Breiðablik

Patro Eisden staðfestir komu Stefáns Inga
Stefán Ingi Sigurðarson, markahæsti leikmaður Bestu-deildar karla, er genginn til liðs við belgíska félagið Patro Eisden frá Breiðablik.

Blikar mjaka Íslandi upp fyrir Lúxemborg og Georgíu
Sigrar Breiðabliks í forkeppni Meistaraadeildar Evrópu í fótbolta karla mjakaði Íslandi upp um tvö sæti á styrkleikalista UEFA yfir deildarkeppni evrópskra þjóða.

„Ég held að ég sé bara enn að melta þetta“
Breiðablik sló Stjörnuna út í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli, eftir framlengingu var staðan 2-2 og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni, sem Breiðablik sigraði 4-1.

Umfjöllun: Stjarnan - Breiðablik | Breiðablik í úrslit Mjólkurbikarsins
Stjarnan og Breiðablik mættust í undanúrslitum Mjólkurbikar kvenna á Samsung-vellinum í Garðabæ. Breiðablik sigraði eftir vítaspyrnukeppni og mætir Víkingi í úrslitaleik þann 12. ágúst. Blikar skoruðu úr öllum vítaspyrnum sínum en Stjarnan klúðraði tveimur og eru því úr leik.

„Virkilega skemmtilegur leikur til að enda á“
Stefán Ingi Sigurðarson var á skotskónum þegar Breiðablik vann Budućnost Podgorica frá Svartfjallalandi 5-0 og mætir því Shamrock Rovers frá Írlandi í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Þetta var síðasti leikur Stefáns Inga fyrir Blika en hann staðfesti í viðtali eftir leik að hann væri á leið til Belgíu.

Umfjöllun, viðtal og myndir: Breiðablik - Buducnost 5-0 | Blikar sannfærandi í undankeppni Meistaradeildarinnar
Breiðablik vann sannfærandi 5-0 sigur gegn Buducnost og tryggði sér sæti í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem Blikar mæta Shamrock Rovers frá Írlandi.

„Stefán er einn af þeim sem flýgur úr hreiðrinu“
Breiðablik vann sannfærandi 5-0 sigur gegn Buducnost. Breiðablik skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og seinni hálfleikur var formsatriði. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með sigurinn.

Damir býst ekki við að upp úr sjóði í kvöld gegn „fullorðnari“ gestum
Damir Muminovic og félagar í Breiðabliki mæta Buducnost frá Svartfjallalandi í úrslitaleik forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, á Kópavogsvelli í kvöld.

Óskar upplifir andstæðinga Blika kokhrausta: „Ekki fyrstir til þess að gera það“
Það ræðst á föstudagskvöld hvort það verður hlutskipti Breiðabliks eða Buducnost frá Svartfjallalandi að spila í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Liðin eiga sér stutta en hatramma sögu og mætast í hreinum úrslitaleik í forkeppni Meistaradeildarinnar á Kópavogsvelli.

Síðast mætti lögreglan en Viktor segir að harkan verði öll innan vallar
Viktor Karl Einarsson segir möguleika Breiðabliks mjög góða fyrir úrslitaleikinn við svartfellska liðið Buducnost annað kvöld, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Ævintýri Isabellu halda áfram á erlendri grundu
Íslenska körfuknattleikskonan Isabella Ósk Sigurðardóttir spilar ekki áfram í Subway deild kvenna næsta vetur því hún hefur samið við lið í Króatíu.

Óskar Hrafn: Evrópuleikir eru þess eðlis að þú verður að bera virðingu fyrir þeim
Óskar Hrafn Þorvaldsson var vitaskuld ánægður með 7-1 sigur Breiðabliks gegn Tre Penne í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann býst við erfiðari leik á föstudag gegn Budućnost Podgorica.

Umfjöllun og viðtöl: Tre Penne - Breiðablik 1-7 | Auðvelt hjá Blikum í Meistaradeildinni
Breiðablik vann öruggan 7-1 sigur á Tre Penne þegar liðin mættust í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í kvöld. Liðið mætir Budućnost Podgorica í úrslitaleik á föstudag.

Mótherjar Blika í kvöld hafa tapað tólf Evrópuleikjum í röð
Íslandsmeistarar Breiðabliks spila fyrsta Evrópuleik íslensk knattspyrnuliðs í ár þegar liðið mætir S.P. Tre Penne frá San Marínó á Kópavogsvelli í kvöld.

Þurfi að sýna grimmd gegn lítt þekktum andstæðingi: „Á svo margt eftir að gerast“
Stemningin er góð í herbúðum karlaliðs Breiðabliks í fótbolta sem hefur vegferð sína í Evrópu í dag á heimavelli gegn Tre Penne frá San Marínó. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, hefur þurft að nýta sér krókaleiðir til þess að afla sér upplýsingar um andstæðinginn en segist hafa góða mynd af því sem er í vændum.

