Stangveiði

Fréttamynd

Veiddi "skrímsli" í Minnivallalæk

Veiðimaðurinn kunni Nils Folmer Jörgensen landaði 18 punda urriða í Minnivallalæk um helgina. "Hvílíkt skrímsli sem lá þarna í háfnum," segir Nils.

Veiði
Fréttamynd

Veiddu sjóbirtinga í Skjálfandafljóti

Þrír sjóbirtingar veiddust í Skjálfandafljóti fyrir skömmu. Stefán Sigurðsson, hjá Lax-á sem selur laxveiðileyfi í fljótið í sumar, fór þangað í smá vísindaleiðangur fyrir rúmri viku síðan.

Veiði
Fréttamynd

Fjórtán ára afastrákur með veiðidellu

Ómar Smári Óttarsson er 14 ára Hafnfirðingur með veiðidellu á háu stigi, sem er gott. Hann byrjaði að veiða þegar hann var fjögurra eða fimm ára og hefur hnýtt flugur í þrjú ár.

Veiði
Fréttamynd

Bubbi: Geggjað fyrir börnin

Bubbi Morthens þekkir Meðalfellsvatn betur en flestir enda alinn upp á bökkum þess og sem drengur veiddi hann með föður sínum og bræðrum silung í matinn.

Veiði
Fréttamynd

Breytingar á Veiðivísi

Aukinn kraftur verður settur í umfjöllun um veiði á Veiðivísi frá og með þriðjudeginum 1. maí. Fjórir blaðamenn hafa verið fengnir til að sinna vefnum.

Veiði
Fréttamynd

Athugasemd úr Þingvallasveit um netaveiðar

Þessa grein fengum við frá Vötn og Veiði og beinist gegn grein sem var birt þar um netaveiðar í Þingvallavatni. Pistilinn er frá tveimur þeirra er voru myndaðir á báti við netaveiðar í Þingvallavatni á dögunum. Þeir eru ekki sáttir við grein VoV og skrifa:

Veiði
Fréttamynd

Ný mynd um lífsgöngu laxa á leið í bíó

Núna í apríl frumsýnir Markell ljóðræna náttúrulífsmynd sem heitir Lónbúinn og fjallar hún um lífsferil laxins. En frá því að seiðin klekjast út og þangað til þau skila sér aftur í ánna ganga þau í gegnum miklar raunir og eru í baráttu uppá líf og dauða á hverjum degi.

Veiði
Fréttamynd

Veiðibóka og DVD markaður í Veiðivon

Í dag hefst markaður með veiðibækur og DVD-diska tengda stangaveiði í versluninni Veiðivon í Mörkinni 6 í Reykjavík. Markaðurinn er opinn til 21. apríl og samkvæmt upplýsingum frá Veiðivon þá er stefnt á að fjölga titlum jafnt og þétt.

Veiði
Fréttamynd

Hnýtingarnámskeið með Sigurði Pálssyni

Sigurður Pálsson fluguhnýtari heldur námskeið fyrir þá sem eru að taka fyrstu skrefin í hnýtingum. Nemendum verða kennd undirstöðuatriðin í hnýtingu, að lesa fluguuppskriftir og allt um efni og áhöld. Námskeiðið eru fjögur kvöld og innifalið er efni og áhöld.

Veiði
Fréttamynd

Nýr 10 ára samningur um leigu á Minnivallalæk

Um helgina var gerður nýr 10 ára samningur um áframhaldandi leigu Strengja á Minnivallalæk í Landssveit sem þegar hafa haft hann í leigu í 20 ár svo þarna stefnir í 30 ára samningstíma! Samstarfið við Veiðifélag Minnivallalækjar hefur verið gott og fjöldi erlendra veiðimanna farinn að venja komur sínar í ánna.

Veiði
Fréttamynd

Á að veiða eða sleppa

Á að veiða og sleppa eða á að sleppa því að sleppa? Þórólfur Antonsson tók saman langtímagögn úr 3 Vopnfirskum ám til að leita orsaka mismunandi veiði í þeim. Meðal ályktana sem hann dregur af þeirri samantekt er að mögulega sé til ákveðinn kjörfjöldi af hrygningar-fiski og því geti verið til óþurftar að sleppa fiski í góðum árum. Þessa frétt fengum við frá SVAK.

Veiði
Fréttamynd

Veiðin í Elliðavatni hefst 19.apríl

Veiði í Elliðavatni mun hefjast á sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl næstkomandi. Ákvörðun um þetta liggur fyrir hjá Veiðifélagi Elliðavatns. Veiðileyfi í Elliðavatn verða til sölu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, bæði á skrifstofu félagsins og eins í vefsölunni á heimasíðu SVFR.

