Skattar og tollar
1 2 3 4 5 6 7 8 … 35 ›
Enn meiri lækkanir í Asíu við opnun markaða Markaðir í Asíu tóku mikla dýfu við opnun í morgun og ekkert lát er á lækkunum á hlutabréfaverði frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti fyrirætlanir sínar um miklar tollaálögur sem hann hyggst leggja á öll ríki. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um heil 6,5 prósent í morgun. Viðskipti erlent 7.4.2025 06:49
Kerfi alþjóðaviðskipta í uppnámi og erfitt að verðleggja áhættu til lengri tíma Ákvörðun Donald Trumps að efna til viðskiptastríðs við helstu viðskiptaþjóðir Bandaríkjanna með því að setja á sögulega háa innflutningstolla hefur sett fyrirkomulag alþjóðaviðskipta í uppnám, sem ekki sér fyrir endann á, og fjárfestar eiga afar erfitt með að verðleggja áhættu til lengri tíma, að sögn framkvæmdastjóra Visku. Vegna mikillar óvissu í efnahagsumhverfinu sé þetta ekki rétti tíminn til að „spila aggressífan leik“ en hann telur óhjákvæmilegt að Seðlabanki Bandaríkjanna bregðist við hratt versnandi efnahagshorfum með lækkun vaxta ásamt öðrum aðgerðum til að auka seljanleika á markaði og enginn eignaflokkur „hlaupi hraðar“ í þeim aðstæðum en rafmyntir. Innherji 6.4.2025 13:38
Tollar Trumps kalli á að Ísland aðlagi sig að breyttum leikreglum Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að nýir tollar Bandaríkjastjórnar þýði að leikreglur í alþjóðaviðskiptum hafi breyst. Stjórnvöld hér á landi verði að aðlaga sig að breyttum veruleika, óvissa sé orðið nýja normið. Það muni taka langan tíma að koma í ljós hvort tollarnir muni skila sér með þeim hætti sem Bandaríkin vonist eftir en til styttri tíma verði þeir sársaukafullir fyrir alþjóðahagkerfið. Viðskipti innlent 6.4.2025 13:21
Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Þúsundir mótmælenda sem eru óánægðir með það hvernig Trump stýrir Bandaríkjunum söfnuðust saman á um 1.200 skipulögðum mótmælum í 50 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Auk þess voru skipulögð mótmæli í bæði Kanada og Mexíkó og í London, París og Berlín í Evrópu. Erlent 6.4.2025 08:40
Vill tollalaus viðskipti við Evrópu Elon Musk segir að ákjósanlegt væri að viðskipti milli Evrópu og Bandaríkjanna verði tollalaus og að hægt verði að gera einhverskonar fríverslunarsamning. Erlent 5.4.2025 22:20
„Þetta verður ekki auðvelt“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að tollahækkanir sem tóku gildi í dag séu efnahagsleg bylting, og Bandaríkjamenn muni sigra. „Þetta verður ekki auðvelt, en lokaniðurstaðan verður söguleg,“ segir hann. Erlent 5.4.2025 19:48
Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana Jaguar Land Rover ætlar að gera hlé á bílasendingum til Bandaríkjanna í apríl eftir 25 prósenta tollahækkun Bandaríkjastjórnar á innflutning allra erlendra bíla. Almenn tíu prósent tollahækkun á innflutning breskra vara til Bandaríkjanna tók gildi í dag. Viðskipti erlent 5.4.2025 16:41
Tollahækkanir Trump taka gildi Tollverðir í Bandaríkjunum byrjuðu í dag að innheimta tíu prósenta toll á allar vörur sem fluttar eru inn til Bandaríkjanna. Eftir viku munu tollarnir hækka á vörum sem fluttar eru inn frá 57 löndum utan Bandaríkjanna. Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í vikunni um víðtækar tollahækkanir á flest lönd heims. Erlent 5.4.2025 08:20
Eldrauð Kauphöll: Bandaríkjamenn horfi fram á lakari lífskjör Annan daginn í röð var allt eldrautt í Kauphöllinni og eru Wall Street og aðrir erlendir markaðir þar ekki undanskyldir. Hagfræðingur segir alveg ljóst að nýir tollar Bandaríkjaforseta hafi þar áhrif, óvissan sé gríðarleg og erfitt að spá fyrir um framhaldið. Viðskipti innlent 4.4.2025 19:02
