamenn á bílaleigubílum í því sama þurfi þeir að greiða enn meira.

Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls
Þyrla landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita á Norður- og Suðurlandi var kölluð út nú fyrir skömmu. Fyrst vegna reiðhjólaslyss í Ásbyrgi og síðan vegna tveggja ferðalanga sem féllu af sporði Sólheimajökuls og ofan í jökullónið.

Gekk fram á sofandi ferðamann á heilsugæslunni
Við Helgu Þorbergsdóttur hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni í Vík í Mýrdal blasti óvænt sjón á morgungöngu sinni í dag. Við inngang heilsugæslustöðvarinnar lá eins manns tjald og í því sofandi ferðamaður.

Tvö þyrluútköll á Suðurlandi í gær og í nótt
Lögreglan á Suðurlandi óskaði í tvígang eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær og í nótt vegna göngumanna sem lentu í vandræðum á fjöllum.

„Þeir voru hissa að þarna hafi einhver komið lifandi út“
Betur fór en á horfðist þegar vörubíll hafnaði á hvolfi á vegakafla í Gatnabrún í Mýrdalshreppi í gær. Ökumannshús bílsins féll saman.

Vörubíll hafnaði utan vegar á hliðinni í Mýrdalshreppi
Vörubíll hafnaði á hliðinni eftir að hafa ekið út af veginum í neðstu beygjunni í Gatnabrún í Mýrdalshreppi á Hringveginum. Umferð hefur verið stöðvuð tímabundið.

Þrír skjálftar í Mýrdalsjökli í kvöld
Skjálfti af stærð 3,3 varð í Mýrdalsjökli klukkan 21:26 í kvöld. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að tveir minni skjálftar, báðir af stærð 2,8, hafi orðið stuttu síðar.

Fjórhjólaslys við Sólheimajökul
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út klukkan 14:20 í dag vegna fjórhjólaslyss við Sólheimajökul. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi.

Baðaði sig í Reynisfjöru
Barbora Georgsdóttir Fialová, grunnskólakennari, varð vitni að því þegar að maður um þrítugt gerði sér lítið fyrir og tók stuttan sundsprett í Reynisfjöru að kvöldi til þann 22. maí.

Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal
Mikil þörf er á byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vík í Mýrdal og því hefur sveitarstjóra verið falið að vinna að málinu með heilbrigðisráðuneytinu. Lagt er til að fasteignafélögum verið gefið tækifæri til að standa að byggingu og rekstri húsnæðisins.

Mýrdalshlaup í þoku og súld
Mýrdalshlaupið fór fram í ellefta skipti í Vík í Mýrdal í gær. Keppt var í 10 km og 21 km hlaupi en auk þess fór fram 3 km skemmtiskokk sem var vel sótt. Talsverð súld og þoka var yfir rásmarkinu í fjörunni í Vík þegar tæplega 400 keppendur lögðu af stað kl 11.00 í gærmorgun.

93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi
Þú ert aldrei of gamall eða gömul til að syngja í kór en það þekkir Ingibjörg Helga, sem er 90 ára og Steinunn Aðalbjörg, sem er 93 ára og syngja saman í kór á Selfossi og Reynir, sem er 90 ár og syngur í kór í Vík í Mýrdal.

Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum
Þeir voru ánægðir og stoltir með sig sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi og sauðfjárbóndi í sveitinni, sem fengu að syngja „O sole mio“ á tónleikum í Vík með Gissuri Páli Gissurarsyni, tenór.

Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina
Það iðar allt af lífi og fjör í Vík í Mýrdal um helgina því þar fer fram hátíðin “Vor í Vík” með mjög fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt
Ég vil óska Mýrdalshreppi til hamingju með að hafa hlotið samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunar í ár fyrir að hafa sett á laggirnar enskumælandi ráð árið 2022. Ráðið er skipað sjö fulltrúum af sex þjóðernum. Tilgangur með þessu ráði er að skapa íbúum af erlendu bergi tækifæri til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt, þó að viðkomandi hafi ekki náð valdi á íslenskri tungu, sem að flestra mati er erfitt tungumál að læra.

Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs
Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í Mýrdalshreppi segir mikilvægt að þegar rætt er um enskumælandi ráð í sveitarfélaginu sé litið þess af hverju það var stofnað og við hvaða aðstæður. Hefði ráðið ekki verið stofnað hefði stór hluti íbúa verið útilokaður frá lýðræðisþátttöku.

Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni?
Ég las í gær grein sem Snorri Másson fréttamaður skrifaði um enskumælandi ráð sem sett var á fót hér í Mýrdalshreppi í upphafi þessa kjörtímabils. Eins las ég pistil sem Eiríkur Rögnvaldsson prófessor í íslensku ritaði í Facebook hópinn Málspjallið fyrr í dag.