Veiði
Fréttamynd

Gamalt deilumál í deiglunni

Þetta kemur upp á hverju ári...vori/síðvetri. Stórurriðaveiðar í net eða á stöng fyrir stangaveiðitíma í Þingvallavatni og hvaða áherslur eru eiginlega í gangi við ræktun og nýtingu þessa frábæra fisks?

Veiði
Fréttamynd

Ný mið á haglabyssur auðvelda veiðar

Nú eru komin á markað ný mið á haglabyssur sem auðvelda mönnum að hitta bráðina og þessi búnaður á að virka það vel að þú hittir það sem er inní miðinu.

Veiði
Fréttamynd

Hinn magnaði Dýrbítur

Það er alltaf spurning þegar fyrstu köstin eru tekin á vorin, hvaða flugu á ég að setja undir? Það fer að vísu svolítið eftir því hvar þú ert að veiða og hvort þú sért að veiða í stöðuvatni eða í á. Heilt yfir, ef ég ætti að velja eina flugu til að byrja á þá hefur valið mitt alltaf verið nokkuð skýrt.

Veiði
Fréttamynd

2 vikur í opnun!

Nú eru aðeins rétt rúmar tvær vikur í opnun margra vinsælla veiðivatna og má sjá lista yfir þau hér fyrir neðan. Með hækkandi sól eykst spenningurinn hjá veiðimönnum og margir langt komnir með að hnýta flugur fyrir sumarið. Vinsælustu vorveiðivötnin hafa verið Vífilsstaðavatn og Meðalfellsvatn.

Veiði
Fréttamynd

Opna fyrir veiði í ósasvæði Laxá í Ásum

Félagið Salmon tails, sem er leigutaki Laxár á Ásum og Mýrarkvíslar er að kynna ansi spennandi nýjung, eða ósasvæði Laxár á Ásum sem liggur að hluta andspænis hinu rómaða silungasvæði Vatnsdalsár.

Veiði
Fréttamynd

Kynning á leyndardómum Þingvallavatns

Þann 22 mars verður fræðslunefndin í samstarfi við Guttorm P. Einarsson með kynningu á Þingvallavatni. Guttormur er veiðimaður til tugi ára hefur ódrepandi áhuga á fluguveiði í vötnum og á lífríkinu í kringum vötnin. Kynningin verður í sal SVFR og hefst kl.20:00

Veiði
Fréttamynd

Laxasetur opnar á Blönduós

Laxasetur Íslands ehf. var stofnað á Blönduósi í júní í fyrra og er nú unnið að því af fullum þunga að setja setrið upp, en stefnt er að því að opna það á komandi sumri. Verkefnisstjórar eru Þuríður Helga Jónasdóttir og Kristín Arnþórsdóttir. Þær Þuríður og Kristín eru nú að safna munum til að setja upp á setrinu og hafa m.a. leitað til veiðimanna í þeim efnum, en ýmsa gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði vantar í safnið.

Veiði
Fréttamynd

Almenn sala hefst á morgun hjá SVFR

Almenn sala veiðileyfa á vefnum hefst að morgni dags þriðjudaginn 20 mars næstkomandi. Þangað til hafa eingöngu félagsmenn rétt til kaupa á vefsölunni hjá SVFR.

Veiði
Fréttamynd

Kastmyndband með Klaus Frimor

Undanfarin tíu ár hefur Klaus Frimor starfað á Íslandi sem leiðsögumaður og sem kastkennari, en yfir vetrarmánuðina hefur Klaus verið með kastnámskeið víðsvegar í Evrópu.

Veiði
Fréttamynd

Hreggnasi endurnýjar samning um Grímsá

Eftir nokkrar samningaumleitanir hefur Hreggnasi framlengt leigusamning sinn á Grímsá og Tunguá í Borgarfirði til næstu 3 ára. Leiguverð hækkar, en upphæðin er trúnaðarmál.

Veiði
Fréttamynd

Frábær veiði á stöng í Jöklu 2011

Árið 2011 jókst laxveiðin á Jöklu svæðinu um 62% frá fyrra ári og endaði laxveiðin í 565. Svæðið var veitt með 4 til 6 stöngum árið 2011. Samtals voru nýttir stangardagar 413 sem skiluðu 565 löxum eða 1,4 lax á hvern stangardag.

Veiði
Fréttamynd

Kvikmyndahátíð veiðimanna RISE á laugardaginn

Miðasala á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð hófst formlega þann 10. febrúar í Veiðivon Mörkinni 6. Fyrirfram höfðu verið pantaðir vel yfir 100 miðar af þeim rúmlega 200 sem í boði eru og er nú farið að þynnast verulega í miðabunkanum.

Veiði