KA

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Valur 24-21 | Heimastúlkur tóku forystuna í úrslitaeinvíginu
KA/Þór er komið yfir í úrslitaeinvíginu gegn Val í Olís-deild kvenna en liðin mættust í fyrsta sinn á Akureyri í kvöld. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér titilinn.

Valur missti niður helming forskotsins: „Þetta er bara „deja vu““
Valsmenn eru með fjögurra marka forskot gegn KA fyrir seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Forskotið væri enn meira ef KA hefði ekki náð góðum lokaspretti.

Úrslitin ráðast á því hvernig Valskonur verjast töfrakonunni Rut
Úrslitin í einvígi KA/Þórs og Vals um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta ráðast að miklu leyti á því hvernig Valskonur verjast Rut Jónsdóttur. Þetta segir Sunneva Einarsdóttir, sérfræðingur Seinni bylgjunnar.

Selfoss og Valur örugglega áfram á meðan FH sló Þór/KA úr leik eftir vítaspyrnukeppni
Öllum fjórum leikjum kvöldsins í Mjólkurbikarkvenna er nú lokið. Valur vann 7-0 sigur á Völsungi á Húsavík. FH lagði Þór/KA í vítaspyrnukeppni eftir að leiknum lauk með 1-1 jafntefli og Selfoss vann 3-0 sigur á KR.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 26-30 | Sterkur sigur Vals á Akureyri
KA og Valur hafa marga hildina háð í úrslitakeppninni í gegnum tíðina og leiða nú saman hesta sína í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla. Valur hafði betur í fyrri rimmu liðanna og ljóst að KA menn þurfa að eiga stórleik að Hlíðarenda til að fara áfram.

KA mætir Val án Ólafs
Tímabilinu er lokið hjá Ólafi Gústafssyni, handknattleiksmanni KA, vegna hnémeiðsla sem hafa plagað hann síðustu tvo og hálfan mánuð.

Seinni bylgjan: Rúnar Sigtryggsson las dómurunum fyrir norðan pistilinn
Umdeilt atvik átti sér stað í lokasókn Þórs frá Akureyri þegar þeir heimsóttu KA í lokaumferð Olís deildar karla á dögunum. Gestirnir vildu þá fá víti eða mark dæmt gilt, en dómarar leiksins dæmdu aukakast sem varð til þess að niðurstaðan varð 19-19 jafntefli.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór í úrslit eftir framlengdan leik
KA/Þór og ÍBV mættust í oddaleik um sæti í úrslitum Olís-deildar kvenna. Einvígi liðanna hefur verið frábært og var það áfram í dag en framlengja þurfti leikinn til að knýja fram sigurvegara. Fór það svo að KA/þór vann með eins marks mun, 28-27.

Landsbyggðin eignast fulltrúa í úrslitum í fyrsta sinn í sextán ár
Í dag kemur í ljós hvort KA/Þór eða ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna. Oddaleikur KA/Þórs og ÍBV fer fram í KA-heimilinu og hefst klukkan 15:00.

Þórsara hent út úr KA-heimilinu eftir bræðikast
Áhorfandi á Akureyrarslag KA og Þórs missti stjórn á skapi sínu í lok leiks, grýtti niður skiltum og hrópaði inn á völlinn áður en honum var hent út úr KA-heimilinu.

Umfjöllun: Tindastóll - Þór/KA 1-2 | Dramatík í fyrsta Norðurlandsslagnum í efstu deild
Þór/KA vann fyrsta norðurlandaslaginn í efstu deild kvenna er liðið hafði betur gegn Tindastóll, 2-1, er þau mættust á Sauðárkróki í kvöld.

Leik lokið: KA - Þór 19-19 | Jafnt í Akureyrarslagnum
KA mætti Þór í Akureyrarslag í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta. Lokatölur 19-19 en KA er á leið í úrslitakeppni deildarinnar á meðan Þórsarar eru fallnir.

Seinni bylgjan: Dýrmæta markið hennar Rakelar og svona sópaði Valur Fram út
Valskonur leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en KA/Þór og ÍBV leika oddaleik í sínu einvígi. Farið var yfir leiki gærkvöldsins í undanúrslitunum í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - KA/Þór 21-24 | Gestirnir tryggðu oddaleik
Eftir sigur KA/Þór í Eyjum er ljóst að ÍBV og KA/Þór þurfa að mætast í oddaleik um sæti í úrslitaeinvíginu í Olís-deild kvenna.

