Sport

Hodgson þjálfar Finna

Englendingurinn Roy Hodgson þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Viking, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Finna frá og með haustinu 2006. Hodgson er reyndur þjálfari sem víða hefur komið við á ferli sínum og meðal annars hefur hann þjálfað Inter Mílan, Udinese, Blackburn og FC Kaupmannahöfn. Þá var hann landsliðsþjálfari Svisslendinga og kom þeim í úrslitakeppni HM, árið 1994.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×