Meistaradeildin hefst í dag „í bæ á Vestur-Íslandi“
Nú þegar rétt rúmar tvær vikur eru liðnar síðan Manchester City tryggði sér sigur í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins er strax komið að því að koma næsta tímabili í gang. Meistaradeildin hefst formlega í dag „í bæ á Vestur-Íslandi“ eins og BBC orðar það.

Verðlaunuðu Fanndísi sjötíu mánuðum eftir hennar síðasta leik með félaginu
Fanndís Friðriksdóttir fékk viðurkenningu fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í Bestu deild kvenna í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 2-1 | Breiðablik upp fyrir Val á toppi deildarinnar
Breiðablik vann afar þýðingarmikinn 2-1 sigur þegar liðið mætti Val í toppslag í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Liðin eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar en og Breiðablik hirti toppsætið af Val þar sem Blikaliðið hefur betri markatölu.

Sá markahæsti um áhuga frá Belgíu: „Myndi ekki hoppa á hvað sem er“
Stefán Ingi skoraði bæði mörk Breiðabliks í 5-2 tapi gegn HK á föstudag. Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 10 mörk um þessar mundir og hefur vakið athygli erlendis.

„Er enginn ósigrandi og geti labbað um Ísland með guðs gefandi rétt til að vinna alla leiki“
Óskar Hrafn, þjálfari Breiðabliks, var að vonum vonsvikinn með 5-2 tap sinna manna í kvöld gegn HK. Varnarleikur Blika var ofboðslega dapur oft á tíðum í kvöld og útskýrði Óskar tapið með því að benda á það hversu illa liðið hafði varist fyrirgjöfum HK.

Umfjöllun og viðtöl HK - Breiðablik 5-2 | Ótrúlegur sigur HK í Kópavogsslagnum
HK skellti grönnum sínum í Breiðablik í leiknum sem stundum er kallaður Baráttan um Kópavog. HK sigraði afar sannfærandi 5-2 sigur í frábærum leik.

Allir útileikmenn Breiðabliks uppaldir hjá félaginu
Byrjunarlið Breiðabliks þegar liðið heimsótti HK í Kórinn í Bestu deild karla í knattspyrnu vakti mikla athygli. Allir útileikmenn liðsins eru uppaldir hjá félaginu.

Vill pakkfullan Kórinn í kvöld: „Alltaf eins og bikarúrslitaleikur“
„Það yrðu vonbrigði ef að Kórinn yrði ekki pakkfullur í kvöld, og helst að þeir sem yrðu seinir kæmust ekki inn. Þannig ætti það að vera í föstudagsleik á milli þessara liða,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, fyrir grannaslaginn við HK í Bestu deildinni í kvöld.

Diljá sló í gegn í Besta þættinum: „Þetta er ógeðslega vont“
Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir var senuþjófur þegar HK og Breiðablik mættust í Besta þættinum, til að hita upp fyrir nágrannaslag liðanna sem fram fer í Kórnum í kvöld, í Bestu deild karla. Þáttinn má nú sjá á Vísi.

Stefán Ingi á leið til Belgíu
Stefán Ingi Sigurðarson, framherji Breiðabliks og annar af tveimur markahæstu leikmönnum Bestu deildar karla í knattspyrnu, er á leið til Belgíu.

Telma: Fannst ég eiga seinna markið
Telma Ívarsdóttir átti góðan leik í marki Breiðabliks í 2-2 jafntefli liðsins við Þrótt. Breiðablik tók forystuna snemma en fékk á sig tvö mörk með skömmu millibili í seinni hálfleik. Telma viðurkennir sjálf mistök sín í seinna markinu.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Þróttur R. 2-2 | Jafntefli í fjörugum leik
Breiðablik og Þróttur Reykjavík skildu jöfn þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í Bestu deildinni í kvöld. Liðunum mistókst því að minnka forskot Vals á toppi deildarinnar.

Breiðablik gæti mætt FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu
Ef allt gengur upp munu Íslandsmeistarar Breiðabliks og Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar mætast í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Þrír Íslendingar eru meðal leikmanna FCK, þar á meðal sonur þjálfara Breiðabliks.

Blikar mæta írsku meisturunum ef allt gengur upp
Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta írsku meisturunum úr Shamrock Rovers í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu, takist Blikum að komast áfram úr fjögurra liða forkeppninni sem þeir taka þátt í.

Breiðablik nælir í þjálfara kvennaliðsins og leikmann karlaliðsins í einum pakka
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við Guillermo Sánchez um að þjálfa kvennalið félagsins í Suway-deildinni í körfubolta á komandi tímabili. Hann mun einnig leik með karlaliðinu.