Ferðaþjónusta

610 milljónum króna úthlutað vegna ferðamannastaða
Hæsti styrkurinn í þessari úthlutun er að upphæð 60 milljónir króna til verkefna í Landmannalaugum. Næsthæsti styrkurinn nemur 31,2 milljónum vegna verkefna í Rauðfeldargjá á Snæfellsnesi.

Stefna að þúsund manna ferðamannaþorpi við Geysi
Fasteignaþróunarfélagið Arwen hefur keypt þrjár samliggjandi jarðir við Geysissvæðið í Haukadal. Þar hyggst félagið reisa þúsund manna ferðaþjónustuþorp í grennd við Geysi.

Ölduspá og viðvörunarkerfi í Reynisfjöru
Þetta er ákvörðun Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ráðherra ferðamála, og samkvæmt tillögu vinnuhóps Stjórnstöðvar ferðamála um brýnar úrbætur í öryggismálum.

„Þú setur ekki vegrið á ónýtan veg“
Ástand Grindavíkurvegar hefur legið þungt á bæði íbúum og bæjaryfirvöldum í fjölda ára. Forseti bæjarstjórnar segir að úrbóta sé tafarlaust þörf og að fjármagnið til þess sé í raun til staðar.

Silfra opnuð á ný
Fyrirmæli vegna köfunar í þjóðgarðinum hafa verið hert og öryggiskröfur auknar.

Silfra að öllum líkindum opnuð aftur á morgun
Silfra verður að öllum líkindum opnuð aftur á morgun en þjóðgarðsvörður og ferðaþjónustuaðilar sem starfa á svæðinu hittust aftur á fundi í Umhverfisráðuneytinu nú fyrir hádegi.

Frestun framkvæmda mótmælt í annað sinn
Íbúar í Berufirði lokuðu þjóðvegi 1 í gær til að mótmæla frestun framkvæmda. Framkvæmdastjóri Jáverks segir þörf á aukinni fjárfestingu í vegakerfinu. Þingmaður Vinstri grænna vill hækka eldsneytisgjald til að fjármagna framkv

Vill ekki sjá skattgreiðendur enda með stóra flugstöð sem er á ábyrgð þeirra
Ráðherra vill fá fjárfesta inn í uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Samgönguráðherra vill að ferðamenn fjármagni uppbyggingu vegakerfisins
Sextíu og fimm milljarða króna vantar í viðhald og uppbyggingu vegakerfisins á næstu árum en til samanburðar fara rúmir fjórir milljarðar í málaflokkinn á þessu ári.

Hver ferðamaður skilaði rúmlega 200 þúsund krónum til þjóðarbúsins
Íslandsbanki spáir því að gjaldeyristekjur af ferðaþjónustunni muni aukast um tæpa 100 milljarða frá seinasta ári.

Bein útsending: Ný skýrsla um íslenska ferðaþjónustu
Hver er staða og hverjar eru horfur í íslenskri ferðaþjónustu? Fræðslufundur í tilefni af nýrri skýrslu Íslandsbanka. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, taka þátt í umræðum.

Gagnrýna niðurskurð á samgönguáætlun: „Þjóðvegurinn er hættulegasti ferðamannastaður landsins“
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það með ólíkindum að enn og aftur sé verið að ýta út af borðinu nauðsynlegum samgönguframkvæmdum sem ferðaþjónustan hefur ítrekað kallað eftir.

Farþegafjöldi WOW air jókst um 170 prósent í febrúar
Flugfélagið WOW air flutti tæplega 167 þúsund farþega til og frá landinu í febrúar.

Múlakot best varðveitta hótelið frá gamalli tíð
Hafin er endurreisn gamla bæjarins í Múlakoti í Fljótshlíð en hann er talinn eitt best varðveitta hótel sem til er í landinu frá gamalli tíð.

Dettifossvegur "niðurgrafinn moldarvegur“ sem annar engan veginn eftirspurn
Húsavíkurstofa, sem er sameiginlegur vettvangur ferðaþjónustuaðila á Húsavík, hefur sent frá sér ályktun vegna niðurskurðar á samgönguáætlun.

Erlendum ferðamönnum í febrúar fjölgaði um 47 prósent milli ára
Um 148 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í síðasta mánuði samkvæmt talningum Ferðamálastofu.



Tvö hundruð manns í fjöldahjálparstöðinni í Klébergsskóla
Unnið að því að útvega fólkinu mat.

Ferðamannastaðir nánast tómir
Forvarnir björgunarsveita og Vegagerðar hafa skilað árangri, segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

Viðhorf útlendinga til Íslands jákvæðara nú en árið 2014
Sjötíu prósent aðspurðra í viðhorfsrannsókn Íslandsstofu eru jákvæð í garð Íslandsheimsóknar og helmingur svarenda er jákvæður gagnvart ferðalagi til Íslands utan sumartíma.

Umfjöllun BBC um ferðamenn á Íslandi: "Væri enn betra ef það væri færra fólk hérna“
Ítarleg umfjöllun er á vef BBC um ástæður þess að Ísland sé orðinn einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í heiminum.

Göngustígar endurlagðir við Gullfoss
Umhverfisstofnun hefur lagt möl á göngustíga við Gullfoss og varið umhverfið við fossinn til bráðabirgða.

Erlent vinnuafl býr á dvalarheimili aldraðra
Flugþjónustufyrirtækið IGS gerir upp gamalt dvalarheimili aldraðra í Garði. Þar munu erlendir starfsmenn flytja inn í vor. Fyrirtækinu dugði ekki að kaupa þrjár blokkir undir erlent vinnuafl. Ráða 220 erlenda starfsmenn fyrir sumarið.

Snjóflóðavarnarhlið sett upp í Hlíðarfjalli
Hliðið í Hlíðarfjalli er annað sinnar tegundar sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setur upp nú í vetur

Fjallað um hvalveiðar Íslendinga á vef Al Jazeera: Ferðamenn auka eftirspurnina eftir hvalkjöti
Í greininni eru veiðarnar settar í samhengi við aukinn fjölda ferðamanna hér á landi og rætt við Gunnar Jónsson, framkvæmdastjóra IP-Útgerð ehf., um aukna eftirspurn eftir hvalkjöti vegna ferðamannastraumsins.

Aðsóknin orðin eins og öll þjóðin hafi farið í hvalaskoðun
Fjöldi gesta fjórtán hvalaskoðunarfyrirtækja í fyrra var 355.000 manns. Milli ára fjölgaði því um 80.000 gesti.

Skiptar skoðanir á "listaverkum“ ferðamanna við Hörpu
"Þetta er algerlega óþolandi, og verulega hættulegt náttúru og ímynd landsins,“ segir reyndur leiðsögumaður.

Grænþvottur í ferðaþjónustu
Ferðaþjónustufyrirtæki markaðssetja sig með því að segjast umhverfisvæn án þess að hafa neina staðfestingu á því. Tíu prósent ferðaþjónustufyrirtækja hafa skrifað undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu.

Störðu á kviknakinn Slóvaka í öldunum á Djúpalónssandi
"Ég hef aldrei séð neinn fara í sjóinn þarna en þessi gekk bara faglega til verks, óð bara út í en komst reyndar ekki mjög langt,“ segir Teitur Þorkelsson leiðsögumaður.