Breytingar á veiðigjöldum
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Umræðan um veiðigjaldsfrumvarpið er nú orðin þriðja lengsta umræða þingsins frá árinu 1991 en það hefur verið rætt í rúmlega hundrað klukkustundir. Málið er aftur á dagskrá þingsins í kvöld. Innlent 30.6.2025 19:15
Snurða hljóp á þráðinn í nótt Formenn þingflokka reyna nú að ná saman um þinglok og hafa fundað stíft undanfarna daga. Eftir ágætis gang í samtalinu um helgina þykir nú meiri óvissa uppi samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Öll mál ríkisstjórnarinnar eru undir í samtalinu segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 30.6.2025 13:08
Ofurgróði sjávarútvegs? – Hættið að afvegaleiða! Á Íslandi sér nú stað enn ein orustan. Vinstrimenn, trúir sinni hugmyndafræði, vilja ofurskatta á ákveðin fyrirtæki og réttlæta þá með tali um sanngirni og krydda með fullyrðingum um að það sé ofurhagnaður á þessum mikilvægu greinum. Í dag er sjávarútvegurinn undir, það glittir í sömu árásir á ferðaþjónustuna. Skoðun 30.6.2025 11:31
Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Frumvarp um veiðigjöld er ekki á dagskrá þingfundar sem hófst á Alþingi nú klukkan tíu. Þingfundi var ítrekað frestað síðdegis í gær og í gærkvöldi á meðan þingflokksformenn funduðu þar sem leitað er leiða til að semja um þinglok. Innlent 28.6.2025 10:20
Hvar er auðlindarentan? Stjórnarliðar, með forsætisráðherra og atvinnuvegaráðherra í fararbroddi, vísa ítrekað til svonefndrar auðlindarentu í sjávarútvegi. Á mannamáli er auðlindarenta skilgreind sem sá umframhagnaður sem myndast við nýtingu takmarkaðra auðlinda. Í þessum pistli ætlum við að reyna að finna auðlindarentu í sjávarútvegi. Skoðun 28.6.2025 07:01
Ásókn í ufsa og minni tegundir dragist verulega saman með hærri veiðigjöldum Ekki er ósennilegt að ásókn útgerðarfyrirtækja í að veiða ufsa og aðrar minni fisktegundir, sem skila fremur lítilli framlegð, muni dragast „umtalsvert“ saman í kjölfar fyrirhugaðrar hækkunar á veiðigjöldum. Í nýjum greiningum á Brim og Síldarvinnslunni, verðmætustu sjávarútvegsfélögunum í Kauphöllinni, er verðmat þeirra lækkað frá fyrra mati og virði þeirra talið vera nokkuð undir núverandi markaðsgengi. Innherji 27.6.2025 12:25
Enn óvissa um þinglok Algjör óvissa er enn um hvenær Alþingi nær að ljúka störfum. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis segir mörg mál bíða afgreiðslu en veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar er aftur á dagskrá þingsins í dag. Innlent 27.6.2025 11:15
Þingfundi slitið á miðnætti en umræðan heldur áfram í dag Þingfundi var slitið á miðnætti í nótt, eftir ítrekaðar frestanir vegna fundar þingflokksformanna um möguleg þinglok. Innlent 27.6.2025 06:44
Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Þingfundi var frestað rétt fyrir átta í kvöld á meðan þingflokksformenn sitja á fundi og ræða þinglok. Fundinum var frestað um hálftíma en hefur ítrekað verið frestað aftur á meðan fundur stendur enn yfir. Innlent 26.6.2025 22:53
Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Það er eitthvað svo „Valkyrjulegt“ við það þegar ráðherra hinnar fyrstu verkstjórnar í lýðveldissögunni leggur fram frumvarp sem hann sjálfur skilur ekki. Ráðuneytið skilur það ekki heldur. Skatturinn? Ekki einu sinni hann. Skoðun 26.6.2025 11:00
Árið 2023 kemur aldrei aftur Í grein sem þingmenn stjórnarmeirihlutans og fulltrúar í atvinnuveganefnd birtu í gær er reitt hátt til höggs í athugasemdum við grein sem ég birti hér á Vísi í fyrradag. Þar er ég sökuð um „alvarlegar rangfærslur til að fóðra þann málflutning samtakanna að veiðigjöld muni hækka langt umfram það sem frumvarp um [meinta] leiðréttingu veiðigjalds segir til um.“ Skoðun 26.6.2025 09:34
„Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Allt stefnir í að met verði slegið í umræðu um veiðigjaldafrumvarpið á Alþingi sem er þegar sú sjöunda lengsta í sögunni. Framsögumaður málsins í atvinnuveganefnd segir staðfest að meirihluti nefndarinnar hafi reiknað veiðigjaldið rétt, þvert á það sem minnihlutinn hafi haldið fram. Innlent 25.6.2025 20:02
Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Guðmundur Fertram Sigurjónsson segir að líkja megi fyrirhuguðum breytingum ríkisstjórnarinnar á veiðigjaldi við sóvéska eignaupptöku. Hann segir að gríðarlegur efnahagslegur vöxtur hafi verið á Vestfjörðum undanfarin ár, en áform ríkisstjórnarinnar muni koma til með að minnka skattaframlag landshlutarins og veikja byggðirnar. Innlent 25.6.2025 16:37
Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Ég hef aldrei verið virkur í flokkapólitík og beinist hugur minn fremur að nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífs. Ég vil landið í byggð og blóma, þá ekki síst Vestfirði. Það krefst fjölbreyttra atvinnukosta, frelsis til athafna og öflugs og samheldins samfélags. Skoðun 25.6.2025 16:32
Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Meðlimir meirihlutans í atvinnuveganefnd segja framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hafa sett fram alvarlegar rangfærslur til þess að fóðra málflutning um að veiðigjald muni hækka langt umfram það sem frumvarp um breytingu veiðigjalda segir til um. Innlent 25.6.2025 16:29
