Viðskipti innlent

Ís­land brot­legt í pitsaostamálinu

Árni Sæberg skrifar
Ólafur Stephensen er framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekanda.
Ólafur Stephensen er framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekanda. Vísir/Vilhelm

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur í dag sent Íslandi formlegt áminningarbréf þar sem farið er fram á að stjórnvöld leiðrétti ranga tollflokkun á osti með viðbættri jurtaolíu, þar sem hún hamlar frjálsu flæði vara.

Í fréttatilkynningu frá ESA segir að stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að með því að flokka pitsaost með viðbættri jurtaolíu, sem falli undir gildissvið EES-samningsins, í rangan tollflokk og leggja tolla á vöruna, hafi Ísland brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir í samtali við Vísi að niðurstaðan komi honum ekki á óvart en hann fagni henni. ESA hafi tekið málið upp eftir kvörtun FA.

Ekkert annað í stöðunni en að breyta flokkuninni

Félagið hafi verið þrasi við Ríkisskattstjóra og fjármálaráðuneytið í að verða fimm ár. Það sé með miklum ólíkindum hvernig stjórnvöld hafi umgengist bæði alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og stjórnsýslulög í því máli. 

Nú síðast hafi ríkisstjórnin sett áform um að færa tollflokkunina til samræmis við alþjóðlegu tollskrána og ákvörðun alþjóðatollastofnunarinnar á ís. Það hafi verið gert vegna þrýstings frá hagsmunaaðilum í landbúnaði.

„Nú held ég að ráðherrarnir eigi ekki neinn annan kost en að taka þau áform upp aftur. Annars bíður bara enn einn dómurinn frá EFTA-dómstólnum.“

Boðaði breytingar en hætti við

Talsverðar vendingar hafa orðið í málinu síðustu mánuði en í febrúar var greint frá því að Ísland hefði í fyrsta sinn verið á lista yfir kvartanir vegna viðskiptahindrana, sem útflutningsfyrirtæki í Evrópusambandsríkjum eru beitt í ríkjum utan sambandsins, vegn ákvörðunar Skattsins árið 2020 að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu.

Skömmu áður hafði Daði Már Kristófersson, þá nýsleginn fjármálaráðherra, birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagasetningu sem hefði breytt tollflokkuninni aftur til lögmæts horfs.

Forsvarsmenn sex hagsmunasamtaka landbúnaðar- og matvælaframleiðenda á Íslandi mótmæltu áformunum harðlega og sögðu að ef af þeim yrði myndi það hafa neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu og samkeppnisstöðu íslenskra bænda. 

Þá sagði þingmaður Framsóknarflokksins í ræðustól Alþingis að ef af áformunum yrði myndu tugir kúabænda þurfa að bregða búi.

Svo fór að Daði Már ákvað afturkalla áform um breytingar á tollflokkun pítsaosts íblönduðum jurtaolíu og hefja frekari skoðun málsins.

Himinháir tollar eða engir tollar

Í tilkynningu ESA segir að í fyrra hafi stofnunin tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að kvörtun hefði borist vegna tollflokkunar á osti með viðbættum jurtaolíum, þar með talið vöru sem þekkt er undir heitinu „pizza mix“. Kvartandi hafi haldið því fram að Ísland hefði flokkað slíkan ost í rangan tollflokk. Afleiðingin væri sú að lagður væri 30 prósent tollur auk 795 króna á hvert kíló við innflutning til Íslands. Ef varan væri hins vegar rétt flokkuð, félli hún undir bókun 3 við EES-samninginn og bæri þar af leiðandi engan toll.

Árið 2020 hafi íslensk tollyfirvöld ákveðið að endurskoða tollflokkun á vörum sem innihéldu svokallaðar pítsaostblöndur. Niðurstaðan hafi orðið sú að slíkar vörur féllu undir 4. kafla tollskrárinnar sem endurspegli sama kafla í tollskrá alþjóðatollastofnunarinnar (Harmonised System), sem sé alþjóðlegt kerfi sem notað sé til að flokka viðskiptaafurðir. Sá kafli nái yfir mjólkurvörur og falli utan gildissviðs EES-samningsins og beri þar með tolla. Þessi flokkun hafi síðan verið staðfest af íslenskum dómstólum.

Í formlegu áminningarbréfi ESA komi fram að ostur með viðbættri jurtaolíu falli undir gildissvið EES-samningsins þegar mjólkurfituinnihald er allt að 15 prósentum.

Þar með, ef ostur með viðbættri jurtaolíu hefði verið rétt flokkaður í samræmi við tollflokkun alþjóðatollastofnunarinnar og EES-samninginn, bæri ekki að leggja tolla á vörurnar.

„ESA hefur því komist að þeirri niðurstöðu að með því að flokka ost með viðbættri jurtaolíu – sem fellur undir gildissvið EES-samningsins – í rangan tollflokk og leggja tolla á vöruna, hafi Ísland brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.“


Tengdar fréttir

Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bænda­samtökin

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir það vonbrigði að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fresta áformum um breytingar á tollflokkun pítsaosts íblönduðum jurtaolíu. Hann segir fyrri ríkisstjórn hafa keyrt málið í gegn án samráðs við nokkurn mann nema Mjólkursamsöluna og Bændasamtökin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×