Eyjakonur geta í kvöld komist í lokaúrslitin í fyrsta sinn í sextán ár
Valskonur og Eyjakonur geta í kvöld tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmóts Olís deildar kvenna í handbolta en bæði liðin eru 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígum sínum.

Fór yfir ótrúlegan sjö mínútna kafla Árna Braga
Árni Bragi Eyjólfsson hefur verið heitasti leikmaður Olís-deildar karla eftir síðasta hléið. Hann átti enn einn stórleikinn þegar KA tapaði fyrir Val, 31-27, á mánudaginn.

„Ekki viss um að sumir vinnuveitendur mínir hafi vitað hvað ég heiti fullu nafni“
Óvæntasta stjarna Pepsi Max-deildar karla í sumar er líklegast stóri maðurinn í marki KA sem er samt kallaður Stubbur. Eftir að hafa leikið neðri deildunum allan sinn feril hefur Steinþór Már Auðunsson gripið sitt fyrsta tækifæri í efstu deild með báðum höndum.

Fékk að vita af hverju hetja KA-manna er kallaður Stubbur
Ein óvæntasta stjarnan í Pepsi Max deild karla í sumar en KA markvörðurinn Steinþór Már Auðunsson sem kom óvænt inn í liðið og hefur staðið sig frábærlega.

Sjáðu hornin hjá Val, sigurmark í boði varamanna KA og markaveislu á Skaganum
Valur, KA og Breiðablik sóttu öll þrjú stig á útivöll í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú er hægt að sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 0-1 | Enn bíður Stjarnan fyrsta sigursins
KA vann 1-0 sigur á Stjörnunni í 6. umferð Pepsi Max-deildar karla á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Stjarnan leitar enn að sínum fyrsta sigri í deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 31-27 | Nokkuð öruggt hjá Valsmönnum
Valur vann fjögurra marka sigur á KA er liðin mættust í Olís deild karla í dag. Lokatölur 31-27 heimamönnum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - ÍBV 26-27 | Seiglusigur Eyjakvenna fyrir norðan
ÍBV vann 27-26 sigur á KA/Þór í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Víkingur 0-1 | Víkingar hirti þrjú stig á Dalvíkurvelli
Víkingur Reykjavík lögðu KA menn á Dalvíkurvelli 1-0 í sannkölluðum toppslag. Bæði lið voru með 10 stig fyrir þennan leik og eru bæði búin að byrja tímabilið gríðarlega vel.

KA-menn reyna miklu miklu fleiri klókar sendingar en Víkingar
KA og Víkingur eru hlið við hlið í stigatöflu Pepsi Max deildarinnar en þeir eru á sitthvorum enda töflunnar yfir klókar sendingar.

Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 30-29 | KA-menn tryggðu sig inn í úrslitakeppnina
KA tryggði sæti sitt í úrslitakeppni Olís-deildar karla með sigri á FH í kvöld. Er þetta í fyrsta skipti í 16 ár sem KA kemst þangað. Lokatölur 30-29 á Akureyri í kvöld.

Það kemur enginn hingað til að fá eitthvað
Ragnar Snær Njálsson var mjög ánægður með sigur sinna manna er KA tryggði sér sæti í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta. KA vann FH 30-29 og tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í 16 ár.

KA getur komist í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í sextán ár
KA fær í kvöld tækifæri til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn frá tímabilinu 2004-05.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 0-1 | Sterkur sigur Garðbæingar í Þorpinu
Stjarnan gerði góða ferð norður og vann 1-0 sigur á Þór/KA í 3. umferð Pepsi Max deildar kvenna.

KA bæði með fleiri stig og fleiri mörk en þegar liðið varð Íslandsmeistari 1989
Það er ekki nóg að fara aftur um þrjá áratugi til að finna betri byrjun hjá KA mönnum á Íslandsmótinu en í Pepsi Max deildinni í ár. Íslandsmeistaraárið stenst ekki þann samanburð.

Jón Heiðar skotinn niður fyrir norðan
KA-menn ætla sér í úrslitakeppnina í Olís deildinni sama hvað og leikmenn liðsins eru tilbúnir að fórna sér eins og Seinni bylgjan tók fyrir.