Gleðigangan

Fréttamynd

Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni

Fulltrúar frá ungliðahreyfingum allra stjórnmálaflokka landsins tóku þátt í Gleðigöngunni um helgina, nema ungum Miðflokksmönnum. Formaðurinn segir að í göngunni séu auglýstar hugmyndir sem þeir telji ekki „ástæðu til að lyfta á stall“.

Innlent
Fréttamynd

Brotaþolar fluttir á slysa­deild og allar á­rásirnar til rann­sóknar

Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru.

Innlent
Fréttamynd

Troð­fullur strætó ók fram hjá Krist­rúnu sem fékk ekki pláss

Mikið álag var á Strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag, enda stefndu margir á miðbæ Reykjavíkur þar sem Gleðigangan fór fram. Í Háaleitishverfinu ók troðfullur strætó án þess að nema staðar og hleypa inn farþegum á stoppistöð, en samkvæmt sjónvarvotti var Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á meðal þeirra sem komst ekki í vagninn.

Innlent
Fréttamynd

Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli í dag vegna fólks sem virti ekki götulokanir í miðborginni vegna Gleðigöngunnar, sem hófst klukkan 14 í dag og lauk með tónleikum í Hljómskálagarðinum sem kláruðust nú um fimmleytið.

Innlent
Fréttamynd

Sam­einumst undir regn­boganum: Jafn­rétti, inngilding og stolt

Í ágústmánuði ár hvert gerist eitthvað einstakt í Reykjavík þegar borgin breytir um svip og verður staður þar sem hátíðahöld og samstaða fara hönd í hönd. Göturnar fyllast af litadýrð, tónlist og gleði en einnig sterkri samkennd. Það er þetta sem er svo einstakt við Hinsegin daga í Reykjavík. Hinsegin dagar eru ekki aðeins hátíð hinsegin samfélagsins heldur einnig gildanna sem eru Íslendingum svo kær: víðsýni, virðingar, reisnar og frelsis til að vera maður sjálfur. Þannig endurspegla Hinsegin dagar það samfélag sem svo mörg leggja sig fram við að byggja upp og vernda.

Skoðun
Fréttamynd

Mikil­vægasta Gleðigangan

Með örfáum undantekningum hef ég tekið þátt í Gleðigöngunni á Íslandi frá upphafi. Alltaf jafn gaman, alltaf jafn sérstakt. Og hvert skipti hefur gefið tilefni til að rifja upp þá vegferð sem hefur tryggt forystu Íslands þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Ísland er í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe sem sýnir stöðu og réttindi hinsegin fólks og í fyrsta sæti á réttindakorti TGEU (Trans Europe and Central Asia).

Skoðun
Fréttamynd

Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommenta­kerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“

Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, segir að um þessar mundir fái hinsegin fólk að upplifa hvernig það var að vera hinsegin fyrir fjörutíu árum. Bakslag sem orðið hefur í réttindabaráttunni spilaði inn í val hans á hönnun vagnsins sem hann verður á í Gleðigöngunni á morgun, en þekkt er að Páll Óskar er oft á eftirminnilegum vagni.

Lífið
Fréttamynd

Hinn há­væri minni­hluti

Ef marka mætti samfélagsmiðla þessa dagana mætti ætla að Ísland, raunar allur hinn vestræni heimur, stæði á barmi menningarstríðs. Að samfélagið væri klofið í tvær ósættanlegar fylkingar. En þegar litið er á skoðanakannanir og rannsóknir kemur í ljós að sagan er allt önnur.

Skoðun
Fréttamynd

Stefnir í stærstu Gleði­göngu sögunnar

Hinsegin dagar voru settir í Reykjavík í gær, formaður segir að það stefni í metþátttöku í Gleðigöngunni á laugardag. Það sé til marks um breiða samstöðu með hinsegin samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er ó­lýsan­leg til­finning“

„Við lögðum blóð, svita og tár í þetta og ég er svo ótrúlega þakklátur,“ segir rísandi tónlistarstjarnan Guðjón Þorgils um lag Hinsegin daga í ár, Framávið. Blaðamaður ræddi við hann á milli gigga en vikan hans hefur vægast sagt verið viðburðarík.

