Áfram hagkvæmara að kaupa fasteign en hlutabréf Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. apríl 2025 12:19 Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur HMS segir að enn og aftur sé búist við að íbúðaverð hækki umfram almenna verðlagsþróun. Ekki sé verið að byggja nóg. Vísir Íbúðir hér á landi hafa hækkað meira og verð þeirra sveiflast minna en úrvalsvísitala Kauphallarinnar síðustu tíu ár. HMS telur þetta vera til marks um óeðlilega stöðu á eignamarkaði. Gert er ráð fyrir sömu þróun næstu misseri þar sem ekki er byggt nóg.
Íbúðaverð hefur hækkað töluvert meira en innlend hlutabréf á síðustu tíu árum, auk þess sem minna flökt hefur verið á meðalverði íbúða heldur en meðalverði hlutabréfa. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem kom út í dag. „Þetta þýðir að íbúðir hafa verið öruggari og arðbærari fjárfesting en hlutabréf síðustu tíu ár. Það teljum við mjög óeðlilega stöðu á eignamarkaði. Með meiri áhættu ætti maður að fá meiri ávöxtun því hlutabréf eru áhættusamari en íbúðir. Þetta sýnir hvað íbúðaverð hefur hækkað hratt og flökt minna en hlutabréf síðustu tíu ár,“ segir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur HMS. Jónas spáir sömu þróun áfram. „Íbúðaverð hefur haldið áfram að stíga umfram verðlag þannig að við erum að sjá raunverðshækkanir. Það skýrist af því að eftirspurnin er töluverð á íbúðamarkaði. Hins vegar eru verðhækkanirnar ekki eins miklar og við sáum á síðasta ári þar sem það er mjög mikið af íbúðum á sölu og sölutíminn er nokkuð langur þessa stundina,“ segir hann. HMS telur að til að uppfylla íbúðaþörf þurfi að byggja 4000 íbúðir árlega næstu áratugi. Samkvæmt talningu séu þær hins vegar aðeins þrjú þúsund í ár. Jónas segir því útlit fyrir að íbúðir haldi áfram að vera vænleg fjárfesting. „Það má gera ráð fyrir að íbúðir verði álitlegur fjárfestingarkostur svo lengi sem íbúðaverð hækkar svona hratt umfram almenna verðþróun,“ segir Jónas Atli Gunnarsson.
Fasteignamarkaður Mest lesið Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Viðskipti innlent Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Viðskipti innlent Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör Viðskipti erlent Áfram hagkvæmara að kaupa fasteign en hlutabréf Viðskipti innlent Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Viðskipti innlent Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Viðskipti innlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða Viðskipti erlent Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Áfram hagkvæmara að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Sjá meira