Tollar – Fyrir hverja? Á miðvikudaginn s.l. tilkynnti forseti Bandaríkjana um víðtæka álagningu tolla á innfluttar vörur til Bandaríkjanna. Þessir tollar eru er frá 10% og upp úr. Þeir geta svo hækkað ef tollastríð hefst. Forsetinnn tengir þetta við frelsi og að tollarnir væru lagðir á til þess að vernda bandaríska framleiðslu, færa framleiðsluna heim. Skoðun 4.4.2025 17:03
Verðfall á Wall Street Virði hlutabréfa á mörkuðum vestanhafs tók góða dýfu niður á við þegar markaðir opnuðu þar í dag. Er það eftir mjög slæman gærdag og í kjölfar þess að ráðamenn í Kína tilkynntu fyrr í dag að þann 10. apríl yrði settur 34 prósenta tollur á allan innflutning frá Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 4.4.2025 14:32
Nánast allir telja útgerðirnar geta greitt hærri veiðigjöld Rúmlega sextíu prósent þjóðarinnar eru hlynntir frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingar á veiðigjöldum. 94 prósent telja að útgerðirnar séu færar um að greiða hærri veiðigjöld en þær gera í dag. Viðskipti innlent 4.4.2025 11:53
Talaði gegn eigin ráðgjöfum um tollana Helstu ráðgjafar og ráðherrar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vörðu stórum hluta gærdagsins í viðtöl við fjölmiðla. Þar voru þeir flestir sammála um að umfangsmiklir tollar Trumps á flest öll ríki heims væru komin til að vera. Ekki væri um að ræða einhverskonar opnunarleik fyrir viðræður um milliríkjaviðskipti Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 4.4.2025 11:21
Tollastríð geti haft áhrif á vaxtalækkunarferli og íslenska ferðaþjónustu Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir tollahækkanir Trump geta haft áhrif á íslenska ferðaþjónustu og vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Ísland hafi sloppið vel en erfitt sé að gera sér grein fyrir mögulegum tækifærum sem felist í aðgerðunum. Viðskipti innlent 4.4.2025 09:31
Trump-tollarnir muni ekki kollsteypa útflutningsgreinum Íslands Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að hinir nýju tollar sem Bandaríkjaforseti tilkynnti um á miðvikudag og lagðir verða á vörur frá Íslandi, muni ekki kollsteypa íslenskum útflutningsgreinum. Nýju tollarnir séu ekki góðar fréttir en að staðan gæti vissulega verið verri. Viðskipti innlent 4.4.2025 08:02
Lækkanir í Asíu halda áfram Lækkanir urðu á mörkuðum í Asíu þegar þeir opnuðu í nótt, annan daginn í röð eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um tollaálögur sem settar verða á öll lönd heimsins og hafa vakið áhyggjur manna um niðursveiflu í hagkerfi heimsins. Viðskipti erlent 4.4.2025 07:29
„Svartari sviðsmynd en flestir bjuggust við“ Forstjóri Össurar segir nýjan tíu prósenta toll á allan útflutning til Bandaríkjanna vera mikil vonbrigði, um sé að ræða mikilvægasta markað fyrirtækisins. Nýir lágmarkstollar á allan innflutning til Bandaríkjanna taka gildi á laugardaginn. Viðskipti innlent 3.4.2025 22:01
Ísland megi ekki verða á milli í stríði ESB og Bandaríkjanna Atvinnuvegaráðherra segir tolla Trump geta haft gríðarleg áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi. Mikilvægt sé að Ísland festist ekki milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins í tollastríði. Viðskipti innlent 3.4.2025 15:45
„Af hverju var það sem var sagt á fimmtudegi svikið á mánudegi?“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakar fjármálaráðherra um að hafa gengið á bak orða sinna, með því að segja á fimmtudegi að skattar yrðu ekki hækkaðir á heimilin í landinu en boða svo skattahækkun á mánudegi. Fjármálaráðherra segir það lýsa vanþekkingu þingmannsins á fjármálum hins opinbera að hann kalli 2,5 milljarða skattahækkun meiri háttar skattahækkun. Það gerði þingmaðurinn ekki. Innlent 3.4.2025 14:41