Tónlist
Fréttamynd

Gagn­rýni á fegurðar­sam­keppnir sé ekki niður­læging í garð kvenna

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og trans aðgerðarsinni, svarar ósáttum föður fegurðardrottningar sem blöskraði gjörningur Kvenréttindafélagsins í Gleðigöngunni. Hún segir að ef skipuleggjendur göngunnar bæðust afsökunar hvert sinn sem eitthvað færi fyrir brjóstið á fólki þá myndu þeir varla gera mikið annað. Fegurðarsamkeppnir séu ekki hafðar yfir gagnrýni.

Innlent
Fréttamynd

Tjáningar­frelsi

Tjáningarfrelsið er grundvallar mannréttindi. Um leið og við nýtum okkur þau mannréttindi með því að tjá okkur, gefum við í raun öðrum færi og heimild til að gera slíkt hið sama.

Skoðun
Fréttamynd

Gleði eða ó­gleði?

Ég var staddur á Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag líkt og ég hef verið vel flestar Gleðigöngur undanfarin ár.

Skoðun
Fréttamynd

Mann­réttinda­barátta ekki í sam­keppni um at­hygli

Palestínufánar í Gleðigöngunni um helgina drógu ekki athygli frá réttindabaráttu hinsegin fólks, að mati sérfræðings í málefnum hinsegin fólks. Samstaða með Palestínu í göngunni hafi snúist um að virða öll mannréttindi skilyrðislaust, óháð skoðunum fólks.

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Sam­staða og stolt í al­gleymingi í Gleðigöngunni

Hinsegin dagar náðu hápunkti sínum í dag þegar litskrúðug Gleðigangan hélt af stað frá Hallgrímskirkju. Í henni sameinuðust lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og fleiri ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín.

Lífið
Fréttamynd

Bar­áttan um þjóðar­sálina

Í dag er Pride. Það er vissulega gaman og mikil ánægja sem því fylgir að mæta, sýna sig og sjá önnur. En það er ekki aðalatriðið.

Skoðun
Fréttamynd

Viðrar vel til gleði­göngu

Minnkandi lægðasvæði austur af landinu stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður því norðlæg eða norðvestlæg, víða gola eða kaldi og súld eða rigning með köflum á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu suðvestan- og vestantil.

Veður
Fréttamynd

Hver rödd skiptir máli!

Nú styttist í Gleðigönguna!Brátt munu brosandi andlit streyma um götur miðborgarinnar til að fagna fjölbreytileikanum og taka undir með hinsegin samfélaginu um að Samstaða skapi samfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Sýnum þeim frelsið

Á morgun verður Gleðigangan gengin í Reykjavík, hápunktur Hinsegin daga sem hafa staðið alla vikuna.

Skoðun
Fréttamynd

Endar örugg­lega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni

„Akkúrat núna er ég að gera mjög táknrænan fiðrildatrukk þar sem fiðrildin eru að koma út úr púpunni eitt af öðru. Það verða 26 mennsk fiðrildi uppi á þessum trukk. Þetta þarf alltaf að vera pínu táknrænt í bland við það að vera gaman,“ segir Páll Óskar. Gleðigangan fer fram á morgun kl. 14 þar sem lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju.

Lífið
Fréttamynd

„Sam­staða skapar sam­fé­lag“ er þema Hin­segin daga

„Hátíðin var sett í hádeginu í sameiningu með Reykjavíkurborg þar sem regnbogafáni var dreginn að húni ásamt því að transfáninn var krítaður á stéttina fyrir framan Iðnó,“ segir Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga.Upplýsingamiðstöð Hinsegin daga verður staðsett í Iðnó í vikunni en Reykjavíkurborg er helsti stuðningsaðili daganna.

Innlent
  • «
  • 1
  • 2