Mjög langt á milli svo ríkissáttasemjari reyni að höggva á hnútinn Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 30. janúar 2025 18:31 Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands og Inga Rún Ólafsdóttir hafa tæpa tvo sólarhringa til að fara yfir innanhússtillögu ríkissátasemjara. Vísir/Vilhelm Formenn samninganefnda í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga hafa þar til klukkan eitt á laugardag til að taka afstöðu til innanhússtillögu ríkissáttasemjara. Formaður samninganefndar sveitarfélaga segir að langt hafi verið á milli deiluaðila og ríkissáttasemjari sé með þessu að reyna að höggva á hnútinn.
Ríflega vika er frá síðasta formlega fundi í kjaradeilunni en þá var lýst yfir að deilan væri komin á endastöð. Verkfallsaðgerðir kennara hefjast að óbreyttu á mánudaginn í ríflega fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Umboðsmaður barna tók undir ályktun fimm félagasamtaka í morgun og lýsti yfir áhyggjum af börnum í viðkvæmri stöðu í fyrirhuguðum verkföllum. Staðan í kjaraviðræðunum valdi vonbrigðum og grundvallarhagsmunamál að deiluaðilar leiti allra leiða við að ná sáttum. Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélags Íslands í samninganefnd kennara sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að þrátt fyrir að hann væri bjartsýnn væru samninganefndirnar ekki búnar að koma sér saman um mat á réttindum kennara og við hvaða laun eigi að miða á almennum markaði í kjaraviðræðunum. Hafa frest til klukkan eitt á laugardag Tíminn fyrir fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir er að renna út og boðaði ríkissáttasemjari samninganefndirnar til sín klukkan fjögur í dag þar sem hann lagði fram innanhússtillögu að kjarasamningi. Inga Rún Ólafsdóttir formaður samninganefndar sveitarfélaga segir að í raun hafi lítið annað verið mögulegt í stöðunni. „Við eigum eftir að fara yfir innanhússtillöguna og það á eftir að koma í ljós hvernig okkur líst á hana. Það er ýmislegt í þessu. Það er mjög langt á milli samningsaðila og ríkissáttasemjari er að reyna að höggva á hnútinn með tillögunni þannig að við munum skoða hana vel. Við höfum tíma til að svara þar til á laugardag klukkan eitt,“ segir Inga. Ef nefndirnar samþykkja tillöguna verður henni vísað til almennrar atkvæðagreiðslu sem stendur til 14. febrúar og verður verkföllum frestað á meðan. Ýmsu vön Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands sagðist ekki mega tjá sig um innanhússtillöguna en nú liggi fyrir að fara yfir hana með sínu fólki. „Nú höfum við það verkefni að fara heim í félögin okkar og skoða tillöguna. Ég má ekki tjá mig um tillöguna það er einn hluti samkomulagsins,“ segir Magnús. Aðspurður um hvort hann hafi búist við miðlunartillögu á þessum tímapunkti svarar Magnús: „Ég held við séum ýmsu vön. Landslag samningamála er þannig.“
Kennaraverkfall 2024-25 Skóla- og menntamál Mest lesið Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Innlent Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Innlent Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Innlent Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Erlent Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Erlent Ýtti konu fyrir bíl Innlent Segir Sjálfstæðismenn hyggja á setuverkfall verði þeim vísað á dyr Innlent Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Erlent Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Erlent Fleiri fréttir Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Héraðsdómur vísar Kiðjabergsmáli frá dómi Segir nýja forgangsröðun jarðganga uppi á borðinu Tilraun til stunguárásar í Hafnarfirði Tíu þúsund tillögur í 3.985 umsögnum Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Mjög langt í milli svo ríkissáttasemjari reyni að höggva á hnútinn Björgunarskipið kallað út á mesta forgangi Kennarar svara umboðsmanni barna Vonarglæta, óveður og barátta um skrifstofur Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag „Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Langt á milli deiluaðila og reynt að höggva á hnútinn Bein útsending: Ríkissáttasemjari fer yfir innanhússtillöguna Ýtti konu fyrir bíl Missti stjórn á bílnum og rakst utan í tvo Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Skipaður skrifstofustjóri fjármála Sextíu flugferðum aflýst Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Vegum um Hellisheiði og Þrengsli lokað Skilti Skúbbs þarf að fjúka í nágrannadeilum sem líkt er við stríð Lilja útilokar ekki formannsframboð og vill flýta flokksþingi Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Umferð um brautina gangi hægt Leggur fram innanhússtillögu Plottað um heimsyfirráð eða dauða Sterk tilfinningabönd Sjálfstæðismanna við herbergið koma Guðmundi Ara í opna skjöldu Kennaradeilan enn í hnút og mannskætt flugslys í Washington Sjá meira