Vaktin: Tollar Trump valda usla Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, boðaði í gær umfangsmikla tolla á flest ríki heims. Sakaði hann umheiminn um að hafa um árabil haft Bandaríkin að féþúfu. Viðskipti erlent 3.4.2025 10:55
Tollar alltaf slæmir og skaða lífskjör almennings Verndartollar á innfluttar vörur sem Bandaríkastjórn kynnti í gær hafa neikvæð áhrif á heimshagkerfið og gerir fólk fátækara, að sögn hagfræðings og fjárfestis. Tollar skaði almennt lífskjör almennings. Viðskipti innlent 3.4.2025 10:39
Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum Ríkisstjórn Donalds Trump ætlar að setja tolla á allan innflutning til Bandaríkjanna upp á tíu prósent en umfangsmeiri tollar hafa til viðbótar verið boðaðir á tugi ríkja. Tollarnir hafa verið kynntir sem „gagnkvæmir tollar“ vestanhafs og áttu þeir að hafa tekið mið af því hvaða tollum er beitt gegn vörum frá Bandaríkjunum. Erlent 3.4.2025 09:53
Neita að skila umsögn um frumvarpið fyrir tilskilinn frest Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ætla ekki að veita umsögn um frumvarp um hækkun á veiðigjaldi innan tilskilins frests vegna þess hve stuttur hann er. Samtökin segja ráðuneytið ekki hafa lagt mat á möguleg áhrif frumvarpsins, hafna faglegri úrvinnslu gagna og upplýstri umræðu. Viðskipti innlent 3.4.2025 09:35
Tæknirisarnir sjö fengu skell þegar markaðir opnuðu Asíski markaðurinn lækkaði í kjölfar stórfelldra tollahækkana Bandaríkjanna í nótt. Markaðsvirði tæknirisanna sjö lækkaði um 760 milljarða dala og gull náði nýjum hæðum meðan olíuverð lækkaði um þrjú prósent. Evrópskum mörkuðum er spáð sambærilegum lækkunum. Viðskipti erlent 3.4.2025 07:50
„Þetta kemur eins vel við okkur og hægt er“ Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir það jákvætt að Bandaríkjastjórn hafi tekið ákvörðun um að leggja lægri toll á vörur frá Íslandi en mörgum öðrum ríkjum. Miklu máli skipti að áformin liggi nú fyrir og óvissu hafi verið eytt. Viðskipti innlent 2.4.2025 21:58
Bæði vonbrigði og léttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir bæði ákveðnum vonbrigðum og létti vegna ákvörðunar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að leggja tíu prósenta lágmarkstoll á innfluttar vörur frá öllum ríkjum. Viðskipti innlent 2.4.2025 21:57
Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti rétt í þessu nýja tolla á innflutningsvörur til Bandaríkjanna. Þar tilkynnti hann að tíu prósenta lágmarkstollur yrði lagður á öll ríki. Þar með talið er Ísland. Viðskipti erlent 2.4.2025 20:45
Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Donald Trump Bandaríkjaforseti mun í kvöld að íslenskum tíma greina frá nýjustu fyrirætlunum sínum í tollamálum en hann hefur hótað því að setja háa verndartolla á flest lönd heimsins í aðgerð sem forsetinn kallar Frelsunardaginn. Viðskipti erlent 2.4.2025 06:32
Ólögmæt gjaldtaka gæti kostað ríkið milljarða Lögmaður telur ríkið hafa bakað sér milljarða skaðabótakröfu þar sem lög um olíugjald brjóti í bága við stjórnarskrá. Hann vinnur nú að lögsókn vegna gjaldtöku síðustu fjögurra ára. Innlent 30.3.2025 12:23
Gott gengi tæknifyrirtækja hefur aukið samþjöppun erlendra eigna lífeyrissjóða Með auknu vægi bandarískra tæknifyrirtækja í heimsvísitölu hlutabréfa hefur orðið talsverð samþjöppun þegar litið er til erlendra hlutabréfafjárfestinga íslensku lífeyrissjóðanna á síðustu árum, samkvæmt greiningu Seðlabankans, og eignarhlutur tíu stærstu félaganna í eignasöfnum sjóðanna nemur núna samanlagt um tíu prósent af öllum erlendum eignum þeirra. Miklar lækkanir hafa einkennt bandaríska hlutabréfamarkaðinn á undanförnum vikum en fjárfestingarstefnur lífeyrissjóðanna hér á landi fyrir árið 2025 sýna að sjóðirnir ætla sér að fara varlega í að auka vægi sitt frekar í erlendum eignum eins og sakir standa. Innherji 29.3.2025 12:58