Tími til að notast við réttar tölur Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Heiðrún Lind Marteinsdóttir, skrifaði grein sem birtist á þessum vettvangi í gær. Þar eru settar fram alvarlegar rangfærslur til að fóðra þann málflutning samtakanna að veiðigjöld muni hækka langt umfram það sem frumvarp um leiðréttingu veiðigjalda segir til um. Skoðun 25.6.2025 13:32
Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, harðlega í morgun vegna færslu hennar á Facebook í gærkvöldi. Þar fullyrti hún að sveitarfélög muni hafa hundruði milljóna króna í auknar útsvarstekjur verði veiðigjaldafrumvarpið að lögum. Stjórnarandstaðan segir það til marks um að Inga skilji frumvarpið ekki. Innlent 25.6.2025 12:03
Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir ofurskattlagningu í formi frumvarps til breytinga á veiðigjöldum geta valdið því að fjárfestar leiti í aðrar greinar í stað sjávarútvegs. Hún er ósátt með samráðsleysi stjórnvalda í málinu. Viðskipti innlent 25.6.2025 11:39
Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Þessa dagana er rætt um um veiðigjöld á Alþingi. Veiðigjöld eru greidd af hagnaði veiða úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, hafinu í kringum Ísland. Þetta er takmörkuð auðlind sem okkur ber að fara vel með og koma í veg fyrir að við göngum of nærri fiskstofnum. Skoðun 25.6.2025 08:02
Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Þingfundur stóð fram til klukkan rúmlega þrjú í nótt og enn eina ferðina voru breytingar á veiðigjöldum eina umræðuefnið. Innlent 25.6.2025 06:35
Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Samkvæmt nýrri könnun um stuðning við frumvarp atvinnuvegaráðherra, um hækkun veiðigjalda, hefur dregið úr stuðningi almennings við málið milli mánaða. Stuðningurinn er eftir sem áður mikill. Innlent 24.6.2025 14:41
Tími til að staldra við Þegar lögum er breytt sem hafa mikil áhrif á afkomu þúsunda landsmanna má ætla það sanngjarna kröfu í lýðræðisþjóðfélagi að reynt sé að vega og meta áhrif breytinganna. Ekki eftir á heldur fyrir fram. Skoðun 24.6.2025 14:02
Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra? Eftir að hafa horft á Kastljós kvöldsins, 23. júní 2025, sit ég hugsi yfir því hvernig forsætisráðherra landsins leyfir sér að mæta í sjónvarpssal Ríkisútvarpsins, fjölmiðils allra landsmanna, og halda því fram að minnihlutinn á Alþingi gangi erinda fjögurra til fimm fjölskyldna í landinu með því að samþykkja ekki veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Skoðun 24.6.2025 13:31
„Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um forsætisráðherra á þinginu og gagnrýndu ummæli sem hún lét falla í Kastljósi í gær. Þar sakaði hún minnihlutann um fjalla um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar í „falsfréttastíl.“ Formaður atvinnuveganefndar sakar minnihlutann um að stunda blekkingar. Innlent 24.6.2025 11:43
Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Þingfundur á Alþingi stóð fram til klukkan hálfþrjú í nótt og var frumvarp um veiðigjöld aðal umræðuefnið sem og fundarstjórn forseta. Innlent 24.6.2025 08:34
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt Fáir flokkar hafa nýtt málþóf jafn kerfisbundið á síðastliðnum árum og Píratar, sem álitu málþóf nær því að vera listform frekar en stjórnmál, nema kannski nú nýverið Sjálfstæðisflokkurinn í stjórnarandstöðu. Skoðun 24.6.2025 08:00
Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir orð forsætisráðherra í Kastljósi í gær og segir hana „stilla sér upp sem fórnarlambi málþófs.“ Þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni halda áfram að ræða frumvarpið um breytingar á veiðigjöldum sem sé óvandað frumvarp. Innlent 24.6.2025 06:44
Ábyrgð og ábyrgðarleysi Það sem við urðum vitni að í Kastljósi í gærkvöld er nýr kafli í pólitískum vinnubrögðum forsætisráðherra og hann er áhyggjuefni fyrir alla sem vilja sjá heilbrigt og virkt lýðræði. Þar var ekki bara ráðist að stjórnarandstöðunni, heldur var sú árás reist á rangfærslum, útúrsnúningum og tilraun til að stimpla lögmæt sjónarmið minnihlutans sem falsfréttir. Skoðun 24.6.2025 06:30
Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gera alvarlegar athugasemdir við ummæli sem forsætisráðherra lét falla í Kastljósi Ríkissjónvarpsins, þar sem hann sagði minnihlutann hafa talað í „falsfréttastíl“ um veiðigjaldamálið. Segja þeir málið alvarlegt og hafa þeir krafist þess að hann dragi orð sín til baka. Innlent 24.6.2025 00:29
„Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Þingflokksformaður Viðreisnar segir það ekki koma til greina að svo stöddu að beita lagagrein sem myndi heimila þingmeirihlutanum að þvinga veiðigjaldafrumvarpi beint í atkvæðagreiðslu. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins telur það lýðræðislega skyldu sína að hindra afgreiðslu málsins. Þau vonast bæði eftir því að ná samkomulagi um þinglok. Innlent 23.6.2025 20:59